Dagur - 10.04.1999, Blaðsíða 6
LÍFÍÐ í LANDINU
LAUGARDAGUR 10. APRÍL 1999
í viðtali ræðir Össur
Skarphéðinsson um
stöðu og framtíð Sam-
fylkingarinnar, Evrópu-
mál og efnahagsmál og
hrokafullan Sjálfstæðis-
flokk.
„Sú kirkja sem ég vil predika i á að
vera breið kirkja þar sem mönnum
leyfist að hafa mjög mismunandi skoð-
anir á fagnaðarerindinu." myndir: þök
- Það er varla
hægt að hrápa
húrra fyrir 29
prósenta fylgi
Samfylkingar í
skoðanakönnun-
um, Ossur minn?
„Nei, enda er
ég arfafúll. Við
erum 35-40%
hreyfing og get-
um engu kennt um þetta fall
nema okkur sjálfum. En ég held
að þetta sé heppilegur tímí til að
fá könnun eins og þessa sem
heldur þungt spark í hinn óæðri
enda.
Eg held að það mikla gengi
sem við hlutum í skoðanakönn-
unum í byrjun hafi borið vott
um fögnuð meðal fólks, vegna
þess að þarna kom fram afl sem
var þess megnugt að hrjóta upp
hið staðnaða flokkakerfi. Þegar
skammvinnu hveitibrauðsskeiði
lauk tók fólk eðlilega að gera
skarpari kröfur til okkar. Það vill
fá að sjá málefni, og ég lofa að
fólk mun ekki fara varhluta af
þeim á næstu dögum. Kosninga-
barátta okkar hefst formlega í
dag með stórfundi í Háskóla-
bíói. Eftir það munum við með
markvissum hætti koma málefn-
um okkar til skila af krafti og
þunga.“
- Nú eruð þið ásökuð um að
hafa enga stefnu í utanríkismál-
um.
„Það er óskhyggja nokkurra
kaldastríðsgemlinga í Sjálfstæð-
isflokknum sem halda því fram
að afstaða okkar til Nató sé tví-
bent. Það er alveg kristaltært að
ef við verðum í ríkisstjórn næstu
fjögur árin munum við hvorki
fara úr NATO né herinn fara úr
landi.“
- Hver er skoðun þín á loftárás-
um NATÓ á Júgóslavíu?
„Það vill enginn styrjöld. En
umheimurinn gat ekki setið hjá
og látið blóðhundinn Milosevich
komast upp með þjóðernis-
hreinsanir. Það er engum vafa
undirorpið að NATO gerði rétt í
því að hefja loftárásir á
Júgóslavíu. En undirbúningur-
inn var slakur og hinn hernaðar-
legi tnðbúnaður her þess glögg
merki að bandalagið gerði sér
ekki grein fyrir til hvaða
grimmdarráða Milosevich myndi
grípa. Það er ekki nóg að dunda
sér við að skjóta flaugum utan
úr öryggi Adríahafsins ef engin
ráð eru til stöðva framsókn her-
véla sem notuð eru til að hrekja
fólk frá heimilum sínum. Það er
fyrst núna sem Nató er mætt
með tæki sem svara því. Eftir-
leikurinn hefur auðvitað verið í
stíl við það hreinlega hörmuleg-
ur... En maður spyr sjálfan sig:
Var einhver önnur leið? Ég tel
það ekki.“
Einlægur Evrópusinni
- Vtkjum að viðhorfinu til Evr-
ópusambandsins. Ef þú mættir
ráða, væru áhersluatriðin öðru-
vtsi en þau eru í stefnuskrá ykk-
ar?
„Ég er einlægur Evrópusinni.
Ég tel að við eigum heima (
samfélagi Evrópuþjóða og sú
skoðun mín hefur orðið æ stað-
fastari. Ég er raunar þeirrar
skoðunar að vegna pólitísks
heimóttarskapar Sjálfstæðis-