Bókasafnið - 01.03.1990, Síða 41
Margrét Loftsdóttir, forstöðumaður bókasafns Flensborgarskóla í Hafnarfirði
Bókasafn Flensborgarskóla
Bókasöfn í framhaldsskólum, notuð sem virkur þáttur
í skólastarfmu, eru fremur nýleg hér á landi. Ég
minnist þess þegar ég var í Menntaskólanum á Akureyri á
árunum 1958-1962 að þá var að vísu svokallað bókasafn í
skólanum. Bókasafn þetta var geymt í læstum glerskáp
niðri í kjallara. Nemendur gátu fengið bækur að láni einu
sinni í viku, að því er mig minnir, en bækur safnsins vöktu
lítinn áhuga nemenda sökum aldurs og efnis og þær
tengdust lítið eða ekkert skólastarfinu, enda hafa þær að
líkindum verið tilfallandi gjafir til skólans í gegnum tíð-
ina. Sum skólasystkini mín sem ég hefi rætt þetta við
muna ekki einu sinni eftir því að bókasafn hafi verið við
skólann.
Ég hygg að það sé ekki fyrr en um 1970 að bókasöfn í
framhaldsskólum fara að taka á sig þá mynd sem þau hafa
í dag, en þá á ég við að þau séu virkur þáttur í skólastarf-
inu. Breyting þessi tengist nýjum kennsluháttum og
breyttum framhaldsskólum.
Fyrstu bókaverðir í framhaldsskólum, eftir að bóka-
söfnin tóku að breytast, voru kennarar sem gegndu hluta
af vinnuskyldu sinni á bókasafninu. Það var ekki fyrr en
sumarið 1979 sem auglýst var fyrsta staða sérstaks bóka-
varðar með bókasafnsfræðimenntun við framhaldsskóla
hérlendis. Árið eftir, eða sumarið 1980, voru auglýstar
tvær slíkar stöður og var staða bókavarðar við Flensborg-
arskólann önnur þeirra.
Bókasafn Flensborgarskólans stendur á gömlum merg.
Skólinn sjálfur hélt upp á 100 ára afmæli sitt árið 1982.
Rætur bókasafnsins ná næstum því jafnlangt aftur í
tímann.
Bókasafnið Skinfaxi - en það var bókasafn nemenda í
Flensborgarskóla - var stofnað veturinn 1893-94 og eign-
aðist þann vetur 138 bindi bóka. Bókavörður var einn úr
hópi nemenda og hélst slíkt fyrirkomulag áfram meðan
bókasafnið starfaði. Sérstakur sjóður Bókasafnsins Skin-
faxa var stofnaður veturinn 1901-1902. Fyrstu peningar
sem runnu til sjóðsins voru tekjur vegna eins fyrirlestrar,
28 krónur og 35 aurar. Nemendur greiddu síðan sérstök
„tillög" í sjóðinn, þ.e. 1,00 kr. hver, en veturinn 1919-
1920 var upphæðin hækkuð í 3,00 kr. á nemanda. Þetta
kemur fram í Minningarríti Flensborgarskólans 1882-
1932 sem Guðni Jónsson, fyrrverandi nemandi skólans,
samdi. Guðni segir þar enn fremur að nemendur hafi alltaf
stutt bókasafnið með gjöfum og tekjum af skemmtunum
auk áðurnefndra framlaga. Eign sjóðsins árið 1932 var 955
krónur og 54 aurar.
Bókasafnið Skinfaxi er enn til 1932 og veit ég ekki hvenær
það hættir formlega störfum en greinilegt er að lítil starf-
semi hefur verið eftir það ef dæma má eftir núverandi
safnkosti.
Núverandi starfsemi Bókasafns Flensborgarskóla
Það var í kringum 1973 að safnið fór að gegna virku
hlutverki í skólastarfmu því þá tók einn af kennurum
skólans, Eyjólfur Guðmundsson, við stöðu bókavarðar.
Eyjólfur var síðan bókavörður til sumarsins 1980, síð-
asta árið ásamt Vigdísi Grímsdóttur. Hann hætti þá
störfum fyrir aldurs sakir og var auglýst efir bókaverði
með bókasafnsfræðimenntun, eins og áður er getið.
Haustið 1980, þegar ég hóf störf, var bókasafnið í
nokkuð góðu húsnæði miðað við það sem þá tíðkaðist.
Safnið var á gamla sal skólans og var það tvískipt, þ.e.
bókasafn sem var um 50 nr og lesstofa um 100 nr. Fljót-
lega kom í ljós að slíkt fyrirkomulag var ekki heppilegt
vegna þess að lesstofan var notuð sem samkomusalur
nemenda en ekki til nánrs og voru safnið og lesstofan því
sameinuð þannig að nemendur komu að breyttu safni
haustið 1981.
Safnið starfaði svo farsællega, að mínum dómi, í þessu
húsnæði í um það bil 6 ár. Þá fór að þrengja að því og kom
það niður á lesaðstöðu eftir því sem bókakostur batnaði
og kom að betri notum fyrir starfsemi skólans. Veturinn
1986-1987 var farið að ræða það í skólanum að þörf væri á
meira húsnæði fyrir safnið en vandi var á höndum hvar
slíkt væri að fá. Þá datt mönnum í hug að kannske mætti
nota þáverandi hátíðarsal skólans sem bókasafn en salur
þessi hafði alltaf verið fremur óheppilegur sem slíkur af
ýmsum ástæðum. Ósk um breytingu kom fyrst fram í
fjárhagsáætlun skólans haustið 1987. í fjárhagsáætlun
skólans fyrir árið 1989 var flutningur bókasafnsins gerður
að forgangsverkefni vegna endurbóta á skólahúsnæði og
voru bæjaryfirvöld strax afar hlynnt þessu. Veitt var sér-
stök fjárveiting í þessu skyni en auk þess sem hátíðarsalur-
inn, sem er 320 nr að stærð, var innréttaður sem bókasafn
Greinarhöfundur ávarpar gesti við opnun safnsins í nýju hús-
næði.
BÓKASAFNIÐ
41