Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1981, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1981, Blaðsíða 8
8 DAGBLAÐIÐ&VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1981. KVIKMYNDAMAfíKAÐURINN VIDEO • TÆKI • FHMUR SKÓLAVÖRÐUSTÍG 19 (KLAPPARSTÍGSMEGIN) - SÍM115480. AÐALFUNDUR SVFR Stangaveiðifélags Reykjavíkur verður haldinn að Hótel Loftleiðum, Víkingasal, sunnu- daginn 6. desember og hefst kl. 13.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Tillaga frá stjórn félagsins um breytingu á félagslögum. Stangaveiðiféiag Reykjavíkur. KEFLAVÍK Umferðartakmarkanir í Keflavík. Frá laugardeginum 5. desember til fimmtudagsins 31. desember 1981 að báðum dögum meðtöldum, er vöruferm- ing og afferming bönnuð á Hafnargötu, á almennum afgreiðslutíma verslana. Á framangreindu tímabili verða settar hömlur á umferð um Hafnargötu ef þurfa þykir, svo sem tekin upp einstefnu- akstur eða umferð ökutækja bönnuð með öllu. Verða þá settar upp merkingar er gefa slíkt til kynna. Keflavík, 1. desember 1981 Lögreglustjórinn í Keflavík /- Laxveiðijorð-------------------------v Laxveiðijörð á Vesturlandi er til sölu að hluta. — Fjarlægð, 2ja tíma akstur frá Akranesi. Á jörð- inni er vandað veiðihús, raflýst og með öllum til- heyrandi tækjum. Önnur hlunnindi en laxveiði eru: Góð silungsveiði í vötnum jarðarinnar, fuglaveiði og berjatínsla. Mjög fallegt umhverfi og landrými mikið. Farið verður með tilboð sem trúnaðarmál. Tilboð sendist Dagblaðinu og Vísi fyrir 10/12 merkt: „Laxá 1/10 — 35 GM — 7718”. II AUGLÝSING Að gefnu tilefni skal tekið fram, að afla þarf leyfis heil- brigðisráðs til þess að setja á stofn eða reka hárgreiðslu- stofu, rakarastofu, sólbaðsstofu, eða hverskonar aðrai snyrtistofur. Skilyrði til þess, að slík fyrirtæki verði leyfð eru m.a., að húsakynni séu björt og rúmgóð, með nægjanlegri loftræst- ingu og upphitun. Ennfremur mega þau ekki vera í beinu sambandi við óskyldan atvinnurekstur eða íbúð, sbr. ákvæði Heilbrigðisreglugerðar frá 8. febrúar 1972. Reykjavík, 25. september 1981 Heilbrigðisráð Reykjavíkurborgar. HÁRGREIÐSLUSTOFAN EVA Tímapantanir ENGJASELI 71 [ Síma yj j 0^ HRUND JÓHANNSDÓTTIR I HÁRGREIÐSLUMEISTARI ÁSTA SIGURÐARDÓTTIR HÁRGREIDSLUMEISTARI J m SJÁUMST MED ENDURSKINI Ú UMFERÐAR RÁÐ Neytendur Neytendur Neytendur Áskoranir um uppskriftir: Björn Ingi Björnsson skorar á Hjörnýju Friðriksdóttur „Það er allt annað að standa í eld- húsinu og elda góðan mat eða að selja matvörur í versluninni, en hvort tveggja er skemmtilegt, " sagði Björn Ingi Björnsson kaupmaður og áskor- andi i viðtali við blaðamann Vísis. Óhjákvœmilega snerust umrœður um mat, matargerð og hráefniskaup, þar sem Björn hefur það að atvinnu að selja mat.er lœrður kjötiðnaðarmaður og hefur svo afar mikla áncegju af eldamennskunni. Við bárum saman „kokkaboekur" okkar og þegar talið barst að jólamatnum var staðnœmst við rjúpur. Björn Ingi kvaðst hafa góða reynslu af þvi að sjóða rjúpurnar eingöngu i rjóma, eftir að þœr hafa verið steiktar I smjöri. Þar sem við erum ákveðin í að bœta þessu í okkar kokkabók hér látum við fleiri njóta með. Síðasti áskorandi, Þórður Þórðarson, hafði orð á því að kaup- maðurinn hans cetti oftast einhvergóð ráð varðandi hráefni og matargerð, því hafi hann beint sinni áskorun til Björns Inga. Þórður hefur ekki farið í geitarhús að leita ullar, því eins ogsést á eftirfarandi uppskriftum kaup- mannsins kann hann ýmislegt fyrir sér I hinni göfugu matargerðarlist. Fleiri aðilar I fjölskyldu Björns Inga munu hafa áhuga á þeirri listgrein, meðal annarra mágkona hans Hjörný Friðriksdóttir, sem hann vísar áskoruninni tU.fyrir nœsta þriðjudag. ÞG. FORRÉTTUR Nautatunga með vínberja- og mandarínusósu Söltuð nautatunga soðin I 2—3 klukkustundir, það er að segja ef keypt er ósoðin tunga. Fyrir þá sem sjóða sjálfir nautatunguna má geta þess að gott er að setja I suðuvatnið I lauk, skorinn I bita og 4 negulnagla. Þegar nautatungan er soðin er húðinni flett af á meðan tungan er heit. Siðan er tungan skorin I þunnar sneiðar og borin fram með vínberja- og mandarínusósu ogristuðu brauði. t sósuna eru látin niðurbrytjuð vínber og mandarínurif (helst úr dós), dálítið majones og sýrður rjómi (til helminga) saman við. AÐALRÉTTUR Innbakaðar lundir Fyrir 6 manns 800—1000g lundir smjör eða smjörlíki saltogpipar Upphaflega notaði ég nautalundir í þennan rétt en hef svo prófað alikálfa-, folalda og grísalundir og allt hefur reynst vel. Deig: lSOgsmjör 3 dl(!50g)hveiti 3 msk. ískalt vatn. Smjörbitar settir l hveitið og hnoðað. Síðan er vatnið látið varlega saman við ogdeig.ið hnoðað oggeymt í kœliskáp smástund. Jafningur: 1/2 kg nýir sveppir smjör eða smjörlíki 4 msk. hveiti 1/2 I rjómi salt, pipar I egg (til penslunar) Lundirnar brúnaðar á vel heitri pönnu. Ef þið eruð með stórar nauta- lundir má skera þær í sundur. Þá er kjötið kryddað og látið krauma undir lokið við vœgan hita I 10—15 mínútur. Siðan látið kólna. Sveppirnir eru sneiddir niður og brúnaðir i potti. Hveitinu stráð yftr og hrœrt í og þegar sósan hefur verið jöfnuð er helmingnum af rjómanum bœtt út í. Sósan bragðbætt með salti ogpipar, síðan kœld. Lundirnar eru sneiddar í hæftlegar sneiðar, athugið að skera á ská. Siðan er jafningi smurt á aðra hlið hverrar sneiðar og sneiðunum raðað saman aflur í upphaflegt form. Deigið er flatt út ana stóra köku og lundirnar lagðar í deigkökuna miðja. Deigkakan lögð utan um kjötið. Eggið þeytt og deig- pakkinn penslaður með egginu. Þá er deigpakkinn lagður í velsmurt eldfast mót sem látið er í ca 275 gr. heitan ofn. Bakað þar til deigið er orðið fallega brúnt eða ca 15 mínútur. Hitið afganginn af jafningnum og bætið rjómanum sem eftir er út I og notið sem sósu með. Ferskt grœnmetissalat er ágætt að bera fram með innbökuðu lundunum. EFTIRRÉTTUR Hofdesert 30 g möndlufögur 75 g suðusúkkulaði 1/21 rjómi 12 marengskökur Ristið möndluflögurnar, brœðið súkkulaðið í vatnsbaði. og þeytið rjómann. Þá er marengskökunum dýft í súkkulaðibráðina ogsíðan raðað á fat. Setjið þeyttan rjóma yflr hverja köku og hellið siðan því sem eftir er af súkkulaðibráðinni yflr rjómann. Síðast er möndluflögunum stráð yflr. Framreitt strax. Þegar allar uppskriflirnar þrjár eru komnar á blað og hafa vonandi örvað bragðkirtla lesenda, bara við lesturinn er aðeins eitt eftir og það er að til- nefna eftirmann. Hjörný Friðriks- dóttir mágkona mín, sem er kaup- maður og selur potta og pönnur og krydd, býr til alveg sérlega Ijúffengan mat, varð fyrir valinu. Tilnefning eftirmanns var þvl innan seitingar og vandinn auðleysanlegur. Björn Ingi Björnsson kaupmaður I Kjötbúð Suðurvers sýnir hér þær lundir sem nota má i aðalréttinn hans. Telur hann sist nauðsynlegt að nota dýrustu lundirnar, nautalundir, alikálfa-, folalda- og grisalundir hafa smakkast afbragðs vel innbakaðar. DB & Visismynd ÞL. Dýrt í sláturtíðinni Húsmóöir á Selfossi skrifar: Vegna svimandi hárrar tölu yfir matar- og hreinlætislið bókhaldsins (1692 krónur á mann) sendi ég ykkur fáeinar línur. Inn í matarkaupin koma meðal annars 10 slátur sem með mjöli og til- heyrandi kostuðu 757 krónur Raddir neytenda og 2 kjötskrokkar á 1062: Afgang- urinn af upphæðinni hefur farið i alls konar mjólkurvörur og brauð. Vegna útivinnu minnar í sláturtíðinni hefur lítið farið fyrir matreiðslu og jógúrt og skyr því mikið notað. Nú er aftur á móti ætlunin að nota áður keyptar matvörur og vonast ég til að geta sent lægri tölur fyrir nóvembermánuð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.