Bókasafnið


Bókasafnið - 01.03.1990, Page 37

Bókasafnið - 01.03.1990, Page 37
Kristín Indriðadóttir, bókavörður við Kennaraháskóla íslands Til þjónustu reiðubúinn - um stjórnun rannsóknarbókasafna Skipulagsbreytingar í bókasöfnum Víða í hinum vestræna heimi eru menn nú að velta fyrir sér nauðsyn skipulagsbreytinga í bókasöfnum, einkum háskólabókasöfnum og stórum rannsóknarbókasöfnum. Ástæðurnar eru margar. Orðið hafa allmiklar breytingar sem bregðast þarf við í söfnunum og við ýmsa örðugleika er að etja. Til dæmis má nefna: 1) Fjárveitingar til bókasafna hafa dregist saman en mikill þrýstingur er á söfnin að veita hefðbundna eða jafnvel aukna þjónustu með minni tilkostnaði. 2) Afkastageta safnanna er of lítil þrátt fyrir tölvuvæð- ingu margra þeirra og stöðugar tækniframfarir. 3) Upplýsingaflóðið vex og vex og vísindamenn hafa breytt aðferðum sínum við að fylgjast með. Spurningin er hvernig eigi að bregðast við? Mörg stór söfn eru sein í snúningum og hefðbundin stjórnunarleg uppbygging þeirra veldur því að þau ráða illa við þau verkefni sem nú liggja fyrir. Þó að flest söfn á íslandi séu smærri í sniðum en erlendis eiga allir þessir þættir að flestu leyti við hér. Þótt þau séu smá er þeim ætlað að þjóna heilli þjóð sem vill mæla sig á mælikvarða stærri þjóða. Sá kvarði verður því líka að gilda á þjónustu safnanna. í þessari grein langar mig að stikla á þeim þáttum sem mér þykja mestu máli skipta í stefnu og stjórnun rann- sóknarbókasafna til þess að söfnin verði góðar þjónustu- stofnanir og starfsmenn njóti sín sem best í starfi. Fyrst mun ég víkja nánar að þeim ástæðum sem ég hef nefnt að leiða þurfi af sér breytingar. Þegar þrengist í búi Krafan um hagræðingu og hámarksafköst Síðustu tvo áratugi hafa rannsóknarbókasöfn eflst óð- fluga víða um lönd en á allra síðustu árum virðist víðast hvar halla jafnhratt undan fæti. Ríkisstjórnir kreQast aðhalds og sparnaðar og eins og oft áður bitnar niður- skurður fyrst á menningunni. í Bretlandi hefur stjórnkerfi háskóla t.d. tekið stökkbreytingum sl. 4 ár í kjölfar svo- kallaðrar Jarratt-skýrslu (Burrows:1987). Kröfur eru gerðar um hagræðingu og hámarksskilvirkni. Samkvæmt skýrslunni er stefnt að því í háskólum að dreifa valdi og láta fara saman fjármálalega og faglega ábyrgð. Deildar- stjóri verður að reka sína deild sem heild og áætla jafnt kostnað fyrir rafmagni og kennslukostnað. Bókavörður- inn fær eina upphæð til þess að reka bókasafnið og stendur frammi fyrir því hvort fækka eigi fólki eða kaupa minna af efni. í mörgum háskólum hefur bókasafnið ekki komist sérstaklega á blað innan stjórnkerfisins og því margt óljóst um tengsl þess við háskólann. Eiga deildirnar e.t.v. að fá fé til bókakaupa í sinn vasa og geta þá ráðstafað því í eitthvað annað ef svo ber undir? Því hafa bókaverðir mótmælt, einkum m.t.t. tímaritakaupa, og hafa bent á að með því móti gætu þeir ekki lengur haft stjórn á mark- vissri ritaöflun. Hvaðan eiga peningarnir að koma? í framhaldi af þessum vangaveltum vaknar spurningin unr hvort safnið eigi að selja deildunum þjónustu, t.d. millisafnalán, tölvuleitir o.s.frv.? Og hvar á að setja mörkin? Þessu liafnar Toby Burrows og segir að kostn- aður við bókasöfnin sé blanda af venjulegum háskóla- deildakostnaði og þjónustukostnaði. Safnið styðji deild- irnar og eigi því að hafa sérstakan sjóð fyrir efni og bera kostnað af þjónustunni innan skólans. Sú gamla hefð að láta ekki borga fyrir lán milli bóka- safna er einnig á undanhaldi. Hinar greiðu samskiptaleiðir milli tölvuvæddra safna vekja að sjálfsögðu nýjar spurn- ingar um hvert menn snúi sér helst til að útvega efni. Á erfiðum tímum geta stór söfn einfaldlega dregið sig út úr samvinnu með því að taka gjald fyrir millisafnalán og minnka þannig álag á sinn safnkost og þar með geta þau fækkað starfsfólki. Á Norðurlöndum er líka rætt um greiðslu fyrir þjón- ustu bókasafna og að frumkvæði norrænu þjóðbókavarð- anna fer nú fram athugun á hvernig greiðslum í rannsókn- arsöfnum sé háttað. Gunnar Lager hefur nýlega reifað spurninguna um upplýsinga- og menningarhlutverk safna og misrnun almenningsbókasafna og þeirra bóka- safna sem fyrst og fremst þjóna rannsóknum og atvinnu- lífi. Það sé sjálfsagt að barn eigi frjálsan og ókeypis aðgang að Rauðhettu á almenningsbókasafni en ekki sjálfgefið að verkfræðingur eigi sama rétt á Joumal of Polymer Science. Frjáls aðgangur þurfi ekki endilega að vera ókeypis. Hugmyndir hafa komið fram, a.m.k. bæði í Bretlandi (Burrows:1987) og Danmörku (Vig:1989), um að ákveðið hlutfall af fjármunum til rannsókna rynni til bókasafna. Danska ríkisstjórnin stefnir að því að fjárfram- lög til rannsókna fjórfaldist á síðustu 15 árum aldarinnar. Aukningin verður einkum í einkageiranum eða í sam- vinnuverkefnum hans og hins opinbera. í áætlunum stjórnvalda er talað um að koma nýrri þekkingu á fram- færi til að efla atvinnulífið en engir peningar hafa af þessu tilefni verið eyrnamerktir bókasöfnunum. Því hafa danskir bókaverðir af því áhyggjur hvernig háskóla- og rannsóknarbókasöfn, sem hingað til hafa verið þeir aðilar sem séð hafa rannsóknum fyrir upplýsingum, geti brugð- ist við þessari þróun. Skilningur er fyrir því að menn þurfi að geta leitað í gagnabrunnum út um víða veröld en því gleymt að eftir er að útvega ritin. Á sama tíma er opin- berum stofnunum ætlað að spara. Hér verða vafalaust BÓKASAFNIÐ 37

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.