Bókasafnið - 01.07.1984, Qupperneq 24
ustu og forstöðumenn bæjar- og
héraðsbókasafna (miðsafna), sem
ráðnir verði nýir til starfa, séu
bókasafnsfræðingar. Stefna beri
að því að einnig þeir, sem ráðnir
eru til að veita hreppsbókasöfnuin
forstöðu, séu bókasafnsfræðing-
ar, en verði því ekki við komið
vegna gildra ástæðna, beri þeim
starfsmanni sem ráðinn verði til
starfsins að afla sér lágmarks-
menntunar, sem viðurkennd er af
Menntamálaráðuney ti.
Nefndin telur einnig mjög
brýnt að finna menntunar- og
starfsþjálfunarleiðir fyrir þá sem
þegar eru starfandi í söfnum og
hafa ekki stundað nám í bóka-
safnsfræði. Hagkvæmustu leið til
þessa telur nefndin svipuð þeirri
leið sem opnuð hefur verið rétt-
indalausum kennurum, þ.e.
heimanám og stutt námskeið.
Lokaorð
{ lokaorðum skýrslunnar benda
nefndarmenn á hina miklu þörf á
þjónustu almenningsbókasafna,
bæði hvað varðar upplýsingagjöf og
heimildaþjónustu, stuðning við
menntun og fræðslu fólks á öllum
aldri, en einnig útlán á afþreyingar-
bókmenntum. Þetta sjáist best af
hinni miklu aðsókn og nýtingu á
söfnum sem leggja áherslu á alla
þessa þætti.
Þegar rætt er um síðastnefnda
þáttinn er það oft gert á niðrandi
og einhæfan hátt. Bókasöfn þar
sem þýddar skáldsögur eru yfir-
gnæfandi meirihluti útlána og
útlán eina starfsemin, gefa tilefni
til slíks umtals.
Afþreyingar- og tómstundahlutverk
safnanna er hins vegar víðtækt og
mikils virði. Undir þennan þátt
fellur t.d. útlán bóka um ýmis
konar tómstundaiðju, hlustun í
safni, o.m.fl.
Nefndarmenn vekja sérstaka
athygli á þeirri staðreynd að
mikið er gert af hálfu íslenskra
stjórnvalda til að sjá ákveðnum
aldursflokkum fyrir tómstunda-
iðju, t.d. á sviði íþrótta. Sveitar-
félög veiti einnig verulegu fé til
þessarra þátta og mikil íþrótta-
mannvirki hafi risið á síðustu
árum. Ef tekið sé mið af hinum
stóra hóp sem sækir afþreyingu
og fræðslu til almenningsbóka-
safna, megi teljast furðulegt að
þau skuli ekki njóta meiri virð-
ingar senr tómstundastofnanir.
Þar sem upplýsingaþjónusta í
almenningsbókasöfnum hefur
verið byggð upp á skipulagðan
hátt og auglýst sem þjónustu-
þáttur er hún geysimikið notuð.
Ein af helstu forsendum fyrir því
að söfnin geti rækt þetta hlutverk
sitt vel, er að samvinna milli safna
sé náin og bókasafnskerfið sé vel
og skipulega uppbyggt.
Góð almenningsbókasöfn eru
ómetanleg fyrir fólk í upplýsinga-
leit og sjálfsnámi og mikill stuðn-
ingur við skólakerfi og fullorðins-
fræðslu. Margir hafa áhyggjur af
vaxandi treglæsi fólks. Almenn-
ingsbókasöfnin hafa hér mikil-
vægu hlutverki að gegna og geta
gert mikið til að hindra slíka
þróun.
Kristín H. Pétursdóttir
KRISTJfin
SIGGEIRSSOn HF.
LAUGAVEGI 13, REYKJAVÍK.
KYNNIR KS BÓKA-
SAFNSHÚSGÖGN
KS bókasafnið hefur bæði vegg-
hillur og fristandandi eyjar. Hillur
hlið við hlið eru samtengdar,
sem hefur um 20% sparnað í för
með sér, auk þess sem við bjóð-
um bókasöfnum þessi húsgögn á
hagstæðu verði. f hillurnar fást
bóka- og blaðskáhillur og í þær
má setja ýmsa fylgihluti, sem
falla að þörfum bókasafna.
24
BÓKASAFNIÐ