Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1981, Side 3
DAGBLAÐIÐ & VISIR. ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1981.
3
eru að byrgjast sem fylgir mikið los
o.s.frv. Þannig fer orkan í að leysa
vandamál líðandi stundar. Þegar
skólinn er loks tilbúinn að húsakosti
er það hins vegar oft um seinan. Og í
skóla úti á landi, jafnt nýja sem
gamla, er oftast erfitt að fá
Kjallarinn
IngólfurÁ.
Jóhannesson
menntaða kennara. Nýir skólar þar
eru hins vegar stundum betur búnír
tækjum en nýir skólar í stóru
bæjunum.
örðugleikar á
samstarfi kennara
En er eitthvað í veginum fyrir þvi
að kennarar, sem vilja vinna saman
geri það?
Ekki fyndist manni að svo
æitti að vera en í reyndinni getur
það verið meiriháttar mál. Dæmi: Að
ná saman fundi 3ja íslenzkukennara í
9. bekk til þess eins að bera saman
bækur sinar. Einn er búinn að kenna
kl. 13.00, sá næsti kl. 14.30 og sá
þriðji kl. 16.00. Eyður í stundaskrá
þeirra standast ekki á og allir fara
yfirleitt beint í burtu, heim eða í
aukavinnuna. Ef ætti að gera
eitthvað meira en að bera saman
bækur sínar þarf annars konar
skipulag og þess þyrfti svo sannar-
lega því að sem betur fer eru náms-
skrárnar frá menntamálaráðuneytinu
svo rúmar að það er ætlast til þess að
kennarar leggi eitthvað áf mörkum
sjálfir við námsefnisgerð.
Dæmi um önnur
vinnubrögð
Halda mætti að nóg kæmi af
nýjum námsbókum svo að kennarar
þyrftu ekki að búa til námsefni.
Foreldrarnir fussa gjarnan og sveia ef
notuð er önnur námsbók handa
börnunum en þeir lærðu sjálfir fyrir
20—40 árum. Reyndar kemur ekki
nærri nógu mikið út af nýjum
kennslubókum. í Skólarannsókna-
deild menntamálaráðuneytisins er
unnið við knappan fjárhags- og
húsnæðiskost og er það gott starf
svo langt sem það nær. En engin
kennslubók verður góð fyrr en hún
hefur verið margprófuð og hún getur
verið býsna fljót að úreldast. Auk
þess ættu allir að vita að lífið er ekki
það sem stendur í bók.
Náttúrufræðin er ekki bara það sem
stendur í einni skruddu. Hér er það
kennarans að hjálpa bókinni og
öfugt.
Samþættingu eða samfléttun faga
í heild hefur mjög borið á góma að
undanförnu og er mjög stefnt að þess
háttar vinnubrögðum með náms-
skrám þeim fyrir grunnskóla sem út
koma fyrir u.þ.b. 5 árum. Allir vita
að lifinu er ekki skipt úpp i hólf eins
og námsgreinum í skóla.
Grunnskólunum er, eins og frægt
er orðið, ætlað að búa nemendur
undir líf og starf í lýðræðis-
þjóðfélagi, sem er í sífelldri þróun.
Það væri í andstöðu við þetta
markmið að innprenta nemendum
annað en að þetta lýðræðisþjóðfélag
sé flókið og flóknara heldur en það
samfélag, sem var hér á landi fyrir
100 árum. Vinnubrögð skólanna hafa
ekki breyst í samræmi við þróun
þjóðfélagsins.
Samþætting námsins úr skýrt af-
mörkuðum námsgreinum er útilokuð
án meiri vinnu kennara — og
auðvitað samvinnu kennara, sem eru
sérmenntaðir í mismunandi fögum.
En samvinna af þessu tagi er ekki
auðveld í framkvæmd eins og dæmið
um íslenskukennarana sýnir. Þess er
skylt að geta að hér og þar er reynt að
samþætta námið hluta úr vetri, t.d.
eftir samræmdu prófin i 9. bekk.
Sumir skólar hafa 1—2 vikur á vetri
með einhverju slíku sniði. Einmitt
þau dæmi sanna að það er hægt að
breyta vinnubrögðum skólanna og
mættu fjölmiðlar gefa tilraunastarf-
semi skóla gaum engu síður en sam-
skiptaörðugleikum milli kennara og
skólastjóra.
Annað dæmi um breytt
vinnubrögð er hópvinna nemenda.
En hvorki hópvinna né samþætting
eru ,,patent”-lausnir. Slíkar lausnir
eru því miður ekki til.
Mikilvægi góðrar
kennaramenntunar
Ef til væru slíkar lausnir eða for-
skriftir þyrfti varla neina sérstaka
kennaramenntun og tölvur myndu
sjálfsagt geta leyst kennarastarfið af
hendi.
Fleira kemur til og i mannlegum
samskiptum og uppeldi barna, sem æ
meir hefur færst inn fyrir veggi
skólans, koma upp tilvik sem tölvur
geta aldrei leyst. Að hafa vel mennt-
aða kennara sem sífellt fylgjast með
og hafa almennilega starfsaðstöðu
verður því lykilhlekkurinn i öllu
skólastarfi i framtíðinni sem hingað
til. Þetta er og álit tveggja þekktra
skólamanna, Jónasar Pálssonar í
nýlegu smáriti Iðunnar og KHÍ og
Jóns Þórarinssonar fyrrum fræðslu-
málastjóra. Jón áleit kennara-
menntun „ómissandi skilyrði fyrir
öllum verulegum framförum í alþýðu-
menntun vorri”, og áleit, ,,að þá
fyrst komist hún í viðunanlegt horf,
er til er sjerstök kennarastjett” (á
Alþingi 1887). Og í Tímariti um
uppeldi og menntam&l 1888 sagði
hann: „. . . hver þau lög um
menntamál, sem ekki skipa fyrir um
góða kennara . . . verða aldrei
annað en dauður bókstafur sem
enginn hefur gott af.”
Um 90 árum síðar segir Jónas
Pálsson í ritinu Borgaraskóli—
Alþýðuskóli: ,,Nú vænti ég að öllum
sé ljóst hvers vegna ég tel hæfni
kennarans — og þar með menntun
hans — úrslitaatriði í menntastefnú
hverrar þjóðar. — En einnig er
lögð þung ábyrgð á herðar
kennarans. Þess vegna skal vanda
vel menntun hans og gera starfskjör
hans góð.
Það er meginefni máls míns að
íslensk stjórnvöld hafi á
undanförnum áratugum og allt fram
á þennan dag vanrækt og vanmetið
þátt kennarans við mótun mennta-
stefnu og þar með einnig i verki sýnt
neikvætt gildismat sitt á uppeldi og
félagsmótun nemenda. Nemandi
temur sér ekki sjálfstæði í hugsun og
vinnubrögðum nema kennara hans
séu þeir starfshættir eðlilegir” (bls.
55).
Ég sé ekki ástæðu til að prjóna
neinu aftan við þessi orð Jóns og
Jónasar.
Ingólfur Á. Jóhannesson.
^ „Allmargir kennarar hafa sagt mér, að
þeir myndu fá sér annað starf ef t.d.
sumarfrí þeirra yrðu skert. Þeir iifi ekki af
laununum án þess að vinna aukavinnu, annað
hvort á sumrin eða eftir kennslu á veturna.
Þetta hefur þau áhrif að kennarinn staðnar.
Aukavinnan krefst orku og jafnvel tíma frá
kennarastarfinu,” segir Ingólfur Á. Jóhannes-
son.
VIÐ TELJUM
að notaðir
VOLVO
bílar
séu betri
en nýir bílar
af ódýrari
gerðum
VOLVO
ekinn 16
VOLVO
ekinn 56
VOLVO
ekinn 36
VOLVO
'ekinn 79
VOLVO
ekinn 34
VOLVO
j ekinn 25
j VOLVO
! ekinn 45
iVOLVO
ekinn 61
245 GL ÁRG. '81
þús. beinsk.
245 GL ÁRG. '79
þús. beinsk.
343DLÁRG. '78
þús. sjálfsk.
264 GL ÁRG. '76
þús. sjálfsk.
244GLÁRG. '80
þús. beinsk.
244DLÁRG. '80
þús. beinsk.
244GLÁRG. '79
þús. beinsk.
244 DL ÁRG. '78
þús. sjálfsk.
kr. 160.000,-
kr. 130.000,-
kr. 80.000.-
kr. 110.000,-
Jcr. 140.000.-
kr. 138.000.-
kr. 120.000.-
kr. 110.000,-
(0
35200
VELTIR
SUÐURLANDSBRAUT16
Velúrpeysur:
Allar stœrðir
Margir litir
Vorfl kr. 135-247
Háskólabolir:
Efni: 85% bómull 15% acryl
Litir: grátt m/rauðum og bláum
röndum Grátt m/svörtum og bláum
röndum Verð kr. 110—130
Bómullargallar:
með og án hettu.
Verð kr. 270-296.
Körfuboltaskór:
Stærðir: 3 1/2-14
Verð kr. 270-420
Iþróttabolir
Verð frá kr. 68,- - 80,-
Buxur (tvöfaldar)
Verð kr. 80,-
Sokkar
Verð kr. 30,-
Körfuboltabolir
Verð kr. 60,- - 70,-
Ingólfs Óskarssonar
Klapparstíg 44 — Sími 11783
Sportvöruverslun
Æfingagallar
Mjúkt frotté: 90 % bómull, 10%
nælon. Margir litir.
Verð kr. 360,-428,50.
! Fótboltar
Verð kr. 130-587.
i Handboltar
Verðfrákr. 170-376
Körfuboltar
Verðfrákr. 158-670.