Dagur - 08.11.1997, Síða 1
Söngkonan Eva
Ásrún Alljertsdóttir
á von á sinu fjórða
bami.
33
Stíllinn á nýju
plötunni hjá Siggu
Beinteins.
Valgerður
Hrólfsdóttir er
nýr formaður
leikhúsráðs LA.
23
Eggert feld-
skeri berst fyr-
ir selveiðum.
„Ég sá Halldór fyrst árið 1936 þegar ég var í sumarfríi á Laugarvatni. Ég sat við
hliðina á honum við matarhorðið. Framreiðslustúlkan setti disk á borðið hjá hon-
um. Það var skarð í diskinum og Halldór tók diskinn, lagði hann upp við borð-
röndina, rétti hann síðan stúlkunni og sagði: „Annan disk, takk“," segir Auður
Laxness.
Auður fjallar um lífið með Halldóri Laxness í opnuviðtali í dag og segist meðal
annars alltafhafa haldið sjálfstæði sínu í sambúðinni og samstarfinu við Halldór.
Hún kveðst hafa verið lotningarfull og aldrei haft sig íframmi í hópi fólks. Hún
hafi verið ein í tíu ár og finnst hún hafa þroskast mjög á þeim árum. Hún hafi
þó ekki fómað sérfyrir manninn sinn. Þvert á móti hafi sér hlotnast margskon-
ar gæfa.
Auður ræðir einnig veikindi Halldórs og segir að heilsan hafi farið smám sam-
an. „I átta ár fór ég varla út fyrir hússins dyr, heldur gætti hans. Svo varð ég að
senda hann frá mér, hann þurfti umönnun sem ég gat ekki veitt honum. En ég
heimsæki hann á hverjum degi. Hann er alltaf glaður og í góðu skapi. “
Auður talar um Halldór í þátíð og kveðst líta svo á að hún sé búin að missa
hann. „Égfer til hans, kyssi hann og held í höndina á honum, en sjálfur er hann
farinn." Sjá bls. 24-25.
Vegmúli 3 • 108 Reykjavik • Sími 588-7200 • Fax 588-7201
Gírmt: nÉMif ■
Veitum hagstæð
lán til kaupa á
landbúnaðarvélum
Reiknaðu með
rSlþ SP-FJÁRMÖGNUN HF
Pað tekur aöeins
eintt ■ |
■virkan
dag
aö kotua póstinum
þínum til skila
+