Tölvumál - 01.05.2000, Síða 27

Tölvumál - 01.05.2000, Síða 27
GPRS Framundan er mikil vinna innan farsíma- fyrirlækjanna við að byggja kerfin upp fyr- ir GPRS ir þjónustuna, eitt gjald fyrir tölvupóst, annað fyrir gögn sem sótt eru af netinu? Hér er ýmsum spurningum ósvarað en nokkuð víst að ný viðmið munu koma fram. Framundan er mikil vinna innan far- símafyrirtækjanna við að byggja kerfm upp fyrir GPRS. í flestum tilfellum þarf að uppfæra allar stærstu einingar farsíma- kerfanna, sumar þó eingöngu í hugbúnaði en aðrar bæði hug- og vélbúnaðarlega. Mynd 1 sýnir yfirlit yfir helstu einingar farsímakerfis sem keyrir GPRS. Áður en hafist er handa við uppbyggingu sjálfs GPRS hlutans þarf að uppfæra núverandi kerfiseiningar. Þar ber hæst símstöð (MSC) og stýrieiningu (BSC). í mörgum tilfellum þarf ekki að uppfæra sendistöðv- arnar (BTS) sem einfaldar ferlið og kostn- að til muna. Næsta stig er að innleiða svo- nefnt GPRS aðgangsnet (access network) en sá hluti sér um hina raunverulegu breytingu úr rásaumhverfi yftr í pakkaum- hverft, PCU, auk þess sem aðgangsnetið kemur GPRS í merkjasamband við sím- stöðina. Handan aðgangnetsins ræður rásatækni því ríkjum en innan þess tekur IP pakkatæknin við. Þriðja og síðasta stig ferlisins eru svo stjómeiningar GPRS kerfisins, SGSN (Support GPRS Service Node) og GGSN (Gateway GPRS Service Node). SGSN gegnir fyrst og fremst því hlutverki að stjórna rásum farsímahlutans til að flytja pakkana milli SGSN og far- símanna ásamt því að finna og staðsetja GPRS notendur innan þjónustusvæðisins. GGSN sér um að koma pökkunum frá SGSN út til gagnanetanna (ISP) ásamt því að halda utan um pakkamagnið og notend- urna svo símafélagið hafi möguleika á að innheimta fyrir notkunina. Eins og sjá má af mynd 1 er GPRS því kerfi sem tengist hefðbundna GSM kerfmu annars vegar og Internetinu hins vegar. Og tilgangurinn sá að koma á hagkvæmu og hraðvirku gagnasambandi milli farsíma og Nets. En það er þó ekki nóg að uppfæra kerf- in, símnotendur verða einnig að uppfæra símana sína og enn sem komið er eru GPRS hæfir farsímar ekki komnir á mark- að. Ljóst er að fyrstu tækin munu ekki geta nýtt GPRS til hins ítrasta heldur mun það gerast í skrefum. Fyrstu tækin verða væntanlega bandbreiddartakmörkuð, t.d. við 2+2, 1+3, 1+4 sem segir til um fjölda rása í sendingu (upload-download) en hraðinn mun svo fljótt aukast. Á farsíma- og upplýsingatækjamarkaðnum öllum er þó mikil gerjun og framleiðendur keppast við að spá í framtíðina og kynna og leggja drög að nýjum samskiptatólum. Á næstu misserum má búast við byltingu í alls kyns upplýsingatækjum sem nýta GPRS og þannig sjá menn fyrir hreina spreng- ingu í notkunarmöguleikum upplýsinga- tækja í kjölfar GPRS væðingar farsíma- kerfanna. En GPRS er bara fyrsta stigið, framund- Tölvumál 27

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.