Tölvumál - 01.05.2000, Side 38

Tölvumál - 01.05.2000, Side 38
Af CeBIT 2000 Af CeBIT 2000 Einar H. Reynis Linux er farið að skjóta rótum nokkuð víða Tilgangurinn með Bluetooth er meðal annars sá að losna við margskonar kapaltengingar Klukkan var ekki nema sjö að morgni og hraðlestin samt sem áður troðfull. Enn eitt metárið í aðsókn, var það sem kom upp í hugann. Engin sæti laus og framundan fyrsta níu klukkustunda lotan á þessari miklu sýn- ingu, CeBIT 2000. Þær raddir heyrðust að í þetta sinn hafi ekki verið kynnt neitt byltingarkennt en þær hljóma ekki hátt. Af nógu var að taka og af mannmergðinni að dæma í kringum bás Microsoft var ekki annað að sjá en að Windows 2000 vekti forvitni. Ekki þótti undirrituðum árennilegt að ryðja sér leið í gegnum þá þvögu og ekki þarf að efa að fyrirlestrar Microsoft um stýrikerfið hafi verið vel sóttir. Linux var víða að finna á CeBIT eins og búast mátti við og á sýningarsvæði Corel tóku gestir að jafnaði um 1.000 geisladiska á klukkustund með Linux stýrikerfinu. Sérstakt Linux sýningarsvæði var á staðnum þar sem 16 þekkt nöfn voru samankomin og sumir spámenn segja að Linux muni innan fárra ára fara að skáka Windows NT/2000. Lotus býður Domino á Linux og talsmaður fyrirtækisins segir að það sé vegna krafna frá viðskiptavinum þar sem stýrikerfið er talið stöðugt, öruggt og umfram allt ódýrt, enda ókeypis. Linux er farið að skjóta rótum nokkuð víða en eins og einn aðili sagði þá vegur það mjög þungt á metunum við fjöldaframleiðslu tækja ef greiða þarf fyrir leyfi vegna við- komandi stýrikerfis, auk þess sem orðstír um nýtni og stöðugleika skiptir máli. Ericsson sýndi sem dæmi ísskáp frá El- ectrolux sem er með innbyggðri tölvu og á skjánum mátti sjá góðkunnuga mynd sem sagt var að brátt muni víkja fyrir Linux, auk þess sem tilkynnt var að notaður yrði norski vafrinn Opera. Þetta var mjög for- vitnilegt að sjá og Ericsson-liðar voru óþreytandi að sýna hvernig þetta gamal- gróna heimilistæki gæti tekið að sér nýtt hlutverk sem samskiptamiðstöð heimilis- ins. Þráðlaust sækir á Ef eitthvað eitt stendur annars uppúr frá sýningunni er það gróskan sem er í þráð- lausri tækni. Segja má að núna séu komn- ar fram fyrstu raunverulegu lausnirnar fyr- ir gagnaflutning þráðlaust beint á tæki notenda án þess að á bakvið sé beinlínis net. Varla þarf að kynna sumt af því, heitin eru kunnugleg og annað verður að bíða síns tíma. Bluetooth er heiti á skammdrægri radíó- tækni sem hefur mikinn byr í seglunum. A CeBIT 2000 mátti sjá ýmsar frumgerðir slrkra tækja en miklar vonir eru bundnar við tæknina. Núna hafa um 1.200 fyrir- tæki lagt tækninni lið og Microsoft er komið í hóp þeirra. Fáein tæki voru til sýnis, svo sem heymartól fyrir farsíma frá Ericsson. Fyrir utan að vera tengt farsím- anum þráðlaust má gefa símanum munn- leg fyrirmæli um að hringja þannig að far- síminn getur dúsað í skjalatöskunni allan daginn. Ennfremur var Ericsson að sýna tölvu sem ekkert var nema skjár með inn- byggðum síma og hefur hún samband við kapalmótaldið Pipe Rider með Bluetooth. Hún fer þó ekki, var tjáð, í framleiðslu fyrr en á næsta ári. NEC sýndi litla tölvu með innbyggðum Bluetooth búnaði en nú eru ýmsir kortaframleiðendur á fullri ferð að þróa kort fyrir eldri gerðir fartölva svo unnt verði að nota Bluetooth tæknina með þeim. Tilgangurinn með Bluetooth er meðal annars sá að losna við margskonar kapal- tengingar en ýmis fyrirtæki eru að brydda upp á nýjungum með Bluetooth. Eitt slíkt var að kynna öryggisbúnað sem felst í því að þegar tölvunotandinn fer frá vél sinni læsist hún sjálfkrafa og opnar ekki aftur fyrr en notandinn nálgast hana að nýju. 38 Tölvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.