Bókasafnið - 01.03.1982, Page 10
Ungur í meira en áltatíu ár.
unum þá vildi ég fá hærri húsbygginga-
styrki. Þá vildi ég, að skylt væri að hafa
skólabókasöfn, en þau voru ekki með í lög-
unum nema þannig, að þau gátu fengið
styrki, ef þau væru stofnuð, en skólarnir
voru ekki skyldugir til að hafa bókasöfn.
Ekki fékk ég þó frumvarp samþykkt fyrr
en 1964, og var þá lítil bót að, því þá hafði
dýrtíðin aukist svo mikið.
Að lokum
Bækur eru bara of lítið kynntar. Það var til
dæmis algert nýmæli í þessum frumvörpum,
sem ég samdi, að efnt skyldi til verðlauna-
10
samkeppni um barnabækur árlega. Núna er
þetta komið í gegn.
Og vestur á ísafirði fékk ég þá hugmynd,
að bókasafnið yki bókakaup sín. Ég keypti
fimm eintök, þrátt fyrir það að safnið fengi
eitt eintak ókeypis. Svo var verið að biðja
um bókina og hún var ekki inni. Menn
þreyttust á þessu og bara keyptu bókina. Og
um það bil, er ég fór úr bænum, þrifust tvær
bókaverslanir jafn vel á ísafirði og ein áður.
Mér finnst, að höfuðatriðið, bæði gagn-
vart bóksölu og bóklánum, sé það, að auka
áhuga fyrir lestri.
—V