Dagur - Tíminn Akureyri - 23.08.1997, Qupperneq 20
32 - Laugardagur 23. ágúst 1997
LIF OG LAND
®agur-®tmmn
Fluguveiöar að sumri (32)
Margt býr í djúpinu
*
Aleið í veiðitúr fyrir nokkr-
um árum. Ók um Hval-
Qörðinn eldsnemma að
morgni, blankalogn, fjörðurinn
eins og hann gerist fallegastur:
æður og mávar um allan rjóma-
stUltan sjó, í fjörunni tjaldur og
í hlíðunum lambær - enn ekki
vaknaðar alveg til lífsins sem
var að geispa af sér nætur-
kyrrðinni. Stöðvaði til að njóta,
horfði á spegilsléttan sæinn. Þá
glumdi við dynkur utan af firð-
inum og strókur gaus upp. Svo
hljóðnaði allt þegar skelkaðir
fuglar náðu áttum. Var það sel-
ur sem náði í stórlax í yfirborð-
inu? Smáhveli á eftir sænauti?
Ekki vissi ég það, en „sá að
fleiri myndu á veiðum en ég“;
sannaðist nú hið fornkveðna úr
veiðisögum.
Ógnandi tundurskeyti
Ég er ekki búinn að tæma
sagnasjóðinn frá því þegar ég
var nokkra daga í Vatnsdalsá
um daginn. Eins og dyggir les-
endur muna voru kvöidin und-
urfögur niður við ósinn og
spegilsléttur vatnsflöturinnn
endurkastaði miðnætursólinni
til okkar við Akurshólma. Vatn-
ið var svo hljótt. Og stillt. Ekk-
ert bærðist í kvöldinu. Senn
hlyti bleikjan að vaka. Þá kom
hann. Fyrir framan okkur reis
bunga á vatnsborðinu og svo
rák sem lyftist og þokaðist
áfram upp með hólmanum: sel-
urinn var mættur. Hann gaf í og
kom á fleygiferð eins og þögult
ógnandi tundurskeyti rétt undir
vatnsborðinu, ýtti fleyg á undan
sér sem strikaði vatnið, tók
krappa beygju; svo hvarf þessi
ógnvaldur silunganna niður í
álinn og vatnið sléttist. Skömmu
síðar tóku bleikjin-nar að
skreyta flóðið með hringjum
hér og þar, miklu utar.
Þessi sending af hafí minnti
mig á skaðvaldinn sem stundar
Elliðavatn í grennd við kjörstað
minn: á lognkyrrum kvöldum
sér maður hvernig hann kemur
að landi eins og smálegur flar-
stýrður leikfangakafbátur, gerir
mjóa rák í vatnið sem breiðist
hægt úr og deyr upp við fjöru-
stein. Svo kemur hann úr kafi
þegar nær dregur og vippar sér
upp á stein með andarunga
kjaftinum, skoppar á næsta
stein og er horflnn undir bakka
- en skilur eftir dauft strik sem
hverfur í húmið sem speglast á
vatninu.
Varð ekki um sel
Furðuleg mjög þótti mér uppá-
koman við Akurshólma kvöldið
eftir að selurinn heimsótti mig
við veiðarnar. Stóð á örgrunnu
vatni, tók í miðjan mjóalegg, á
hörðum sandbotni, og eins og
venjulega upptekinn við gamla
ósiði: kastaði langt og vítt og
breitt og þandi mig á alla kanta
í þessu líka friðsama logni. Ekki
tók vel. Samt voru bleikjur á
ferð, það sá ég, stxmdum
kraumaði vatnið á stöku stað
þegar torfa athafnaði sig í yfir-
borðinu - en var horfín með
það sama. Ég vissi ekki alveg
hvað ég átti að sýna henni, fékk
lítil viðbrögð. Nú var ég með
smáflugu undir sem ég dró
hægt að mér í yfirborðinu, og
einmitt í þessari umgetnu and-
rá var ég búinn að kasta langt
út, flugan rétt lent og línan
hvarf í glampann af kvöldsól-
inni. Þá kom það. Miklu nær
mér en þar sem flugan lenti
reis breið bunga á vatninu.
Vatnið bara eins og lyftist.
Undraði mig nokkuð.
Svo færðist hún til mín með
vaxandi þunga þessi bunga.
Þetta var ekki svo langt frá að
ég hefði ráðrúm til að ímynda
mér sendingu að handan, eða
Ósýnileg var hún mér þessi
arða sem hann var að ná í með
svona miklum látum, en það er
ekki að marka. Sjálfsagt hef ég
verið búinn að standa nógu
lengi kyrr til að hann tæki ekki
eftir mér í þessari hörðu eftir-
sókn eftir silungah'fsins gæð-
um? Eða hafði ég rótað upp frá
botninum einhverju sérlega
ljúffengu kvikindi sem hann
VAR bara að ná í? Og hvílíka
sjón má þessi fiskur hafa, koma
alla þessa leið eftir smápöddu?
Þið verðið að fyrirgefa mér
þótt ég hafi ekki kastað í bili.
Ég var greinilega að gera eitt-
hvað sem fiskurinn vildi ekki,
og fiskurinn að gera eitthvað
sem ég skildi ekki. Það var
þessi taka sem ég varð vitni að:
fyrst þetta offors sem ég hefði
Var hann að ógna mér, reka mig burt frá elskunni sinni, þessi rauðleiti
krókbúni hængur sem náttúran hafði búið til að vernda óðal sitt? Það
munum við aldrei vita.
skrímsli, en nógu nærri til að ég
gæti ímyndað mér sel. Þetta sá
ég svona 10-12 metra frá mér.
Og varð ekki um sel, því nú
stefndi þessi rák beint á mig,
undraskjót í för og ýtti frá sér
öldu í átt til mín. Því hraðar
sem hún kom því betur sá ég
hve hún mjókkaði, rákin, og
þar með hvarf mér sú hræðsla
úr hug að selurinn væri kominn
til að taka mig eins og laxinn í
Hvalfirði forðum. En þessi
skepna stefndi beint á mig.
Ógnandi. Því verr leist mér á
það sem mig nú uggði að væri
minkur í ægilegum vígahug að
rákin hraðfærðist nær, mun
hraðar en lesandi þessarar frá-
sagnar getur lesið. Og ég lýg því
ekki: þegar þetta kvikindi úr
djúpinu sem nú var komið á
grunnið átti aðeins 2-3 metra
að mér á fullri ferð, já, ég lýg
því ekki: þá rann mér kalt vatn
milli skinns og hörunds.
Ég vissi ekki hver djöfullinn
væri á ferð. Þetta gerðist allt
svo hratt og var með slíkum
ólíkindum að ég hafði ekkert
ráðrúm til að bregðast við. Og
þurfti þess ekki. Skepnan sem
nú kom upp beint fyrir framan
mig -svo nálægt að ég hefði get-
að sett á hana krossmark - rak
hausinn upp, krókurinn á neðri
skoltinum gaf frá sér lítinn
smell um leið og glampaði á
rauðan kvið; og svo hvarf
hlussu bleikjuhængur og var
farinn.
Fiskur með arnarsjón
Á svona stundum þarf maður
vitni. En um þetta atvik bera
vatnadísirnar einar vitni. Hvað
var hann var eiginlega að gera
þessi bleikjuhængur með því að
æða svona langa leiðbeint að
mér til að hrifsa eina litla
ósýnilega flugu, lirfu eða fló?
ekki orðið var við nema af því
að ég stóð í snertifjarlægð og á
svo grunnu vatni. Og svo þessi
taka þegar rígvænn fiskur kom
og tók smápöddu í yfirborðinu -
án þess að gára vatnið!
Enginn hringur. Ekkert skvamp.
Nánast alveg ósýnilegt. Það
eina sem heyrðist var örlítill
smellur eins og ungbarn að
totta snuð. Var ekki allt flóðið
kraumandi í svona tökum?
Ósýnilegu hljóðlausu stóráti sil-
unga í yfirborðinu? Þetta var
þess virði að spá í.
Um kvöldið sagði ég veiðifé-
lögum í húsinu frá þessari
merkilegu reynslu.
„Já, þú hefur bara misst
þurrflugu úr brjóstvasanum!"
sögðu þeir hlægjandi. Ekkert til
að spá í. Ekkert til að spá í? Var
hann kannski ekkert að éta
flugu, fló eða lirfu? Var hann að
ógna mér, reka mig burt frá
elskunni sinni, þessi rauðleiti
krókbúni hængur sem náttúran
hafði búið til að vernda óðal
sitt? Það munum við aldrei vita.
Tilboð
á sérblandaðri
innimálningu
gljástig 10
Verð:
1 lítri 499
4 lítrar 1996
10 lítrar 4990
Þúsundir lita i boði
KAUPLAND
KAUPANGI
Sími 462 3565 • Fax 461 1829
AKUREYRARBÆR
Útboð
Tilboð óskast í uppsteypu á sökklum, kjallaraveggjum
og gólfplötu 8. áfanga VMA.
Áfanginn er um 1000 fm2. að grunnfleti + kjallari 188
fm2.
Útboðsgögn verða seld hjá Verkfræðistofu Norður-
lands, Hofsbót 4, 600 Akureyri, 26.-29. ágúst nk.
Verð á útboðsgögnum er kr. 7.500,-
Tilboð verða opnuðáVN, 3. september 1997, kl. 11.
Bygginganefnd VMA.
k J
Grunnskólar Hafnarfjarðar
Skólabyrjun
Nemendur mæti mánudaginn 1. september sem hér
segir:
Kl. 09.00 7. og 10. bekkur (fædd ’85 og ’82)
Kl. 10.00 6. og 9. bekkur (fædd ’86 og ’83)
Kl. 11.00 5. og 8. bekkur (fædd ’87 og ’84)
Kl. 13.00 1. og 4. bekkur (fædd ’91 og ’88)
Kl. 14.00 2. og 3. bekkur (fædd ’90 og ’89)
Kennsla hefst skv. stundaskrá þriðjudaginn 2. septem-
ber.
Byrjun starfs í 1. bekk verður kynnt í skólunum 1. sept-
ember.
Skólafulltrúinn í Hafnarfirði.
AKUREYRARBÆR
Atvinnudeild
Akureyrar
Atvinnudeild Akureyrar vekur athyli á
úthlutun styrkja úr Atvinnuleysistrygg-
ingasjóði árið 1997 til átaksverkefna á
vegum sveitarfélaganna.
Styrkirnir eru ætlaðir til sérstakra verkefna sem
miðast að því að fjölga atvinnutækifærum við sem
flestra hæfi. Til verkefnanna má aðeins ráða ein-
staklinga sem eru skráðir atvinnuleitendur og
hafa bótarétt. Fyrirtæki og félagasamtök geta sótt
um styrk til þess að vinna að eigin viðskiptahug-
mynd.
Verkefnin mega ekki vera í samkeppni við annan
atvinnurekstur.
Umsóknir skulu berast skrifstofu Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs fyrir 1. sept. 1997. Akureyrarbær
hefur milligöngu um afgreiðslu umsókna. Reglur
Atvinnuleysistryggingasjóðs um úthlutun styrkja
og eyðublöð vegna þeirra, eru á skrifstofu Vinnu-
miðlunar Akureyrar að Glerárgötu 26.