Tölvumál - 01.05.2000, Side 36

Tölvumál - 01.05.2000, Side 36
Fjarskiptaþróun Hin ný/a kynslóð fjar- skiptafyrirtækja nýtir sér frelsi í fjarskiptum og jafnframt mögu- leika nýjustu tækni til að byggja samnýtt net (e. converged net- work) sem byggja gjarnan á ATM og IP tækni Með almennri notkun MPLS opnast sá möguleiki að nota IP sem eina samskipta- háttinn yfir almenn fjarskiptanet Ný þjónusta fyrir hið bandbreiða og sítengda þjóðfélag mun eflaust skjóta upp kollinum og ekki er t.d. ólíklegt að veruleg aukning verði í streymi á hljóð og myndefni flutningar (e. data communications) hafa gjaman verið tveir aðskildir heimar í hugsun, tækni og þar af leiðandi mann- skap. Símaheimurinn er þekktur fyrir að hreyfa sig hægt og örugglega og þar er ör- yggið í fyrirrúmi. Þróun í gagnaflutning- um er afar hröð hins vegar. Hin almenna notkun IP samskiptaháttarins og nýting hans á nánast öllum sviðum fjarskipta hef- ur ýtt undir þær hugmyndir að hefðbundin fjarskiptafyrirtæki séu úrelt og leysa megi öll fjarskipti með pakkanetum er byggja á IP. Talað er um hina nýju kynslóð (e. NG) fjarskiptafyrirtækja í því sambandi. Hin nýja kynslóð fjarskiptafyrirtækja nýtir sér frelsi í fjarskiptum og jafnframt mögu- leika nýjustu tækni til að byggja samnýtt net (e. converged network) sem byggja gjaman á ATM og IP tækni. Tal og gögn era þá flutt eftir sama netinu til hagræð- ingar en flutningur tals er að verða minni í heildarmagni en flutningur tölvugagna á þegar þessu ári skv. erlendum spám. Segja má að tal fái að fljóta með í framtíðinni og gefur auga leið að hlutfall þess í kostnaði mun lækka. Fjarskiptafyrirtæki sem að- laga sig ekki að þessari nýju tækni munu eiga erfitt í samkeppninni vegna mikils kostnaðar við mannahald í rekstri hinna ólíku kerfa. Verður IP alhliða flutningshóttur? Unnt er að minnka vandamál við tal- og myndflutning með IP með því að hafa næga bandvídd til staðar og beita aðferð- um eins og mismunandi biðröðum (e. pri- ority queueing eða weighted fair queu- eing). Dæmi úr daglegu lífi er sér innritun- arborð fyrir Saga Class farþega þar sem að jafnaði em fáir farþegar. Þar höfum við í raun enga trygginu að við fáum afgreiðslu á innan við 10 mínútum. Þannig er ekki þolandi til lengdar að t.d. fimmta hvert símtal verði slitrótt eða myndin frjósi á skjánum af og til vegna stíflu í neti. Það sem vantar uppá IP samskiptaháttinn er að geta pantað samband enda í enda með merkjasendingu (e. signalling) áður en gögn eru send. Reynt hefur verið að gera þetta með RVSP samskiptahættinum en ekki þykir hafa tekist nægilega vel til þar og útbreiðsla er hans lítil. Flutningur IP yfir ATM sýndarrásir er hins vegar leið til að tryggja fyrirframákveðinni IP umferð þá bandvídd sem þarf. Þannig er ATM ákaflega mikilvægt sem undirliggjandi burðartækni fyrir kröfuharða IP flutninga. Mörg fjarskiptafyrirtæki em að próa sig áfram með endurbót á IP hættinum sem kallast MPLS (e. Multi Protocol Label Switching). Á jaðri fjarskiptanets er bætt við IP pakkann nýjum upplýsingum. Allir hnútpunktar fjarskiptanets verða að kunna skil á MPLS og geta tryggt þá bandvídd sem beðið er. Hér er komin fyrsta breyting á IP útgáfu 4 sem skilgreind var 1984 og virðist ætla að ná útbreiðslu. Með al- mennri notkun MPLS opnast sá möguleiki að nota IP sem eina samskiptaháttinn yfir almenn fjarskiptanet. Undirliggjandi kerfi geta t.d verið ATM net eða gigabitabeinar. Eitt er víst að IP verður að breyta til þess að það sé hægt. Við þetta má svo bæta við að það er skoðun margra að IP muni renna saman við ATM, en allt það sem IP vantar varðandi QoS (e. Quality of service) er að finna í ATM. Skoðun manna á því hvemig víðnet munu þróast er misjöfn og lætur nærri að um trúarlegt atriði sé um að ræða. Þannig er ákveðinn skóli sem vill keyra IP beint á SDH/Sonet (POS) en það getur verið hagkvæmt ef tengja þarf um langar og dýrar leiðir. Annað dæmi er tækni sem Cisco hefur verið að þróa þar sem SDH/Sonet er leyst af með samskiptahætti sem nefnist DPT (e. Dynamic Packet Transfer). Allt er þetta ung tækni og ekki stöðluð. Allmargir tala um nauðsyn þess að byggja hrein IP net (e. Pure IP) en und- irritaður verður að viðurkenna að hann hefur aldrei skilið þetta hugtak, IP er jú í netlagi (e. Network layer) og verður því ávallt mengað af neðri flutningslögum. Hvað er framundan Fyrirtæki smá sem stór em óðum að skipta út upphringisamböndum (ISDN) og lág- hraða kbs tengingum á Netið í sambönd sem mælast í Mbs (megabitar á sekúndu). Þessi þróun er ör þessa dagana enda em krafa dagsins góð tenging við Netið. Hér hafa fyrirtæki úr mörgum möguleikum að velja. Netglaðir einstaklingar munu einnig fá sér sítengingu með DSL eða þráðlausri tækni. Ný þjónusta fyrir hið bandbreiða og sítengda þjóðfélag mun eflaust skjóta upp kollinum og ekki er t.d. ólíklegt að veruleg aukning verði í streymi á hljóð og 36 Tölvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.