Bókasafnið - 01.03.1990, Síða 24
Skólar og almenningsbókasöfn verða að beita sér sam-
eiginlega að því verkefni að fá börnin til þess að lesa
mikið. Helst þarf samstarfið að vera með fastákveðnu
sniði til þess að koma að sem mestum notum, jafnvel
verði stofnuð samstarfsnefnd. En til þess að slíkt starfskili
árangri þarf mikinn og góðan bókakost og menntaða
skólasafnverði og almenningsbókaverði. Hér er þó við
ramman reip að draga. í grunnskólalögunum frá 1974
stendur: „Við hvern grunnskóla skal vera safn bóka og
námsgagna ásamt vinnustofu fyrir nemendur og
kennara." og „...þannig að því búið, að því er varðar
húsnæði, bókakost, önnur námsgögn og starfslið, að það
geti gegnt því hlutverki að vera eitt af meginhjálpar-
tækjum í skólastarfinu.“. Þessu markmiði hefur ekki
verið náð og mörg skólasöfn eru afar illa búin. Þar við
bætist að almenningsbókasöfnin eru allt of mörg og þess
vegna smá svo að fjármunir dreifast og nýtast ekki sem
skyldi.
Til þess að bæta úr þessu verður að efla skólasöfnin,
breyta lögunum um almenningsbókasöfn og fá sér-
menntað fólk til starfa í söfnunum. Einnig verður að efla
útgáfu léttlestrarbóka fyrir fólk á öllum aldri. Athygli
fólks beinist í auknum mæli að þessum vanda. í þjóðfélag-
inu hefur undanfarið mikið verið rætt um málrækt og bók-
lestur, einkum barna og unglinga, og fullyrða má að
áhrifa barnabókavikunnar í október sl. mun gæta í langan
tíma. í barnabókavikunni kom fram að mjög hefur dregið
úr aðsókn barna í almenningsbókasöfnin á síðustu árum.
T.d. hafði miðsafn í tæplega 1000 manna bæ 63 börn á aldr-
inum 7-13 ára á lánþegaskrá árið 1985 cn árið 1988 voru
þau aðeins 36. Ekkert skólasafn er í grunnskólanum í
þessum bæ. Foreldrar og heimili eru þó sá hornsteinn sem
líta verður til í sambandi við lestur barna og unglinga og
mikilvægast er því að þeir geri sér grein fyrir því að lestur
bóka er ekki síður hollt og nauðsynlegt tómstundagaman
fyrir börn og unglinga en þátttaka í félagslífi og íþróttum.
SUMMARY
Public libraríes and
the International Literacy Year 1990
An introduction with statistical figures describes the state of literacy in
the western world in view of the International Literacy Year. Functional il-
literacy which is emerging as a new problem and concerns Iceland, too, is
dcfincd. The 1989IFLA Congress recognized the role of public libraries in
the struggle against illiteracy and encouraged further action. The author
suggests a definite agenda for public libraries in this battle. A Norwegian
experiment is describcd as an exapmle. One ofthc main problems has been
a shortage of special reading material for disadvantaged groups. This situa-
tion receives a detailed analysis in Icelandic and Nordic context. Thc article
concludes with recommendations regarding the most urgent tasks. They
are based again on Norwegian initiatives and emphasize the necessity for
cooperation between schools and public libraries, the importance of spe-
cially trained staff and availability of special reading material.
HEIMILDIR
1990 Intcrnational Literacy YearlLY. A Practical Guide 1988. Paris: Ngo
Standing Committee.
Funksjonell Analfabctisme. Tiltak for lesc- og skrivehemmede i folkcbib-
liotek. Etidehefte 1989. IFLA's Standing Committec for Public Librar-
ies.
International Literacy Year (ILY) 1988. UNESCO Adult Education.
Information notes. Special number 4.
Sigríður Þ. Valgeirsdóttir, Þóra Kristinsdóttir [og] Guðmundur B.
Kristmundsson 1988. Rannsókn á lestrarhæfni og tengslum hennar
við námshæfileika og árangurí 9. bekk grunnskóla. Rv.: Rannsókna-
stofnun uppeldismála. (Rit; 7)
Yfirlýsing Menningar- og vísindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UN-
ESCO) um almenningsbókasöfn 1972. UNESCO Public Library
Manifesto, endurskoðuð útgáfa. Baldur Ingólfsson þýddi.
FÉLAGSPREN' rSMIÐJAN HF
PRF.NTUN UMBÚÐAPAPPÍR
Setning Vandaður gjafapappír
Tölvuumbrot Aprentun á umbúðapappír
011 almenn prentun að þinni ósk
Filmugerð
Nafnspjöld •
Pappírssala af Sláðu á þráðinn
lager
Nýjar vélar til okkar
• og sölumaður kemur í heimsókn
STIMPLAGERÐ eftir umtali
Stimplar •
af öllum stærðum og gerðum Hagstætt verð
Innan við sólarhrings
afgreiðslufrestur Sími 11640
24
BÓKASAFNIÐ