Bókasafnið - 01.03.1990, Page 14
Almenn umfjöllun
Ljóð
Það er umhugsunarefni hversu lítið „bókaþjóðin"
stundar ljóðagerð fyrir börn. Árið 1987 komu út sjö ljóða-
bækur fyrir ungu kynslóðina. Allar þessar bækur voru
endurútgefnar utan ein, Saga af Suðurnesjum eftir
Jóhannes úr Kötlum, sem kom hér út sem sjálfstætt verk
með myndum eftir Ragnheiði Gestsdóttur. Ljóðið hafði
þó birst áður með öðrum ljóðum Jóhannesar.
Árið 1988 komu út hjá einu forlagi tvær harðspjalda-
bækur með rímuðum texta fyrir yngstu kynslóðina og
1989 einnig.
Eina nýja framtakið á þessum þrem árum eru tvö ljóða-
söfn frá Námsgagnastofnun, Ljóðspor og Ljóðspeghr
(1989), ætluð til kennslu í eldri bekkjum grunnskóla.
Þetta eru fallegar bækur og vel unnar og nýtast örugglega
ýmsum unglingum til skemmtilesturs. Hins vegar held ég
að grunninn að ljóðanautn fólks þurfi að leggja fyrr.
Flestir vita hve gaman lítil börn hafa af vísum, söngvum
og rímþulum. (Sbr. stöðugar vinsældir Vísnabókarinmr
sem núna er til í 7. útg.) Væri ekki upplagt fyrir eitthvert
núlifandi skálda að reyna að bæta úr þessu og senda frá sér
ljóð fyrir börn? Við megum ekki gleyma því að það að
hafa gaman af ljóðum er einn af gleðigjöfunum í tilver-
unni - og þykja mönnum þeir vera of margir?
Endurútgáfur
Endurútgáfur barnabóka á þessum þrem árum virðast
aðallega vera með tvennu móti: Annars vegar eru endur-
útgáfur og stöðugar endurprentanir sívinsælla (sölu-)
bóka og bóka sem fyrir fáeinum árum seldust vel og hins
vegar endurútgáfur á sígildum og heittelskuðum barna-
bókum sem oftar en ekki hafa verið ófáanlegar lengi.
Hverju forlagi er það sæmd og prýði að gefa út á nýjan
leik sígildar barnabækur og halda góðum bókum á mark-
aði með endurprentunum. Hins vegar ber nokkuð á því að
um einbera sölustefnu sé að ræða og er það miður. Þó
kastar fyrst tólfunum þegar farið er að gefa út lítið eitt
endurskoðaðar bækur undir nýjum nöfnum og þess hvergi
getið að um gamla bók sé að ræða. Slík útgáfa er bein svik
við lesendur.
Eitt forlag í Reykjavík (Mál og menning) hefur á
undanförnum árum gefið út áður útkomnar bækur þess
ástsæla höfundar Astrid Lindgren í nýjum þýðingum Sig-
rúnar Árnadóttur. Sigrún er snilldarþýðandi og er þetta
því hið besta framtak. En galli er þó á gjöf Njarðar.
Börnin í Ólátagötu, uppáhaldsbók margra þeirra barna
sem nú eru að komast á foreldraaldur, heitir núna Börnin
íSkarkalagötu. Hvers vegna? Og eitt annað, enn verra.Jól
í Ólátagarði, langþráð og ófáanleg lengi, kom aftur út
1989. En þar sem börnin sungu áður „Bráðum koma
blessuðjólin", ernú „Kátt erumjólin" (úr Gilsbakkaþulu
og meira að segja vitlaust). Hvað á þetta að þýða?
Myndabækur fyrir litlu börnin
Minni stöðugleiki er í útgáfu myndabóka en annarri
barnabókaútgáfu. Þó virðist myndabókaútgáfa beldur
aukast ár frá ári og einnig batna.
Áberandi er hversu margar vandaðar myndabækur
komu út árið 1989, bæði endurútgefnar og nýjar. Þó ber
að geta þess að árið 1988 komu mun færri út en árið 1987.
Núna komu einnig á markaðinn óvenjumargar mynda-
bækur eftir íslenska höfunda og teiknara óg er það jákvæð
þróun. íslensku myndabækurnar eru reyndar misjafnar að
gæðum eins og aðrar. Mig langar sérstaklega að hnýta í
tvennt: Það fyrra er bókin Feiti strákurinn sem ég tel
óhæfa barnabók og til vansa fyrir Forlagið að gefa hana út,
það hefði átt að hafa vit fyrir barninu sem gerði hana.
(Þessa skoðun mína er ég tilbúin að rökstyðja betur ef með
þarf.) Hitt sem ég ætla að nefna finnst kannski flestum lítil-
vægt, en hvers vegna hefur sá ágæti teiknari Brian Pilking-
ton aldrei lært að teikna íslendinga? Bóndinn í Gilitrutter
spænskur eða grískur fjárhirðir og ekki tekur nú betra við
þegar Bakkabræður eru nákvæmlega eins í útliti og aðal-
persónan í Örkinni hans Nonna og ekki svipaðir nokkr-
um íslendingi. íslenskt landslag, blóm og tröll hefur Brian
teiknað með einstökum ágætum en fullorðnir karlmenn -
nei, þeir eru fengnir annars staðar en hér.
Ba rnabókamarkaðurinn
Nýjum barnabókum á markaði ár hvert hefur ekki
fjölgað neitt verulega síðustu árin. Allt frá árinu 1982
hefur fjöldi þeirra verið nokkuð stöðugur og virðist mér
að vissu jafnvægi hafi verið náð í framboði og eftirspurn.
Að vísu eru bækur ársins 1989 ívið fleiri en næstu ára á
undan og fjölgar einkum smábarnabókum. Eftir á að
koma í ljós hvort farið hefur verið fram úr eftirspurninni
eða ekki. Talsverðar breytingar hafa þó orðið. Er fyrst að
14
BÓKASAFNIÐ