Tölvumál - 01.05.2000, Blaðsíða 40
Af CeBIT 2000
Finnska fyrirtækið
Benefon var að sýna
GSM síma með inn-
byggðum GPS stað-
setningarbúnaði
Þetta myndi einnig
þýða að öll gögn
viðkomandi aðila
sem nýtir ASP væru
geymd miðlægt
Markmið sameinaðr-
ar skeytasýslu er að
allt renni saman;
tölvupóstur, bréfasími
og talhólf
fyrir hvem sem er, enda er hann hugsaður
fyrir lækna og tæknimenn í bílaiðnaði.
Reiknað er með að verðið falli hratt á
næstu árum.
Úr því að verið er að fjalla um þráðlaus
staðamet ættu lesendur að bæta heitinu
HiperLAN2 í safn sitt. Núna hefur ETSI
staðalastofnunin samþykkt grunn-hönnun-
arlýsingu að þeirri tækni sem ætlað er að
ná hraðanum 54 Mb/s. HiperLAN2 mun
vinna á 5 GHz tíðni og er mun styðja
margskonar samskiptareglur. Ef Hiper-
LAN2 nær flugi skilur það allt annað eftir
í rykmekki.
Núna eru helstu skammstafanir í far-
símatækni orðnar vel þekktar; HSCSD,
GPRS, EDGE og UMTS em allt vörður á
leið upp í meiri hraða til gagnaflutninga
og á CeBIT mátti sjá framtíðarsýn ýmissa
aðila í þeim efnum. Þegar farsímar em
annars vegar er WAP ekki langt undan og
farsímaframleiðendumir em hver af öðr-
um að setja á markað slíka farsíma. WAP
er þó ekki bundið við farsímana. Finnskt
fyrirtæki nokkurt var að kynna WAP sem
hugbúnað í Windows og skjámynd WAP
verður því á tölvunni. Ennfremur mátti sjá
lófatölvur með WAP og þær tengdust síð-
an þráðlaust við farsíma. Annars er slagur-
inn mikill í farsímageiranum. Einn mæðu-
legur framleiðandi orðaði það sem svo við
undirritaðan. „í fyrsta sæti er Nokia, í
öðra sæti er Ericsson, í þriðja sæti er eng-
inn og í því fjórða allir aðrir.“
Annars leita sumir á ný mið í farsíma-
geiranum. Finnska fyrirtækið Benefon var
að sýna GSM síma með innbyggðum GPS
staðsetningarbúnaði. Skjárinn á símanum
getur birt landakort og mögulegt er að
sækja nýjar myndir frá sérstakri heima-
síðu. Aukahlutir fyrir farsíma eru til í
miklu úrvali og fyrir þá sem em mikið á
ferðinni er þess virði að skoða tæki sem
heitir Scotty frá þýska fyrirtækinu Solarc.
Tæki þetta nýtir sólarorku til að hlaða raf-
hlöður símanna en er þó ekki bundið við
þá því tengja má tækið við lófatölvur,
GPS tæki og fleira. Scotty vegur 125
grömm og verðið er 62 evmr.
Hverfum sem snöggvast út fyrir gufu-
hvolf. Varla þarf að rekja hér sorgarsögu
Iridium en gervihnattaþjónustunni In-
marsat hefur hinsvegar vegnað mun betur,
telur nú um 140.000 notendur og þar af
nota um 50.000 Inmarsat til gagnaflutn-
inga. A síðasta ári hóf fyrirtækið að bjóða
IP þjónustu um allan heim og mögulegt er
að tengja á allt að 64 Kb/s hraða með
tækni sem fyrirtækið kallar Mobile ISDN.
Með tæki sem kostar 700.000 krónur er
því hægt að komast í hraðvirkt tölvusam-
band hvar sem er í heiminum. Sendi- og
viðtökubúnaðurinn er á stærð við fartölvu
og vegur 4,4 kg. Hann má tengja við ein-
menningstölvu og nota til tenginga við
Veraldarvefinn, senda tölvupóst, fyrir
skráaflutning, myndfundi og til tenginga
við tölvunet fyrirtækja. Nafnið Global
Area Network er við hæfi þar sem þjón-
ustan er aðgengileg á 98% yfirborðs jarð-
ar.
ASP
Ný skammstöfun hefur skotið upp kollin-
um: ASP, öðra nafni kerfisveita. í sem
stystu máli gengur kerfisveita út á það að í
stað þess að fyrirtæki kaupi hugbúnað og
setji á tölvur sínar er hann leigður af sér-
stökum þjónustuaðila og fluttur yfir fjar-
skiptalínur eftir því sem þörf er á.
Greiðsla væri síðan sem dæmi eftir notkun
eða á einhverju föstu gjaldi. Þetta myndi
einnig þýða að öll gögn viðkomandi aðila
sem nýtir kerfisveita væru geymd mið-
lægt. Kerfisveita, eða Application Service
Provider, væri síðan sá aðili kallaður sem
40
Tölvumál