Tölvumál - 01.05.2000, Side 20

Tölvumál - 01.05.2000, Side 20
ÞricSja kynslócSin (gaming theory). Þörfm er ekki svo mikil hvað símaþjónustu snertir, en þar byggja menn á sterkum tölfræðilegum grunni allt frá dögum Erlangs, en þegar kemur að margmiðlunarefni á þessum nýju þráð- lausu netum virðist hegðanin allt önnur. Lausnir úr CDMA-kerfum 2. kynslóðar- innar sem byggðust á tali reynast ekki góðar. Það er hér sem bundnar eru vonir við leikjafræðina. I leikjafræðinni, sem er mjög stærð- fræðileg og telst í dag til sérgreina innan tölvugreindar (artificial intelligence), er leitast við að setja fram margnotendakerfi á formi hneppis afleiðjujafna sem lýsa samkeppnisástandi og leysa það með tilliti til jafnvægisástands milli framboðs og eft- irspumar. Þegar jafnvægi næst og ef það næst felst vandamálið svo í því að stýra þessum leik svæðisbundið svo að kerfinu í heild sé haldið á þessari hagkvæmu jafn- vægisbraut. Viðfangsefnið er ekki síður einkennandi fyrir ýmis önnur svið samfé- lagsins (örhagfræði, bílaumferð, spila- mennsku o.fl.) en nýju persónubundnu þráðlausu fjarskiptakerfin, sökum þess að fjarskiptakerfin eru mannanna verk, eru þau betri kerfi til tilrauna en þau félags- legu og það kynni að fara svo að rann- sóknir á þessu sviði leggðu leikjafræðinni og félagsvísindunum nýtt lið. Það hefur átt sér stað áður í fjarskiptafræðinni. Minna umfang og öruggari flutningur Hér er þörf á smá inngangi að upplýsinga- og kóðafræðinni svo að unnt sé að flokka efnið. Fjarskiptakerfi í sinni einföldustu mynd hefur a.m.k. þrjár einingar, þ.e. upp- lýsingalind (source), flutningsrás (chann- el) og viðtæki (sink). Hvað snertir knapp- ari framsetningu á flutningsefninu og ann- an spamað, er unnt að vinna að því marki í öllum þremur einingum, þ.e. með lind- arkóðun (source coding), rásakóðun (channel coding) og viðtakskóðun (sink coding). Lindarkóðun snýst m.a. um þjöppun og kembingu efnisins af öllu því sem í skiln- ingi upplýsingafræðinnar reynist umfremd umfram kjarna málsins. Það er engin þörf á að senda þessa umfremd í gegnum rás- ina. Það er auðvelt að búa hana til að nýju á viðtökuendanum og bæta henni við. Dæmi um framfarir á þessu sviði varð- andi þjöppun stafræns sjónvarpsefnis má sjá á mynd 6. Skissan var á sínum tíma gerð fyrir erindið sem er undanfari þessar- ar greinar og byggði hvað MPEG4 snertir á upplýsingum frá Japönum sem voru fyrstir til að prófa kóða og prófa MPEG4 til sendinga vídeóefnis með 3G. Skissan hefur staðið sig furðu vel í ljósi reynslunn- ar síðan. Staða MPEG4 í dag er sú að þjöppunarstaðallinn skilar sömu mynd- gæðum og MPEGl með 1/3 umfangi þess síðara eða að sama skapi skemmri tíma í sendingu. í MPEG4 er beitt blandaðri tækni merkjafræðiaðferða og myndupp- byggingar sem grundvallast á líkönum (líkt og hefur þekkst í þjöppun á tali og tónlist). Líkanabyggði hlutinn í MPEG4, sem aðgreinir það frá MPEG-1 og -2, er komið skammt á veg og MPEG4 á því eft- ir að gera mun betur í þjöppun í framtíð- inni en þetta dæmi gefur til kynna. Þegar kemur að sendingu margmiðlun- arefnis á þráðlausum miðli eins og í 3G, sem er tímabreytilegur miðill, er sent með breytilegum bitahraða (VBR: variable bit rate). Ef flutningsástandið er sveiflukennt, er sent í gusum á þeim augnablikum sem aðstæður eru góðar, en þeim verður svo að jafna út á ný í viðtæku. Framfarir á þessu sviði hafa leitt til blandaðrar lindar- og viðtakskóðunar sem er að skila mun betri árangri í 3G/4G en áður þekktist. Ég vík að þeim árangri síðar. I rásakóðun er bætt aukabitum við efnið á kerfisbundinn hátt sem gerir kleift að leiðrétta stafrænar villur sem verða óhjá- kæmilega við flutning í gegnum rásina vegna suðs og bjögunar sem rásin veldur. Síðasta orðið í þeim efnum eru svonefndir turbo-kóðar sem eru mikil framför. Fyrir sömu villulíkindi í viðtöku og fylgnikóð- amir sem notað era í 2. kynslóðinni er unnt að komast af með 3 - 5 dB minni styrk ef túrbókóðum er beitt. Þennan ávinning er unnt að versla með á ýmsa vegu, í minni sendistyrk, langdrægni, lengri endingu rafhleðslunnar o.m.fl. Tur- bókóðarnir ásamt nýrri mótunartækni í 3. kynslóðinni, sem nefnist fingraviðtæki (Rake-receivers) sbr. mynd 5, koma miklu betur til móts við lausnir á vandamálum fjölvegsdreifingar (mynd 4) og gerir m.a. kleift að vinna með miklu minni sendi- 20 Tölvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.