Bókasafnið - 01.07.1984, Blaðsíða 15
Þingfulltrúar að störfum á 2. ársþingi B VFÍ.
varaformaður, Hrafn A. Harðar-
son ritari, Hildur G. Eyþórsdóttir
gjaldkeri, og meðstjórnendur
Gunnar Gunnarsson, Sigríður
Gísladóttir og Þórdís T. Þórarins-
dóttir.
Hér verður greint frá skipan
nefnda á vegum BVFÍ. Ályktana-
nefnd: Anna Torfadóttir, Helgi
Magnússon, Jónína Guðmunds-
dóttir. Fræðslunefnd: Birna Helga-
dóttir, Guðrún Hannesdóttir,
Halldóra Kristbergsdóttir. Kynn-
ingarnefnd: María Gunnarsdóttir,
Hildur G. Eyþórsdóttir, Jón
Sævar Baldvinsson. Lagabreyt-
inganefnd: Erla Jónsdóttir, Ingi-
björg Árnadóttir, Margrét Lofts-
dóttir. Ritnefnd: Hilmar Jónsson,
Viggó Gíslason, Grímhildur
Bragadóttir. Þá var ákveðið að
leita eftir tilnefningum félaganna
í 2 nefndir, afmælisnefnd til að
skipuleggja afmæli BVFÍ á næsta
ári og uppstillingarnefnd til for-
mannskjörs, sem á að fara fram á
næsta ársþingi.
Önnur mál
Síðast á ársþinginu var rætt um
önnur mál og urðu umræður um
innanfélagsmál fyrirferðarmestar.
Þar á meðal var rætt um hvort
ekki væri ástæða til að breyta nafni
félagsins til samræmis við hlut-
verk þess og til að forðast mis-
skilning. Þá var rætt um hvort
ekki ætti að lesa upp á hverju árs-
þingi fundargerð síðasta þings og
bera hana upp til samþykktar.
Einnig var til umræðu hvort
skýrslur frá Þjónustumiðstöð
bókasafna, ritnefnd Bókasafnsins
og aðildarfélögum BVFÍ ættu
ekki heima á ársþinginu. Var
stjórn BVFÍ falið að skera úr um
þessi mál.
Ársþingið hófst kl. 10 f.h. og
lauk fundarstörfum kl. 4 e.h. með
því að Amtsbókasafnið bauð
öllum viðstöddum upp á kaffi og
meðlæti. Einnig sá safnið um kaffi
í hléi fyrir hádegi og útvegaði
ágætan hádegismat á Hótel
Varðborg. Ég vil þakka Lárusi
Zophaníassyni og hans fólki fyrir
frábærar móttökur á þessum
fyrsta fundi BVFÍ sem haldinn er
utan höfuðborgarsvæðisins.
EiríkurÞ. Einarsson
formaður B VFÍ
Ályktun 2. ársþings Bóka-
varðafélags íslands
Vegna síharðnandi samkeppm
um frítíma fóks, ekki síst ungs
fólks, er nauðsynlegt að bæta
samkeppnisaðstöðu hollrar og
menningarlegrar tómstundaiðiu.
Bókavöróum er ljóst að ný
tækni og nýir miðlar svo sem
myndbönd og tölvur bjóða upp á
mikla möguleika, sem enn eru að
mestu ónýttir af bókasöfnum.
Þetta stafar m.a. af fjársvelti
menningarstofnana, sem ekki
hafa ráð á að virkja þessa nýju
miðla í þágu fræðslu og menning-
ar.
Bókasöfn eru hlutlaus vett-
vangur fyrir fólk á öllum aldri og
þar er ekki kýnslóðabil. Á
alþjóðaári æskunnar 1985 væri
verðugt að efla mjög bókasöfn, til
að gera þeim kleift að sinna betur
hlutverki sínu sem mennta-, upp-
lýsinga- og tómstundastofnanir
fyrir almenning.
Fyrirbyggjandi aðgerðir eru
ætíð farsælastar og bókaverðir eru
þeirrar skoðunar, að nú-
tímabókasöfn séu mikilvæg tæki
til að draga úr firringu sem ein-
kennir nútímaþjóðfélag.
2. ársþing Bókavarðafélags
íslands, haldið á Akureyri 5. maí
BÓKASAFNIÐ
15