Bókasafnið - 01.03.1990, Page 19
Tafla7
„Hefur þú lesið einhverjar bxkur
(fyrír utan skólabxkumar) síðustu 30 dagana?
Nokkrir skólar í Reykjavík, 4.-9. bckkur.
Meðalfjöldi lesinna bóka eftir aldri
1968 1979 1985 1988*
4.-5. bekkur 4,4 8,3 6,0 3,7
6.-7. bckkur 4,4 8,3 5,0 2,4
8.-9. bekkur** 3,2 4,7 3,5 1,7
Heildarmeðaltal 4,1 7,2 4,8 2,7
* Aðeins einn skóli 1988. ** Aðcins 8. bekkur 1968.
notkun“2 á þessu aldursskeiði. Öðru máli gegnir hins
vegar um heildarsamdráttinn í bóklestri, sem fyrr hefur
verið rætt um; hann kemur eins og sjá má m.a. fram í því
að ineðaltal yngsta hópsins 1988 er litlu hærra en meðaltal
elsta hópsins þrem árurn fyrr (tafla 7). Hann gefur sterka
vísbendingu um að vegur bókarinnar verði minni á konr-
andi áratugum en hann hefur lcngi verið.
Hér skal að lokum gerð örstutt grein fyrir því hvaða
bækur ungmennin í könnuninni 1988 voru að lesa eða
höfðu síðast lesið. Spurt var á þessa leið:
„Hvað heitir síðasta bókin sem þú last, eða sem þú
kanntað vera aðlesa þessa dagana?"
Bókatitlar senr nefndir voru skiptu mörgum hundr-
uðum og aðeins örfáir voru lesnir af mjög mörgum.
Teiknimyndasögur af einhverju tagi voru nefndar af meira
en sjötta hverjum svaranda. Bókaflokkurinn unr ísfólkið
eftir Margit Sandemo var nefndur af tíunda hverjum svar-
anda og sama gilti um Ævintýra- og Finnnbækur Enidar
Blyton. Bækur um Elías eftir Auði Haralds nefndu um
5% og sama hlutfall nefndi bókina Stjörnustæla. Síðan var
2 Að vísu færist myndbandanotkun í vöxt á unglingsárum, cn sú aukn-
ing vegur ekki upp á móti minnkandi sjónvarpsnotkun á sama tíma.
sægur af nýlegum unglingabókum nefndur af 2-4% svar-
enda hver titill (Leðurjakkar og spariskór, Pottþéttur
vinur, Einn úr klíkunni, Er þetta ást?). Þar mátti einnig
finna Pollýönnu. Síðan eru hundruð titla senr einn eða
örfáir svarendur nefndu. Þetta eru gamlar og nýjar barna-
og unglingabækur, ástarsögur og spennusögur. Ungum
höfundum eins og Einari Kárasyni, Pétri Gunnarssyni og
Þórarni Eldjárn bregður fyrir ásamt Tolkien, Dostojevskí,
Jóni Thoroddsen, Steinbeck, H.C. Andersen og William
Heinesen. Halldór Laxness var hins vegar ekki nefndur og
enginn var að lesa íslendingasögur.
Janúar 1990.
SUMMARY
Surveys on bookreading among youngsters
between 10-15
The author has conducted repeated surveys over a twenty year
period among young Icelanders in the age-group 10-15 years.
During these years vast changes have occurred in the mass media
landscape of the country, thc most significant being the intro-
duction of VCRs in the early 1980s and the end of state monopoly
on radio and television rights in 1986 with the consequent imme-
diatc proliferation of radio stations as well as the establishment of
a second television channel. The surveys have yielded results
rclating to leisure activities in gcncral and mass rnedia behaviour
in particular. Among other things it is observed that whereas in
1968 only 21 per cent of the respondents had been abroad no less
than 73 per cent had been abroad in 1985. Television and VCR-
viewing had increased from 10 hours a week in 1968 to 16 hours in
1985 and 27 hours in 1988 (after the introduction ofthe second,
commercial TV-channel). The avcrage number of books read in
one month by thc young people went down from 4,1 in 1968 to
2,7 in 1988. One out of twenty respondents in 1988 had read 10
books or more during one month (down from one in ten in 1968)
whereas onc in five had read not a single book (up from one in ten
in 1968). When asked about book titles the most popular turned
out to be the works of Enid Blyton and Margit Sandemo.
ORÐABÆKUR ÍSAFOLDAR
ORÐABÓKASETT - AFBORGUNARSKILMÁLAR |TA .
Tilvaldar fermingargjafir - Sígild eign t ISAFOLD
BÓKASAFNIÐ
19