Tölvumál - 01.05.2000, Qupperneq 16

Tölvumál - 01.05.2000, Qupperneq 16
Þriðja kynslócSin Slaða MPEG4 í dag er sú að þjöppunar- staðallinn skilar sömu myndgæðum og MPEGl með 1/3 umfangi þess síðara eða að sama skapi skemmri tíma í sendingu innar eða UMTS í afstöðu til ýmissa ann- arra þráðlausra kerfa. A dagskrá er að veita henni allt að 2 Mb/sek flutningsgetu í kyrrstöðu í nærumhverfí. í fyrstu útgáfu virðist þó enginn framleiðandi miða að meiru en 384 kb/s. A hreyfingu í stórsell- unni má reikna með u.þ.b. þriðjungi af því. Bandbreiddin verður því töluvert meiri en í almenna þráðarsímkerfinu í dag (ISDN) og mikil miðað við GSM, en enn lítil miðað við glerið. í stórum dráttum næst afkastaaukningin á 3G á tvo vegu: Annars vegar með betri nýtingu tíðnibandsins og auknum þjón- ustuafköstum. Þetta er gert með nýju radíókerfi, betra aðgangskerfi og auknum möguleikum til betri sjálfstjórnunar og hins vegar með knappari framsetningu eða sparnað í umfangi (þjöppun) þess efnis sem kerfið á að flytja og betri framsetn- ingu (kóðun). Nýtt radíó- og aðgangskerfi Ein höfuð ástæðan fyrir nýju radíókerfi í 3. kynslóðinni er betri bandbreiddarnýtni og möguleikar á stórauknum fjöldaað- gangi miðað við GSM. Ég mun ekki fara djúpt í þetta efni hér en smá innsýn er þó nauðsynleg til að skilja merg málsins. Mynd 3 sýnir helstu hefðbundnar leiðir til fjölrásunar. í FDMA (frequency division multiple access) er tíðnirúminu skipt niður í rásir með mismunandi burð- artíðnum, í TDMA (time division multiple access) er hverri tíðnirás skipt upp í runu tímahólfa sem endurtekur sig og hvert tal- samband fær sitt hólf. Það er yfirleitt vísað til aðgangskerfis í GSM sem TDMA en það skiptir tíðnisviði sínu niður í 200 kHz rásir og notar sér þó tíðnirásun til að setja upp tvíáttasamband eins og ég vík að neðar. Þegar homsteinninn var lagður að GSM fyrir u.þ.b. 15 árum réðst mótunartæknin sem valin var af þörfum talsímaþjónust- unnar einnar og viðleitni til að spara í gerð farsímatækisins. Sú mótunartækni, og þessi uppskipting tíðnisviðsins í band- þröngar eintíðnirásir með nauðsynlegum eyðum í milli, gerir GSM ekki að band- nýtnasta kerfi í heimi nema síður sé. í UMTS kallast aðgangskerfið W- CDMA (wideband code division multiple access) og er farið allt öðruvísi að (mynd 3). Tekin er hlutfallslega bandbreið sendirás (5 MHz) og rófi talrásarinnar, sem upprunalega er bandþröng, dreift með hjálp kerfisbundins kóða yfir allt tíðnisvið sendirásarinnar. Þaðan kemur nafngiftin „spread spectrum" eða DS-SS. (sbr. mynd 3) Það er ýmist gert samfellt með slembitalnaröð (DS: direct sequence) eins og í W-CDMA eða með mjög tíðum slembistökkum sem er dreift jafnt yfir tíðnibandið, eins og t.d. í Bluetooth. Það sem meira er, í W-CDMA er öllum hinum talsamböndunum sem kunna að vera í 2. kynslóðin (GSM, DECT,..) TIÐNl TIÐNI 3. kynslóðin TÍÐNI / J f3- - RÁS 3 f2- - RÁS 2 fl_ R1 R2 R3 R1 n- - RÁS 1 TÍMI tl t2 t3 t4 TÍMI FDMA TDMA KÓÐI TÍMI ✓ WCDMA TIÐNI UMTS - Samfellt dreift tíðniróf (DS-SS) <- Tfðni-hopp (FH-SS) iími Bluetooth Mynd 3 : Um aðgangshátt 2. og 3 kynslóðarinnar 16 Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.