Tölvumál - 01.05.2000, Page 8
Uppgjör 2000 vandans
Nokkur óbeinn ávinn-
ingur hlaust af 2000
starfinu
hafi verið til staðar í stórum kerfum sem
voru komin nokkuð til ára sinna.
Erfitt er að meta þann kostnað sem fall-
ið hefur til vegna 2000 vandans einkum
vegna þess hve almennar endurbætur og
hagræðing á hug- og vélbúnaði voru sam-
ofnar viðbrögðum vegna 2000 vandans.
Hvemig á til dæmis að meta þegar fyrir-
tæki ákveður að kaupa nýjan tölvubúnað
vegna gruns um 2000 ágalla en þessi end-
urnýjun hefði hvort heldur er átt sér stað
hálfu eða einu ári seinna af öðrum orsök-
um. Hið sama gildir um endurnýjun á
hugbúnaði.
I stóm landskerfunum var þessu aðeins
öðruvísi farið en engu að síður virðist það
vera svo að þar hafi í ýmsum tilfellum ver-
ið um endurnýjun að ræða sem þurft hefði
að ráðast í fyrr en síðar þó að í öðrum til-
fellum væri um hreinar viðgerðir að ræða
sem þá vom án nokkurs virðisauka gagn-
vart framtíðinni.
Þegar rætt er um kostnað ber að hafa í
huga að það voru stjómendur og ábyrgðar-
menn fyrirtækja og opinbers rekstrar sem
tóku ákvarðanir uin viðbrögð við 2000
vandanum og þar með tilkostnað hver á
sínum vettvangi. Og það gerðu þeir út frá
því hvað þurfti til til að tryggja að sú starf-
semi sem þeir bám ábyrgð á yrði ekki fyr-
ir skakkaföllum. Auk þess reyndu margir í
leiðinni að ná fram einhverri hagræðingu
eða endumýjun og feta sig þannig eitt eða
tvö skref fram á veg. Og þessir menn
fengu nákvæmlega það sem borgað var
fyrir; áfallalítil áramót.
Obeinn ávinningur
Nokkur óbeinn ávinningur hlaust af 2000
starfinu. Almenn tölvuvæðing fyrirtækja
og stofnana er svo nýlega til komin að
þetta var í mörgum tilfellum í fyrsta sinn
sem farið var yfír allan búnað á þessu
sviði og margir gátu í leiðinni einfaldað
og samhæft búnað og komið sér upp skrá
yfir hann. Við 2000 greiningu var hugbún-
aður, einkum sérsmíðaður, skjalaður betur
en áður, oft með öguðum aðferðum gæða-
stjórnunar. Einnig notuðu menn tækifærið
til að láta verða af því að losa sig við úr-
eltan búnað.
Þetta hafði það einnig í för með sér að
stjómendur og eigendur fyrirtækja urðu að
setja sig betur inn í upplýsingatækni en
áður til að geta tekið réttar ákvarðanir
vegna 2000 vandans. Vegna 2000 vandans
er íslenskt samfélag því með betri og
öruggari tölvu- og upplýsingakerfi eftir en
áður.
Við þetta má bæta að mörg fyrirtæki og
stofnanir gerðu í fyrsta sinn áætlanir um
viðbrögð ef eitthvað kæmi fyrir og þær
munu nýtast við ýmsar aðstæður og hafa
eflt skilning manna á nauðsyn þess konar
viðbúnaðar. Einnig má benda á að truflan-
ir sem komist var hjá með aðgerðum er
ágóði. Hefði landsframleiðsla t.d. minnk-
að um 1/2% vegna truflana þá eru það
3000 m.kr. Það munar um rninna.
Kostnaður
Vegna þess hve dreift kostnaður vegna
2000 vandans féll til er engin leið að fínna
með vissu út hvað miklum fjármunum var
varið hérlendis vegna aðgerða. Miðað við
þekktar kostnaðartölur má áætla að heild-
arkostnaður sem lagt var í hér á landi
vegna og tengdist 2000 vandanum á ein-
hvem hátt hafi numið 2500-3000 m.kr. Þar
af má áætla að um 500 m.kr. hafi verið
kostnaður vegna hreinna viðgerða, einkum
á stórum landskerfum, sem ekki hafði í sér
fólginn annan virðisauka inn í framtíðina
en þann að kerfin tóku áfallalaust á móti
nýju árþúsundi. í öðmm tilfellum var um
að ræða kostnað vegna aðgerða sem skil-
uðu framtíðarvirðisauka á einhvern hátt
eins og áður var sagt.
Alþjóðlegt samstarf
En Island er ekki eyland nema í landfræði-
legu tilliti og 2000 vandinn var afar al-
þjóðlegt fyrirbæri. A þeim vettvangi var
gripið til umfangsmikilla aðgerða. Til að
byrja með var þetta starf einkum unnið á
vegum alþjóðlegra atvinnugreinasamtaka
svo sem í fjarskiptum, samgöngum, fjár-
málum og orkumálum þar á meðal í kjam-
orkumálum. A vegum margra aðila var
einnig skipulögð umfangsmikil aðstoð við
þróunarlönd. Lagði ísland sitt af mörkum í
suðurhluta Afríku en þar fer fram mikill
hluti af þróunaraðstoð íslands.
Seint á árinu 1998 hófust umræður um
að samhæfa þetta fjölþjóðlega starf og ná
yfir það yfirsýn. Á vegum upplýsinga-
nefndar Sameinuðu þjóðanna og Alþjóða-
bankans var settur upp sérstakur stýrihóp-
8
Tölvumál