Tölvumál - 01.05.2000, Page 25

Tölvumál - 01.05.2000, Page 25
GPRS Þess vegna vilja menn nú sameina göngurnar og færa kosti tölvu- og vef- tækninnar inn í far- simakerfin sem slær tvær flugur í einu höggi, aðlagar 2G að vefheimum og varðar auk þess leið- ina í 3G. Þess vegna eru GPRS hæf 2G kerfi oft einnig kölluð 2.5G, með GPRS erum við komin hálfa leið í þriðju kyn- slóðina. Tæknin Lítum fyrst á helstu einingar hefðbund- ins 2G farsímakerfis, svo sem GSM. Úti í höndum notendanna eru farsímamir og þau tól sem notendur geta nýtt sér til sam- skipta, þessi tól hafa þráðlaust samband við sendistöð BTS (Base Tranciever Station), sendistöðvamar sem era fjöl- margar tengjast um línu eða örbylgjukerfi við stýrieiningu BSC (Base Station Controller) sem aftur tengist símstöð MSC (Mobile Switching Center). Að lok- um tengist símstöðin við önnur net, svo sem almenna talsímanetið (PSTN) og út- landanet (mynd 1). Öll þau samskipti sem fara um kerfið eru rásatengd (circuit switched) þar sem hver rás er 64kb/s sem er hin hefðbundna rásabreidd stafrænna fjarskiptakerfa í Evrópu. Þetta er einmitt sú kunnuglega rásabreidd sem er til aflögu fyrir ISDN í almenna símakerfinu en þar sem GSM tæknin nýtir hverja 64kb/s rás fyrir 4 talrásir verður möguleg bandvídd hverrar talrásar mun minni í GSM og gagnahraði takmarkast við 9.6kb/s. Þetta er sá gagnahraði sem farsímanotendur hafa orðið að sætta sig við þar til nú að nýjar aðferðir bæta úr vandanum. Það fyrsta sem gerist er að með nýrri mótunar- tækni verður mögulegt að keyra allt að 14.4kb/s um hverja talrás. Þetta er veruleg aukning en vegur þó ansi lítið í saman- burði við t.d. ISDN en það sem fyrst og fremst ræður úrslitum er möguleikinn að flétta saman margar rásir samtímis og margfalda þannig hraðann. Á þennan hátt má flétta allt að átta rásum og ná þá hraða upp á 8 x 14.4kb/s = 115.2kb/s. Þegar samfléttun margra rása varð möguleg settu menn fram tvær mismun- andi hugmyndir/aðferðir við að innleiða þennan nýja hraða í farsímakerfin. Önnur aðferðin, og kannski sú sem í fyrstu var talið að yrði fyrr á ferðinni, er kölluð Há- hraða rásatenging, skammstafað HSCSD (High Speed Circuit Switched Data). Þessi aðferð gengur einfaldlega út á það að not- andinn velur sér bandbreidd í upphafi samtals, kerfið fléttar þá saman þær rásir sem þörf er á og notandanum er þar með tryggður réttur rásafjöldi og umbeðin bandbreidd. Þessi aðferð lýtur í raun hinni hreinu rásabundnu hugsun, er einföld og auðskilin. Aðferðinni fylgir hins vegar eitt alvarlegt vandamál sem er kostnaður not- andans af margfaldri rásanotkun, því með þessari aðferð hefur notandinn tekið frá fastan fjölda talrása og þarf eðlilega að greiða fyrir notkun þeirra, hvort sem hann notar bandvíddina hagkvæmt eða ekki. Við getum auðveldlega séð fyrir okkur að Tölvumál 25

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.