Dagur - Tíminn Akureyri - 23.08.1997, Side 9
^Dítgur-®mTOtn
Laugardagur 23. ágúst 1997 - 21
LIFIÐ I LANDINU
„Þær hafa stjórnað mér með
mildinni. Vald kvenna er mest
þegar þaer hafa rænu á því að
fara þá leiðina."
Hvað er það í fari kvenna
sem heillar þig mest?
„Ætli það sé ekki einkum
hvað þær eru ólíkar okkur körl-
unum, miklar tilfinningaverxn-,
sem hugsa allt öðruvísi en karl-
ar, en komast samt oft að sömu
niðurstöðu og þeir. Ég er alltaf
að þykjast vera rökhyggjukarl
sem hakkar sig í gegnum flókin
ákvarðanatré, eins og það heit-
ir víst á fagmáli, til að komast
að niðurstöðu. Það getur tekið
viku til hálfan mánuð. Síðan
legg ég máhð fyrir Steffí og hún
er tvær mínútur að komast að
niðurstöðu. Þetta getur verið
ákaflega þreytandi.“
Þægindi kommúnism-
ans
Snúum okkur frá konum og að
stjórnmálum. Þú hefur verið
tengdur Sjálfstœðisflokknum,
en ertu ekki bara krati sem í
hjarta sínu styður Al-
þýðuflokkinn en kýst hann þó
ekki?
„Ég er fæddur inn í Sjálf-
stæðisflokkinn og þar er mikil
jafnaðarmennska. Annars hefur
Þröstur Ólafsson alltaf sagt við
mig það sama og þú ert að
spyrja að núna.“
Af hverju hefur Þröstur ekki
sannfœrt þig?
„Heyrðu, þegar við Þröstur
kynntumst var hann rauðasti
kommi í bænum. Við vorum
einu sinni að halda upp á að við
vorum búnir að ljúka verki fyrir
Magnús Kjartansson. Þar voru
allmargir kommar og eitthvað
sem ég sagði vafðist fyrir þeim
svo þeir sneru sér til Þrastar og
spurðu: „Þröstur, hvernig svar-
ar maður þessu?“ Og Þröstur
hugsaði sig aðeins um og fór
síðan með þuluna fyrir þá úr
fræðunum. Það var eins og
minn gamli yfirboðari og sam-
starfsmaður í áratugi, Ragnar
Jónsson í Smára, sagði: „Það
var svo þægilegt að vera komm-
únisti, maður þurfti aldrei að
hugsa. Það var búið að hugsa
allt fyrir mann. Eina sem þurfti
að gera var að fletta upp á rétt-
um stað.“
„Núverandi út-
fœrsla kvótakerfis-
ins hefur valdið
miklu ranglœti. Það
er sárt að sjá slíkt
ranglœti þrífast, en
það þrífst vegna
þess að sérhags-
munagœslan er svo
sterk. Og því miður
taka alþingismenn
enn þátt í að
vernda þetta rang-
lœti. “
Varstu aldrei uppreisnar-
maður?
„Jú, en ég daðraði aldrei við
kommúnisma. Ég hef hins veg-
ar stundum látið í mér heyra
þegar mér hefur þótt þjóðfé-
lagsuppbyggingin vera komin á
villigötur."
Hvað finnst þér helst að í
þjóðfélagi nútímans?
„Núverandi útfærsla kvóta-
kerfisins hefur valdið miklu
ranglæti. Það er sárt að sjá slíkt
ranglæti þrífast, en það þrífst
vegna þess að sérhagsmuna-
gæslan er svo sterk. Og því mið-
ur taka alþingismenn enn þátt í
að vernda þetta ranglæti. Sjáðu
bara hversu vel tekst að rugla
alla umræðuna með því að
blanda saman stjórnun fisk-
veiðanna, sem er alveg lífs-
nauðsynleg, og kvótakerfið er
sjálfsagt skásta leiðin til þess,
og svo því ranglæti að úthluta
kvótum, aðganginum að þessari
eign þjóðarinnar, án þess að
gjald komi fyrir. Auðlindaskatt-
ur er greiddur á hverjum degi á
íslandi í dag, en hann er bara
ekki greiddur til eigenda auð-
lindarinnar."
Er það ekki þinn flokkur sem
verndar og viðheldur því kerfi?
„Einhverjir þar, jú. En líka
harðir kommúnistar. Það eru
engir eins mikið afturhald og
sannfærðir kommúnistar. Sjálf-
stæðismenn munu hafna þessu
kerfi löngu á undan þeim.“
Finnst þér íslendingar eiga
jafn baráttuglaða og kröftuga
stjórnmálamenn og hér áður
fyrr?
„Ég held að endalok kalda
stríðsins hafi sett stjórnmála-
menn í vissa kreppu. Hin heift-
arlega barátta milli austurs og
vesturs krafðist þess að menn
sýndu hvað í þeim bjó. Þeir sem
stóðu réttu megin sigruðu. Nú
er eins og stjómmálamenn séu
í vandræðum með að finna sér
málstað til að berjast fyrir.“
Er þá ekkert lengur eftir fyr-
ir þá til að sigra?
„Jú, það erfiðasta, að sigra
sjálfan sig.“
Gunnar Thoroddsen
og Skálda
Hvaða íslenskum stjórnmála-
manni sem þú hefur kynnst hef-
ur þú haft mestar mætur á?
„Bjarna Benediktssyni. Hann
var heilsteyptur maður og hvik-
aði hvergi. Heiðarleiki frá hjart-
ans rótum einkenndi hann um-
fram annað. í stjórnmálabar-
áttu kalda stríðsins stóð hann
heill meðan ýmsir ágætir menn
trufluðust og rugluðust.
Svo hafði ég mikið dálæti á
Magnúsi Kjartanssyni. Hann
var afskaplega sjarmerandi og
skemmtilegur maður. Ég held
mikið upp á ritgerðarsafn hans
Elds er þörf, sem hann gaf mér
á fimmtugsafmæli mínu, ekki
vegna þess að hugmyndafræðin
í bókinni sé svo góð, heldur
vegna vísu sem hann orti til
mín og skrifaði í bókina:
Trópíkönu teygar þjóð,
tuttlast fé í Davíðs sjóð.
Ég rétti í staðinn ráðin góð,
renni þau í merg og blóð.
Annar stjórnmálamaður sem
ég vil nefna er Gunnar Thorodd-
sen. Líkt og Magnús bjó hann yf-
ir miklum persónutöfrum."
Fannst þér sjarmi Gunnars
skila sér til þjóðarinnar?
„Ekki nema einstöku sinn-
um. Gunnar var feikna vel gef-
inn og stálminnugur. Ég man
enn eftir því þegar hann, sem
borgarstjóri, tryggði Sjálfstæð-
isflokknum stórsigur í borgar-
stjórnarkosningum með
frammistöðu sinni í
útvarpskappræðum. Þá komu
þeir upp hver af öðrum, rauð-
liðarnir, og gerðu að umræðu-
efni hina bláu bók Sjálfstæðis-
flokksins sem hafði að geyma
kosningaloforð flokksins. Þeir
tóku þessa fjögurra ára gömlu
bók og tættu hana í sig. Þeir
hættu fljótlega að kalla hana
bláu bókina heldur kölluðu
hana hvað eftir annað Skáldu.
Þegar þeir höfðu skammast óg-
urlega steig Gunnar Thorodd-
sen seinastur manna í pontu og
sagði: „Ég ætla að þakka öllum
þeim sem hér hafa talað fyrir
þetta gífurlega hrós. Því svo
segir Halldór Laxness um bók-
ina Skáldu: „Bók bóka og eðal-
steinn eðalsteina, merkust bóka
sem skrifuð hefur verið á norð-
urhveli jarðar." Hann þurfti
ekki að segja meira, hann var
búinn að jarða andstæðingana.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 10
borgarfulltrúa af 15.
í dag eru tveir eftirlætis-
menn í mínum flokki Davíð
Oddsson og Þorsteinn Pálsson.
Ég þekki Davíð miklu minna, en
vann með Þorsteini í mörg ár.
Mér finnst mikið til þeirra
koma. Halldór Ásgrímsson er
líka afar traustvekjandi maður.
Það sem hann tekur að sér
klárar hann og það þarf ekki að
hafa áhyggjur af því meir. Síðan
verð ég að segja eins og er, að
ég mun sjá eftir Jóni Baldvini
úr pólitík. Hann er sérlega vel
gefinn maður.“
Brenglað gildismat
Svo við höldum áfram að tala
um stórmenni þá voruð þið
Gvendur jaki miklir mátar.
Hvað heldurðu að hann hafi
séð í mönnum eins og þér og Al-
bert?
„Ja, nú veit ég ekki, því við
Albert vorum svo ólíkir, en ég
sá í Guðmundi alveg sérlega
skemmtilegan mann, en um-
fram allt góðan mann. Hann
var maður sem ekkert aumt
mátti sjá og gaf því miður oft
meira fé en hann hafði ráð á.“
Skammaði hann þig aldrei
fyrir að vera ríkur?
„Nei, hann hefur ábyggilega
vitað, rétt eins og ég, að fast-
eignir sem hafa má af manni
eru ekki ríkidæmi.“
Rœdduð þið stjórnmál?
„Jú, við gerðum þó nokkuð
af því og það alversta sem ég
gat sagt við hann var: Þið krat-
arnir... Þá fór hann alveg úr
sambandi og þverneitaði.“
Ég hef alltaf talið hann einn
af okkur.
„Það er eins gott að þú
nefndir ekki þann grun þinn við
hann.“
„Því miður er það
svo á íslandi í dag
að mönnum er allt-
of oft ekki greidd
laun eftir því hvaða
gagn þeir gera,
heldur hvaða skaða
þeir geta valdið. “
Nútímasamfélagið minnir
stundum óþœgilega á kaldr-
analegt skrifstofubákn. Held-
urðu að tœkniöldin hafi haft
þau áhrif á okkur að við séum
að missa sjónar á raunveruleg-
um verðmœtum?“
„Gildismat okkar íslendinga
er brenglað. Menn eru nánast
eingöngu metnir eftir því hve
mikla peninga þeir eiga. Ef
maður er ríkur er hann álitinn
góður maður og mikils virði. Að
sama skapi er litið niður á þá
sem ekki eru fjáðir en gegna þó
þýðingarmiklum störfum sem
ekki eru metin í launum sem
skyldi. Ég nefni sem dæmi
kennara, presta, sjúkraliða og
aðrar heilbrigðisstéttir, svo og
íjölmargar aðrar stéttir. Því
miður er það svo á íslandi í dag
að mönnum er alltof oft ekki
greidd laun eftir því hvaða gagn
þeir gera, heldur hvaða skaða
þeir geta valdið.“
Hvað áttu við?
„Mitt er að yrkja, þitt að
skilja."
Hefur listin mikið gildi í lífi
þínu?
„Já, sérstaklega tónlistin.
Hún færir mér sálarró og ég
veit fátt skemmtilegra en að
hlusta á tónhst. Bach, Mozart
og Beethoven og svo Louis
Armstrong og Fats Waller eru
mínir menn.“
Það er traust val, en ekki
ýkja frumlegt.
„Ékki frumlegt, það er alveg
rétt, en ég ætla að halda mig
við það þangað til eitthvað
betra býðst. Á sama hátt stend
ég með Sjálfstæðisflokknum þar
til eitthvað betra býðst. Og ég
skal segja þér að ég held að það
verði seint.“
Hvað ertu að fást við þessa
dagana?
„Ég er að vinna að verkefni
fyrir ríkisstjórnina, sem ég má
ekki segja frá hvað er. Meira
get ég ekki sagt þér. Það verður
opinbert innan árs, eða svo.“
Að eiga tveggja kosta
völ
En svo einn góðan veðurdag
verður öllu lokið. Hrœðistu
dauðann?
„Sú hræðsla er ekki til í mér.
Ég trúi því ekki að maðurinn
hætti að vera til við dauðann.
Það gerir lífið svo tilgangslaust.
Og lífið á að hafa tilgang."
Hvaða tilgang?
„Að nota talenturnar á sem
skynsamlegastan og bestan
hátt, helst þannig að maður
hafi gert heiminn örlítið betri
þegar maður kveður hann.“
Hverju hefðirðu viljað breyta
í eigin lífi?
„Ég rak fyrirtæki og þurfti
oft að taka ákvarðanir sem
vörðuðu framtíð þess. Ég átti
einu sinni sem oftar tveggja
kosta völ, velti báðum mögu-
leikum rækilega fyrir mér og
tók svo ranga ákvörðun. Fyrir-
tækið er til í dag, en er í hönd-
um nýrra eigenda og ég vinn
þar ekki lengur. Enn í dag
halda þessi mistök fyrir mér
vöku.
Ég er ekki sáttur við sjálfan
mig. Ég átti kost á að velja rétt,
en ég valdi rangt og brást með
því mörgum, sem höfðu trúað
mér fyrir eignum sínum. Sekt-
arkenndin vegna þess mun
sjálfsagt fylgja mér í gröfina. Ég
reyni að lifa með því, en ég er
ekki sáttur við það.“
En ertu sáttur við lífið?
„Já. Það er ábyggilega ekki
til ríkari maður á íslandi en ég.
Ég er við góða heilsu. Ég á ynd-
islega konu, sex mannvænleg
börn og fullt af barnabörnum,
vini sem aldrei brugðust, er í
áhugaverðu starfi og vinn með
skemmtilegu og hjálpsömu
fólki. Sýndu mér mann sem er
ríkari en ég.“