Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1981, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1981.
15
Útlönd Útlönd Útlönd
17 milljónir
myndsegulbands-
spóla á markaði
Nýlega var haldin myndsegulbanda-
hátíð mikil í Cannes í Frakklandi þar
sem sérfræðingar spáðu því að í lok
þess árs gætu menn valið um 17 millj-
ónir myndsegulbandsspóla á almenn-
um markaði. Jafnframt er talið að á
árinu 1984 verði þessi tala komin upp í
45 milljónir.
Þetta þykja ill tíðindi fyrir þá sem
reka kvikmyndahús, þeir hafa orðið að
heyja harða samkeppni við sjónvarpið
og hætt er við að þetta mikla flóð
segulbandsspóla höggvi enn nær hag
þeirra en sjónvarpið gerði á sínum
tíma.
Sem dæmi um minnkandi aðsókn að
kvikmyndahúsum má taka að á árinu
1964sóttu 1,6 milljaróar Breta sýningar
þeirra en á síðasta ári voru þeir innan
við lOOmilljónir.
Þeir bjartsýnustu innan stéttarinnar
líta þó engan veginn á myndsegulbönd-
in sem banahöggið á starfsemi sína og
vitna í 6% aukningu á bandarískum
kvikmyndahússgestum það sem af er
þessu ári. Aðrir telja þó skýringuna á
aukningunni þá að nokkrar nýjar
myndir h^fa náð óvenju miklum
vinsældum á þessu ári, en aðsókn sé
að öðru leyti á niðurleið.
Sprengdu
upp olíu-
hreinsistöð
Angóla
Angóla hefur sakað Suður-Afriku
um að senda sveit skemmdar-
verkamanna, skipaða hvitum. mála-
liðum, til þess að eyðileggja einu olíu-
hreinsistöð landsins, en hún brann til
kaldra kola í gær.
í PetrAngol-oliuhreinsistöðinni
skammt frá Luanda kom upp eldur
i er <j völdum sprenginga og er sagt,
að komið hafi verið fyrir öflugum
sprengjum hér og þar í stöðinni. —
Olíuhreinsistöðin var rekin af Belgum.
Eldar loguðu enn í stöðinni hét
og þar í morgun, en slökkviliðið hafði
heft útbreiðslu þeirra.
Stjórnvöld Angóla segja að fundist
hafi í brunarústunum lík nokkurra
manna úr skemmdaverkasveitinni.
Ennfremur hafi fundist ósprungnar
sprengjur og bakpokar málaliðanna
með ýmsum skjölum.
Portúgalska fréttastofan Anop segit
hins vegar, að skrifstofa Unita, sam-
taka skæruliða i Angóla, lýsi allri
ábyrgð af skemmdarverkinu á hendui
sér.
Danski sendiherrann undirritar friðarsamninginn.
Stríðinu lokið!
Lengsta og jafnframt friðsamasta
stríði sem Danir hafa átt í lauk þann
11. nóvember síðastliðinn þegar litið og
afskekkt þorp á Suður-Spáni ákvað að
nóg væri komið af ófriði milli þess og
danska ríkisins. Þorpsstjórnin í
Huescar á Spáni gaf út stríðsyfirlýsingu
á hendur Dönum 11. nóvember árið
1809 eftir að Danir ákváðu að styðja
Frakkland í Napóleonsstyrjöldunum.
Stríðsyfirlýsingin gleymdist hins vegar í
173 ár og það var ekki fyrr en hún
fannst í skjalasafni bæjarins fyrr á
þessu ári að Dönum varð kunnugt um
hana og ákveðið var að binda enda á
ástandið. Athöfnin fór fram með
miklum hátíðahöldum eins og tilefni
var til og fjöldi norrænna ferðamanna
sem staddir voru í nærliggjandi
borgum komu til að vera viðstaddir.
Danski sendiherrann í Madrid, Mogens
Wandel-Petersen, vígði götu í Huescar
með nafni Da icrkur, „Calle de
Dinamarca” og bæjarbúar dönsuðu og
drukku sangria á götum úti í víkinga-
klæðum.
STJORN NYJA-
SJÁLANDS LAFIR
— og utankjörstaðaatkvæði ekki að fullu talin ennþá
Úrslit liggja nú fyrir i þingkosning-
um Nýja-Sjálands eftir taJningu utan-
kjörstaðaatkvæða en þau höfðu verið
svo naum í tveim kjördæmum að á
utankjörstaðaatkvæðunum valt hvort
stjórn Roberts Muldoons forsætisráð-
herra héldi velli með eins eða tveggja
þingsæta meirihluta.
Höfðu raunar orðið mistök i talning-
unni í fyrstu, svo að telja þurfti aftur
og kom þá i Ijós að Þjóðarflokkur
(íhalds) Muldoons hefur 47 þingsæti,
Verkamannaflokkurinn 43 og Félags-
bótaflokkurinn tvö þingsæti.
Enn er ekki lokið talningu allra utan-
kjörstaðaatkvæða og hugsanlegt að úr-
slitin breytist enn. í tveim kjördæmum
sigruðu þingmenn Þjóðarflokksins
með aðeins 16 og 44 atkvæðum.
Er þetta í fyrsta sinn í 60 ár sem þing-
meirihluti á Nýja-Sjálandi hefur verið
svona naumur.
íbúðir í Verka-
Stjórn Verkamannabústaða í Hafnarfirði mun á næstunni
ráðstafa 9 íbúðum sem eru í smíðum að Víðivangi 3.
íbúðirnar eru 2ja—3ja og 4ra herbergja. Gert er ráð fyrir
að íbúðirnar verði tilbúnar til afhendingar í sept-okt. 1982.
Umsækjendur þurfa að uppfylla skilyrði 47. gr. laga nr.
51/1980 til að koma til greina. Umsóknareyðublöð liggja
frammi á Félagsmálaskrifstofu Strandgötu 6, og ber að
skila umsóknum þangað eigi síðar en 27. desember nk.
Eldri umsóknir þarf ekki að endurnýja.
Hafnarfirði, 30. nóvember 1981.
Stjórn verkamannabústaða í Hafnarfirði.
Sælkera
kvöld
Sælkeri mánaðarins
HREINN LÍNDAL
Síðasta sælkerakvöld ársins í Blómasal
Hótels Loftleiða verður haldið fimmtudaginn 3. desember n.k.
Sælkeri kvöldsins er hinn kunni listamaður og tískufrömuður
Hreinn Líndal.
Matseðill hans hljóðar þannig:
Ofnbakaður Avocado með rækjufyllingu
Rauðrófusúpa
Eldsteiktar grísarúllur með spínati
Ávaxtasalat
Þessum óvenjulegu réttum
fylgir svo tfskusýning frá Hreini Líndal, stjómað
af Gnni Amgrímsdóttur og einsöngur Hreins Líndal við
undirleik Ólafs Vignis Albertssonar.
Vinsamlegast tryggið ykkur borð í tíma.
Símarnir em 22321 og 22322.
Matur framreiddur frá kl. 19.00
Verið velkomin
HÓTEL LOFTLEIÐIR
«■
gseðanna
vegna
Ingvar Helgason
Vonarlandi > Sogamýri 6 sími 33560
Varahlutaverslua Rauðagerði Simar: 84510 & 84511
T