Tölvumál - 01.05.2000, Blaðsíða 33

Tölvumál - 01.05.2000, Blaðsíða 33
Nethnöttu Nethnöttur Tæknivals: byltingin til sjófarenda Bergsteinn Hjörleifsson I raun má segja að Nethnöttur Tæknivals opni sjófarendum heim nútíma samkipfa sem áður var óþekkt- ur til sjós ASíðustu mánuðum hafa staðið yfir lokaprófanir af hálfu Tæknivals með Intemettengingu um borð í Mánafossi, skipi Eimskipafélags Islands. Á skipinu er tölvubúnaður í brú og gervi- hnattadiskur með sérstökum veltibúnaði til að halda stöðugri stefnu á hnöttinn sem við tengjumst. Með Nethnetti Tæknivals hefur verið þróaður búnaður sem sítengir með mikilli bandbreidd, íslenska sjófar- endur við Netið. Það má því segja að Nethnötturinn rjúfí þá einangrun sem sjó- menn búa við því að sjófarendur hafa að mestu leyti verið sniðgengnir í þeirri upp- lýsingabyltingu sem orðið hefur á síðustu árum „á fasta landinu“. Upplýsingabylt- ingin nær því loksins út á haf til sjófar- enda. Margir kostir Prófanir gengu eins og best var á kosið, tækjabúnaðurinn reyndist vel við verstu aðstæður, mikla ölduhæð og mikinn velt- ing án þess að sambandið við hnöttinn rofnaði. Það sýndi sig að diskurinn og sá búnaður sem honum fylgir stóðst fullkom- lega þær erfiðu aðstæður sem em hér við land í verstu vetrarveðrum. Möguleikarnir sem Nethnötturinn skap- ar eru óþrjótandi og kostimir ótvíræðir: • Sítenging • Eingöngu greitt fyrir gagnaflutning • Hraðvirkt samband (mikil band- breidd) • Staðlaður hugbúnaður engin sérsmíði • Stöðluð forrit fyrir ritvinnslu, tölvu- póst og gagnagrunn • Fullkomið netkerfi um borð í skipinu • Fjarlækningar, fjamám og önnur fjar- þjónusta er raunhæfur kostur Þess má geta að það er einnig hægt að setja upp samskonar búnað hjá fyrirtækj- um í landi, náttúmlega án veltibúnaðarins. Tæknival setti upp þessa lausn hjá flugfé- 1 upplýsinga- laginu Atlanta í Saudi Arabíu og reynslan hefur verið mjög góð. Sparar tíma sem kostar stórfé Nethnöttur Tæknivals var fyrst kynntur á sjávarútvegssýningunni í Kópavogi síð- astliðið haust og vakti mikla athygli, enda þessi tæknilausn ekki þekkt í heiminum. f raun má segja að Nethnöttur Tæknivals opni sjófarendum heim nútíma samkipta sem áður var óþekktur til sjós. Skipin era sítengd Netinu með hraðvirkari tengingu en þekkist hjá flestum fyrirtækjum í landi. Útgerð og áhöfn nýtir sér Netið sem upp- lýsingaveitu og samskiptatæki, fær ódýrt símasamband um Netið (VoIP), nýtir sér tölvupóst og alla fjarskiptatækni um Netið til öryggis, afþreyingar og spamaðar. Þá er unnt að greina bilanir og þjónusta skipin um Netið sem getur sparað útgerðinni stórfé og tíma, auk þess sem búnaður um borð getur verið sítengdur útgerðinni og skipin tengd upplýsingakerfi útgerðar. Við sjáum fram á að um borð í íslenskum skip- um verði staðlaður net-, hug- og vélbún- aður eins og hjá fyrirtækjum í landi, þ.e. að skipið verði einskonar útibú frá útgerð- inni. Prófanir við erfiöar aðstæöur Tilgangurinn með uppsetningu Nethnattar Tæknivals um borð í Mánafossi, var að sýna að það sé raunhæfur möguleiki að út- vega sjófarendum þá miklu bandbreidd við Netið sem gervihnattatenging felur í sér. Markmiðið var að fá reynslu við erfið- ar aðstæður. Mánafoss er strandferðaskip og hentaði vel vegna þess hve oft komið er að landi og einnig er skipið í stærðarflokk sem þótti ákjósanlegur. Ekki spillti að skipið er með mjög háa brú og því reyndi mikið á stöðugleika sendis vegna hreyf- inga skipsins á siglingu í ólgusjó. Tengingin Tengingin sem Tæknival býður upp á í Tölvumól 33

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.