Tölvumál - 01.05.2000, Blaðsíða 9
Uppgjör 2000 vandans
En Island er ekki
eyland nema í land-
fræðilegu tilliti
ur þessa starfs og opnaði hann skrifstofu í
Washington í febrúar 1999. Formaður
2000 nefndarinnar var tilnefndur í þennan
stýrihóp sem fulltrúi “lítilla” ríkja en það
er hópur um 80 ríkja innan Sameinuðu
þjóðanna sem hafa innan við 10 milljónir
íbúa. í þeirri tilnefningu var fólgin viður-
kenning á starfínu hér á landi.
Meginviðfangsefni stýrihópsins var
skipulagning aðstoðar í þróunarlöndum,
samræming á starfi alþjóðasamtaka, for-
ganga um gerð viðlagaáætlana, mat á
framgangi undirbúnings ríkja heims og
kerfisbundin söfnun upplýsinga í kringum
áramótin. Fulltrúar 2000 nefndarinnar áttu
einnig skipulegt samstarf við 2000 nefnd-
irnar á öðnim norðurlöndum og tóku sem
áheyrnarfulltrúar þátt í starfi á þessu sviði
innan ESB.
2000 vandinn var einstakur fyrir margra
hluta sakir. Vandinn var eins alþjóðlegur
og verið getur þar sem þjóðir heims þurftu
að glíma við samskonar vandamál á sama
tíma og fyrir tiltekinn dag. Stærð vandans
var líka óræð því menn vissu ekki fyrir-
fram hvar 2000 ágalla væri að finna og
fyrir bragðið var heilmikið af hamfara-
spám einkum á veraldarvefnum. Þessir
heimsendaspámenn gerðu bæði gagn og
tjón. Gagnið var að þeir vöktu athygli á
vandanum en tjónið var að umræðan var á
köflum öfgafull og öfgarnar áttu oft greið-
ari leið í fjölmiðla en hófsamari og raun-
særri spár. Það á þó yfirleitt ekki við um
íslenska fjölmiðla.
Lokaorð
2000 nefndin reyndi að halda sig á raun-
hæfum nótum og sagði t.d. í skýrslum sín-
um til ríkisstjórnarinnar í maí og septem-
ber 1999 að enn verði að telja hugsanlegt
að upp komi truflanir sem valdið geti
skaða og óþægindum. I desemberskýrslu
nefndarinnar kom fram að litlar líkur væru
á að hefðbundin starfsemi fyrirtækja og
opinberra stofnana mundi raskast alvar-
lega vegna 2000-vandans þótt reikna
mætti með einhverjum hnökrum á rekstri
einhverra tölvukerfa í kring um áramótin
og síðar. Og þetta gekk eftir.
Fyrst eftir áramótin 1999/2000 töluðu
sumir eins og að 2000 vandinn hafi verið
einhverskonar vírus sem síðan lét alls ekk-
ert á sér kræla. Þetta er mikill misskilning-
ur því að á síðustu árum fannst mikið af
2000 ágöllum í kerfum fyrirtækja og
stofnana. En þeir voru yfirleitt lagfærðir.
Greining, flokkun og forgangsröðun ein-
kenndu 2000-verkefnin og menn sinntu
fyrst því mikilvægasta. Ef tekin er samlík-
ing úr læknisfræðinni þá má líkja aðgerð-
um vegna 2000 vandans við bólusetningu
til að forða veikindum.
Margir lögðu á sig mikla vinnu til að
greina hvort búnaður væri haldinn 2000
ágalla og lagfæra hann ef finndist. Enn
stæni hópur kom að vinnu við þetta verk-
efni með einhverjum hætti. Fyrir þetta al-
menna framlag og virka þátttöku er 2000
nefndin þakklát. Og vegna þessara við-
bragða búum við íslendingar sennilega
betur nú í tölvumálum en annars hefði
verið.
Haukur Ingibergsson,
formaður 2000 nefndarinnar
IMJKMSTOIX
BANK4NNA
Tolvumál
9