Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1981, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1981, Blaðsíða 36
 Þjóðhagsstofnun spáir 55% verðbólgu næsta ár St jórnarliðar deila um aðgerðir Þjóðhagsstofnun hefur á vegum ríkisstjórnarinnar gert spá um verð- bólgu á næsta ári og fengið út að hún! yrði 55 prósent. Þá er miðað við út- reikning á verðbólgu frá ársbyrjun til ársloka 1982. Stofnúnin gefur sér meðal annars i þessum reikningi að engar grunn- kaupshækkanir verði árið 1982. Verðbólgan í ár verður nálægt 40 prósentum. Stjórnarliðar eru ósáttir um hvernig bregðast skuli við, nú þegar á ný stefnir í vaxandi verðbólgu. Efna- hagsnefnd ríkisstjórnarinnar heldur fundi. í henni eru Jón Ormur Hall- dórsson formaður, Guðmundur G. Þórarinsson og Ólafur Ragnar Grímsson. Framsóknarmenn hvetja til efna- hagsaðgerða til að koma verðbólg- unni niður en alþýðubandalagsmenn eru tregir til. -HH. HARÐUR AREKSTURIARBÆJARHVERFI Eins og sjá má á myndinni þurfti miklar tilfæríngar tH að ná manninum út úr bif- reiðinni. DV-mynd S. IMORGUN Mjög harður árekstur varð um tíuleytið í morgun á gainamótum Bæjarháls og Hálsabrautar i Árbæjar- hverfi. Ladabifreið, sem kom akandi eftir Bæjarhálsi ók í veg fyrir stóra vörubif- reið af Scania Vabis gerð sem kom 'akandi eftir Hálsabraut og skemmdist Ladabifreiðin mjög mikið við áreksturinn. Við áreksturinn skorðaðist ökumaður Ladabifreiðarinnar af og gekk mjög illa að ná honum út úr bif- reiðinni. Hann var þegar fluttur á gjör- gæsludeild Borgarspítalans og er talið að meiðsli hans séu töluverð. -SER. Ekkert bólar á jólaösinni á Alþingi: Sverrir f lutti ádrepu á þing og ríkisstjórn Forseti neðri deildar Alþingis, Sverrir Hermannsson, flutti þing- heimi og ríkisstjórninni snarpa á- drepu i upphafi þingfundar í gær og kvað þinghald stefna í óefni þar sem ekkert cinasta nefndarálit bærist og rikisstjórnin legði ekki fram mál sem hún ætti í fórum sínum og ætlaðist vafalítið til að hlytu afgreiðslu fyrir jólafrí Alþingis, 18. desember. í samtali við D&V kvaðst Sverrir Hermannsson ekki muna annað eins sleifarlag á skilum nefnda og mætti gera því skóna að þingmönnum kæmi það í koll þegar halda yrði kvöld- og næturfundi rétt fyrir jól. Samkvæmt þessu má búast við hinni ærlegastu jólaös á Alþingi að þessu sinni og hefur þó sjaldan verið hægt að líkja þingstörfum á þeim tíma við föndur og þá jólaföndur. -Herb. Fundur um Blönduvirkjun í dag: HEIMAMENN ERU ENN KLOFNIR í MÁLINU Viðræðunefnd ríkisins vegna Blönduvirkjunar hefur boðað fund á Blönduósi i dag klukkan 14.30 með fulltrúum hreppanna sex í Húna- vatnssýslu og Skagafirði, sem eiga upprekstur á fyrirhuguðu virkjunar- svæði. Þar verður kynnt samþykkt rikisstjórnarinnar um að gefa heima- mönnum kost á að samþykkja svokallaðan virkjunarkost 1 ella færist Blönduvirkjun aftur fyrir Fljótsdalsvirkjun. Formaður viðræðunefndar ríkisins, Kristján Jónsson rafmagns- veitustjóri, sagði DV að málin yrðu reifuð á grunni núverandi stöðu og siðan rætt um framhald viðræðna. Væntanlega þyrfti ákvörðun að liggja fljótlega fyrir ef ætlunin væri að afstaða heimamanna yrði til grundvallar þegar Alþingi tæki málið til endanlegrar afgreiðslu. Orkuráðherra, Hjörleifur Gottormsson, lýsti þvi yfir á föstudaginn að málið kæmi innan tíðar fyrir Alþingi. Ljóst er að það er ekki bundið af samþykkt rikis- stjórnarinnar. í viðræðum við nokkra fulltrúa heimamanna í gær kom glöggt fram að staða virkjunarmálsins í héraði er sú sama og í vor. Tvær hreppsnefndir af sex hafa lýst fylgi við virkjunarleið Blönduóshrepps og Torfalækjar- hrepps. Þriðja hreppsnefndin vestan Blöndu, í Svínavatnshreppi, er að meirihluta fylgjandi, en þar er jafnvel gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu meðal hreppsbúa. í þrem hreppum austan ár er afstaða óljós en greinilega mikil andstaða við landeyðingu af leið 1. Það er i Bólstaðarhlíðarhreppi í Húnaþingi og í Seyluhreppi og Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði. í samkomulagsdrögum, sem legið hafa fyrir um þetta mál hefur hingað til verið sneitt hjá aðalágreiningnum, um virkjunarleiðirnar. -herb. vtsm ftfálsl, óháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 1. DES. 1981. Sunnudags- steikin hækkar um 15 krónur Nýtt búvöruverð tók gildi í morgun og nemur hækkun landbúnaðarvara á bilinu 9,7—15,7%eftir tegundum. Sunnudagssteikin sígilda, þ.e. lamba- lærið, hækkar um 14,5% og ef miðað er við vísitölufjölskylduna ætti steikin að hækka um tæpar 15 krónur sé gengið út frá eðlilegum matarvenjum. Mjólkin hækkaði um 13,7% og kostar lítrinn nú kr. 6,65. Smjörkílóið rauk upp í 80 krónur sléttar í kjölfar 11,3% hækkunar og kílóið af 45% osti kostar nú næstum jafnmikið og við- bitið eftir hækkun eða kr. 78,30. Nautakjöt hækkaði um 11,6% og kartöflurnar hækkuðu um lítil 15,7%. -SSv. samkoma íHáskólabíói Eins og undanfarin ár kemur það í hlut Verðandi, félags vinstrisinnaðra í Háskóla íslands, að sjá um hátíðardag- skrá í tilefni fullveldisdagsins í dag, 1. desemher. Verður að vanda efnt til baráttusam- komu í Háskólabíói þar sem fundar- menn munu gera sér ýmislegt til dundurs undir kjörorðinu „Helstefna eða lífsstefna”. Hefst samkoman kl. 14.15 i Háskólabíói og verður henni út- varpað. -SSv. BMBBIABIÐtWESm Frá og með 1. desember er áskriftarverð kr. 100,00 á mánuði. í lausasölu kostar eintakið kr. 7,00, nema á laugardögum kr. 10,00 (Helgar- blaðið). Grunnverð auglýsinga verður kr. 60,00 hver dálksentimetri. Og nú er Davíð farinn að láta mynda sig með stóra vindla. c ískalt Seven up. hressir betur. ■ ■ ■ ■ 1 ; I I I e I I li i *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.