Tölvumál - 01.05.2000, Blaðsíða 26

Tölvumál - 01.05.2000, Blaðsíða 26
GPRS GPRS samanstendur bæði af nýjum bún- aði úr heimi IP og hugbúnaði innan hefðbundnu eininga farsímakerfanna sá sem t.d. vafrar um netið án þess að sækja umtalsverð gögn yrði varla ginn- keyptur fyrir að greiða fyrir þá notkun með margföldu verði. Þegar hér var komið sögu áttuðu menn sig á því að gagnanotk- un í farsímakerfunum þyrfti alls ekki að lúta öðrum lögmálum en því sem þekkist við hefðbundna vefnotkun, fólk vill geta flakkað um upplýsingaheiminn á góðum hraða og auðveldlega sótt gögn og upplýs- ingar þegar svo ber undir. Og umfram allt, enginn er viljugur að greiða margfalt verð. GPRS er afurð þessarar hugsunar. GPRS samanstendur bæði af nýjum búnaði úr heimi IP og hugbúnaði innan hefðbund- inna eininga farsímakerfanna. Þessi nýi búnaður tengist við farsímakerfm og stjómar rásanotkun þeirra á sem hag- kvæmastan hátt með tilliti til gagnahraða og hagkvæmni. Hagkvæmnin skiptir gríð- arlega miklu máli því eitt af vandamálun- um sem glímt er við í farsímakerfum er takmarkaður rásafjöldi. Vegna mikils kostnaðar á bak við hverja talrás í farsíma- kerfum er talrásum stöðugt fjölgað í takt við þá notkun sem í kerfunum er. Ef rás- imar eru illa nýttar við gagnaflutninga kemur það sér illa fyrir kerfið og enn ver fyrir notandann sem þá finnst hann borga mikið fyrir lítið. Hér er það einmitt sem GPRS leysir vandann og hefur sveigjan- leika fram yfir HSCSD og aðlögun að sveiflukenndri (e: bursty) hegðun vefnotk- unar. Með GPRS em rásimar aðeins nýttar þegar þörf er á þeim og við samanburð við HSCSD kemur í ljós að GPRS er a.m.k. þrefalt hagkvæmari kostur þegar tekið er tillit til rásanýtingar. Vegna þessa kemur ekki á óvart að langflestir framleiðendur sem og farsímafyrirtæki setja nú stefnuna á GPRS og láta HSCSD bíða. Skoðum aðeins í hverju þessi munur liggur þar sem það lýsir vel hagkvæmni GPRS. Ef við hugsum okkur að á ákveðnu augnabliki séu 8 talrásir lausar til gagna- flutnings þá gefur augaleið að tveir HSCSD notendur gætu skipt þeim á milli sín og báðirkeyrt 4X14.4=57.6kb/s. Þar sem þessir notendur nota 4 rásir hver verða þeir að borga fjórfalt verð fyrir notkunina. Séu þeir t.d. bara að rápa um vefinn og ekki að sækja nein gögn er hætt við að þeir verði ósáttir við símreikning- inn. GPRS vinnur aftur á móti útfrá sveiflueðli vefnotkunar og það sýnir sig að a.m.k. 6 GPRS notendur geta nýtt sömu átta rásirnar á 57kb/s hraða (mynd 2). Þetta er mögulegt vegna þess að með GPRS eru rásimar aðeins fléttaðar þegar þörf er á og þeim er skilað samstundis inn í kerfið, til notkunar fyrir aðra, þegar við- komandi notandi nýtir þær ekki. Með þessu móti verður unnt að bjóða farsíma- notendum hraðvirka og hagkvæma lausn fyrir gagnasamskipti, mun ódýrara en HSCSD gæti boðið, og það sem meira er, notandinn er alltaf tengdur hraðvirku gagnsambandi. Þessari skynsömu aðferð fylgir einn forvitnilegur fylgifiskur sem er spumingin um það hvaða lausnum verður beitt til að verðleggja þessi gagnasamskipti framtíð- arinnar. í dag þekkja farsíma- og símnot- endur yfirleitt vel hugtakið mínútuverð, hugtak sem ekki er hægt að nota í GPRS. í GPRS er það frekar gagnamagnið eða þau samskipti sem fara fram sem eru notand- anum skiljanleg og það verður spennandi að sjá hvemig notendum og þjónustuveit- endum þeirra gengur að átta sig á nýjum gjaldtökuaðferðum. Verður mkkað fyrir bitana eða pakkana sem flæða til og frá notandanum, verður mkkað með föstu gjaldi fyrir pakkaeiningar, föstu gjaldi fyr- Fjöldi notenda / burðarbylgju 26 Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.