Bókasafnið


Bókasafnið - 01.03.1990, Side 43

Bókasafnið - 01.03.1990, Side 43
Ráðstefnuhópur Félags bókasafnsfræðinema 14. samnorræna ráðstefna bókasafnsfræðinema Félag nema í bókasafns- og upplýsingafræði við Háskóla íslands hélt 14. samnorrænu ráðstefnu bókasafns- fræðinema helgina 27.-29. október 1989 í Reykjavík. Þátttakendur í ráðstefnunni voru 51, þar af voru 43 frá hinum Norðurlöndunum. Fjöldi þátttakenda hefur venjulega verið um 50 og vorum við aðstandendur ráð- stefnunnar ánægðir með að þátttaka skyldi haldast sú sarna, þrátt fyrir að um lengri veg væri að fara. Undirbúningur Forsaga þess að ráðstefnan var haldin hérlendis er sú að á ráðstefnunni í Finnlandi 1987komfram mikill áhugi á að halda næstu ráðstefnu á íslandi. íslensku þátttakendurnir báðust undan en lofuðu að vinna að því að ráðstefnan yrði á íslandi 1989. Þegar heim kom var málið kynnt fyrir öðrum nemum og var þá ákveðið að verða við þessari ósk. Fyrsta skrefið í undirbúningi var að senda fleiri fulltrúa en áður á ráðstefnuna sem haldin var í Osló til þess að sem flestir hefðu reynslu af þátttöku og þessir fulltrúar urðu sjálfskipaðir í undirbúningsnefnd. Oslófararnir voru Anna Elín Bjarkadóttir, Ástþrúður Sif Sveinsdóttir, Guðrún S. Gísladóttir, Margrét I. Ásgeirsdóttir, Ragnheiður Kjærnested, Regína Eiríks- dóttir, Sjöfn Hjörvar og Sveinbjörg R. Sumarliðadóttir. í Osló var lokaákvörðun tekin; næsta ráðstefna yrði á ís- landi og umræðuefni hennar yrði um siðfræði bókasafns- fræðinnar og um greiðslur fyrir bókasafnsþjónustu. Þegar heini kom hóf hópurinn undirbúningsstörf. Skipulag samnorrænna ráðstefna nema er hefðbundið. Dagskrá er í stórum dráttum eins. Gert er ráð fyrir að matur og gisting sé innifalið í ráðstefnugjöldum, þeim sé haldið í lágmarki og ætlast er til að gestgjafar standi straum af öllum umframkostnaði. Þessar ástæður, ásamt því að við vildum halda ráðstefnuna með reisn, leiddu til þess að undirbúningsvinna var mikil. Fyrsta skrefið var að gera fjárhagsáætlun og leita upplýsinga um ráðstefnustað, gistingu og matarkostnað. Allt skipulag miðaði að því að halda kostnaði í lágmarki án þess að það kænii niður á gæðum. Við höfðum okkur öll frammi við fjáröflun, t.d. með blómasölu og styrkumsóknum. Ákveðið var, að vand- lega íhuguðu máli, að ráðstefnan yrði haldin í húsnæði Háskóla íslands, sem stóð til boða okkur að kostnaðar- lausu. Við lögðum áherslu á að fá Odda þar sem það hús- næði tilheyrir okkar deild, en vegna kennslu urðum við að fá inni í Norræna húsinu á föstudeginum. Drög að dagskrá og umræðupunktum lágu fyrir í ágúst og voru þeir sendir til hinna skólanna. Þá þurfti að útvega fyrirlesara og vilyrði fyrir skoðunarferðum. Talsverður tími fór í bréfaskipti urn ýmis atriði, eins og flugfargjöld, möguleika á ferðalögum og hvernig útbúnað þátttak- endur þyrftu að hafa með sér. Eftir að upplýsingar um þátttakendur tóku að berast og línur skýrðust var farið að ganga frá öllum lausum endum. Ráðstefnan Stóra stundin rann svo upp föstudaginn 27. október þegar ráðstefnan var sett í Norræna húsinu. Dr. Sigrún Klara Hannesdóttir opnaði ráðstefnuna með fyrirlestri um fyrirkomulag náms í bókasafnsfræði á íslandi. Því næst fluttu fulltrúar hvers skóla stuttan annál liðins árs, ásamt erindi unr umræðuefnið. Eftir hádegisverð var haldið í skoðunarferð í Stofnun Árna Magnússonar. Þar tók Einar G. Pétursson á móti hópnum og leiddi fólk í allan sannleika um íslensk handrit. Þá var haldið í Landsbókasafn íslands. Finnbogi Guðmundsson landsbókavörður tók á móti hópnum, sagði sögu safnsins og sýndi húsakynni. Þaðan var haldið í Þjóðarbókhlöðuna þar sem Finnbogi, ásamt Einari Sig- urðssyni háskólabókaverði, kynnti framtíðina í íslenskum bókasafnamálum. Loks fylgdi Einar okkur í Háskóla- bókasafn þar sem safnið var kynnt og skoðað. Að loknum ströngum degi var farið í sund og kvöldinu ráðstafaði hver og einn að vild. Á laugardag fyrir hádegi voru fluttir fyrirlestrar um sið- fræði. Mikael M. Karlsson Ph.D. flutti almennan fyrir- lestur um siðfræði og Anna Torfadóttir bókasafnsfræð- ingur um siðfræði í bókasöfnum. Því næst flutti Rósa Jónsdóttir bókasafnsfræðingur fyrirlestur um undirbún- ing að þjónustugjöldum í bókasafni Landspítala íslands. Eftir hádegi hófust hópumræður. Umræðuhópar voru 10, þar af tveir þar sem umræður fóru fram á ensku. Hver hópur fékk ákveðna umræðupunkta til að vinna úr, þeir voru: 1. Bókasöfn í upplýsingasamfélagi. 2. Bókasöfn í samkeppni við einkafyrirtæki á sviði upp- lýsingaþjónustu. íslensku nemarnir gáfu „gestabók “ sem þátttakendur rádstefna í framtíðinni munu skrá sig í. BÓKASAFNIÐ 43

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.