Tölvumál - 01.05.2000, Page 35
Fjarskiptaþróun
Þróun I jarskipfatækni og
fjarskiptaþjónustu
Örn Orrason
Island er einnig orðið
mjög vel tengl til út-
landa um Netið en
heildarflutningsgetan
til Bandaríkjanna og
Evrópu er um 160
Mbs þegar þefta er
ritað
ér verður rætt um þróun fjar-
skiptamarkaðar á íslandi síðustu
mánuði og það sem búast má við í
framtíðinni hvað varðar flutningstækni og
þjónustu.
Fjarskiptasprengjan og þróun síðustu
mónuða
Undanfarið ár hefur verið einstaklega við-
burðaríkt hvað varðar fjarskipti á íslandi.
Með tilkomu nýrra fjarskiptalaga hafa ný
fjarskiptafyrirtæki sprottið upp og val-
möguleikar smærri og stærri viðskiptavina
hafa stóraukist. Eldri fjarskiptafyrirtæki
hafa jafnframt vaknað af værum blundi.
Óhætt er að segja að markaðurinn sé hag-
stæður viðskiptavinum. Sem dæmi um
breytingamar þá voru eftirtaldar þjónustur
ekki í boði í byrjun árs 1999; Frame
Relay, ATM, ADSL, örbylgjunet í anda
Loftnets Skýrr og Gagnaveitunnar. Ásamt
þessu hefur verið lagt öflugt ljósleiðaranet
af hálfu Íslandssíma og Línu.Nets og sam-
keppni í öflugum gagnaflutningum og tal-
síma er orðin staðreynd. Island er einnig
orðið mjög vel tengt til útlanda um Netið
en heildarflutningsgetan til Bandaríkjanna
og Evrópu er um 160 Mbs þegar þetta er
ritað. Fyrir ári síðan var þessi flutnings-
geta um 20 Mbs, sannkallað risastökk (sjá
mynd 1). Fyrirtækjum býðst núna Net-
bandvídd á innan við helming þess verðs
sem þekktist fyrir ári síðan og almenningi
býðst einnig frí áskrift að Netinu. Verð á
símtölum til útlanda hefur lækkað um allt
að helming á einu ári og sú staða er komin
upp að það getur verið dýrara að hringja
innanlands í GSM síma en til útlanda. ís-
landssími hefur einnig gengið það langt að
setja upp skiptistöðvar í Bandaríkjunum
og Bretlandi. Sú staða er einnig mjög lík-
leg að þegar grein þessi birtist á prenti
standist ekki ýmsar fullyrðingar hér.
Greinarhöfundur þakkar samkeppninni
þessa öru þróun.
Ný kynslóð símafyrirtækja og fjar-
skiptaneta
I erlendum tímaritum um fjarskipti er
mikið talað um hugtakið NPN sem er
skammstöfun á New Public Network.
Hinn almenna skoðun er sú að fjarskipti
og gagnaflutningar séu að fara inná nýtt
skeið með því að renna saman. Staðreynd-
in er sú að fjarskipti símafélaga (e. tel-
ecommunications) og almennir gagna-
Tölvumál
35