Bókasafnið - 01.03.1990, Qupperneq 31
Dr. Sigrún Klara Hannesdóttir dósent, Háskóla íslands
Bókasafnsfræðingar útskrifaðir
frá Háskóla íslands 1964-1989
Hér birtist í fyrsta sinn heildarskrá yfir alla þá sem
lokið hafa bókasafnsfræði sem aðalgrein frá
Háskóla íslands frá 1964 að Svanlaug Baldursdóttir lauk
B. A.-prófi fyrst manna og til ársloka 1989. Alls hafa 182
lokið prófi á þessu 26 ára tímabili en miklu fleiri haft við-
komu í greininni um lengri eða skemmri tíma. Getið er
heitis B. A.-ritgerðar en þess ber þó að geta að stundum er
nokkuð á reiki hvert eiginlegt nafn er, einkum á eldri
verkefnum sem hvergi eru til, og stundum er annað heiti á
kápu ritgerðar en upp er gefið í Arbók Háskólans. Getur
því verið um lítils háttar mismun að ræða.
Bókasafnsfræðingum er raðað í útskriftarröð þannig að
menn geti séð númer hvað þeir eru. Frá 1971 eru fleiri en
ein útskrift á ári og segja tölurnar til um á hvaða árstíma
menn hafa lokið prófi. /1-75/ gefur til kynna að viðkom-
andi hafi lokið B. A.-prófi í febrúar 1975, /2-80/ að útskrift
hafi verið í júní 1980 og /3-89/ að viðkomandi hafi lokið
B. A.-prófi í október 1989.
Bókasafnsfræðin var kennd í heimspekideild allt til
1976 og fyrsti bókasafnsfræðingurinn sem útskrifaðist úr
félagsvísindadeild var Helga Einarsdóttir árið 1977 (nr.
34), en um nokkurra ára skeið gátu menn lokið prófi úr
hvorri deildinni sem var. Enn eru þess dæmi að menn ljúki
tvöfaldri aðalgrein og kjósi að útskrifast úr heimspeki-
deild. Þetta hefur áhrif á röðunina. Þeir sem útskrifuðust
úr heimspekideild eftir að félagsvísindadcild tók til starfa
eru taldir á undan vegna þess að stúdentar fá skírteini sín
fyrr úr þeirri deild við útskrift. Getið er um úr hvaða deild
menn hafa lokið prófi sé um óvenjulega útskrift að ræða.
Einnig er tekið fram ef viðkomandi hefur tekið 60 ein-
ingar til viðbótar við B. A.-próf og eru þeir skráðir síðastir
við hverja útskrift. Þeirra er hvergi getið í skrám Háskól-
ans og því er ekki hægt að fá upplýsingar um námslok
þeirra nema úr námsferilsskrám deildarinnar en þar sem
þeir eru fullgildir bókasafnsfræðingar eru þeir að sjálf-
sögðu hér með líka.
Einnig er hér með listi yfir fjölda þeirra bókasafnsfræð-
inga sem útskrifast hafa á hverju ári.
Reynt hefur verið að gera þessa skrá eins nákvæma og
kostur er en ef einhverjar skekkjur leynast hér eru menn
beðnir að hafa samband við höfund greinarinnar. Ávallt er
best að hafa það sem sannara reynist og eru athugasemdir
því vel þegnar.
Tímaröð og heiti ritgerða
1964 (1)
1. Svanlaug Baldursdóttir: Skrá um sérprent í jarð-
fræði.
1967 (1)
2. Guðrún Gísladóttir: Skrá yfir erlend raunvísinda- og
tæknitímarit.
Bókasafnsfræðingar útskrífaðir
frá Háskóla íslands 1964-1989
Samtals
1964 1 1
1967 1 2
1968 3 5
1969 1 6
1970 1 7
1971 4 11
1972 2 13
1973 3 16
1974 3 19
1975 3 22
1976 5 27
1977 12 39
1978 12 51
1979 15 66
1980 14 80
1981 10 90
1982 8 98
1983 15 113
1984 7 120
1985 19 139
1986 14 153
1987 10 163
1988 6 169
1989 13 Samtals: 182 182
1968 (3)
3. Egill Halldórsson: Skrá um þýðingar á bandarískum
bókmenntum.
4. FríðaA. Sigurðardóttir: SkráumsérprentíHáskóla-
bókasafni um almenn málvísindi, örnefni, íslenska
málfræði, rúnir, norræn mál og gotnesku.
5. Indriði Hallgrímsson: Efnisflokkuð skrá yfir bækur
prentaðar á Akureyri 1853-1965 ásamt söguágripi
um prentverk þar.
1969 (1)
6. Jón Þ. Þór: Upphaf prentlistar á Austurlandi. Jón
Ólafsson og Skuldarprentsmiðjan.
1970 (1)
7. Aðalheiður Friðþjófsdóttir: Skrá um íslensk leikrit
1950-1959.
1971 (4)
8. Friðrik Guðni Þórleifsson: Tónlistardeild bóka-
safna. /2-71/
9. Súsanna Bury: Liðflokkun og sérkerfi með sérstöku
tilliti til SfB. /2-71/
BÓKASAFNIÐ
31