Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1981, Qupperneq 10
10
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1981.
Stálfélagsmenn kanna brotajárnsbirgðir í landinu:
Um 30 þús. tonn af bílhræjum
falla til á næstu sex árum
Stöðugt er unnið að stofnun Stálfé-
lagsins. Hefur forsvarsmönnum þess
borist tilboð um að leigja bílpressu
frá Sviþjóð. Þá hefur verið gerð
athugun á, hversu mikið fellur til af
bílabrotajárni á næstu sex árum.
Samkvæmt henni mun falla til á því
timabili um 30.000 tonn af bílhræj-
um.
Þessa dagana er unnið af krafti að
hlutafjársöfnun, að því er blaðið
hefur fregnað. Hefur hún gengið
Ekki bara launin sem hækka um mánaðamótin:
Fasteignamat
hækkar um 55%
— og í kjötfarið hækka fasteignagjöld,
þinglýsingar, eignaskattur og fleira
Nýtt fasteignamat tekur gildi 1.
desember og nemur hækkunin sem
svarar 55%. I kjölfar þessarar hækk-
unar hækka fasteignagjöld, þinglýs-
ingagjöld, eignaskattur og fleira það
sem beinlínis viðkemur fasteignamat-
inu. Þá má búast við hækkunum á
leiguverði íbúða og jafnvel fasteigna-
verði. Þá er líklegt að brunabótamat
hækki.
Töluverðar hækkanir hafa verið á
íbúðum undanfarna mánuði og þá
kannski sérstaklega undanfarnar
vikur. Fasteignamat ríkisins hefur
reynt að fylgjast með þessum hækk-
unum en fasteignamat er þó aldrei
raunhæft verð íbúða.
Sem dæmi um fasteignamat á ein-
stökum íbúðum nefnir fasteignamat
ríkisins 100 fermetra íbúð í blokk í
Árbæjarhverfi sem metin er á 527
þúsund krónur. 150fermetra sérhæð
við Rauðalæk er metin á 671 þúsund
krónur og tveggja herbergja, 55 fm
kjallaraíbúð við Skipasund metin á
235 þúsund krónur. Til samanburðar
má geta þess að tveggja herbergja
íbúðir á frjálsum markaði ganga á
450—500 þúsund krónur.
Þá hefur einnig nýlega farið fram
endurmat á lóðum í Kvosinni eftir
kæru sem barst frá íbúum Grjóta-
þorps í september sl. Var fundið út
áberandi misræmi á fasteignamati á
þeim lóðum svo og lóðum í Vestur-
bænum. Hafa þær lóðir nú fengið
annað hvort lækkun á fasteignamöt-
um eða hækkun.
í frétt sem fasteignamat ríkisins
hefur sent frá sér vegna þessara
hækkunar segir að mat íbúðar-
húsnæðis, þar með taldar lóðir
hækki almennt um 55%, en aðrar
tegundir fasteigna um 45%. Vísitölu-
hækkun á laun nemur hins vegar
tæpum 10%. -ELA.
Austfirðir:
r
þokkalega og er útlit fyrir að félagið
verði stofnað upp úr áramótum.
Hafa meðal annarra 10—12 hreppar
og sveitafélög gerst hluthafar.
Þá hafa Stálfélagsmenn kannað
það bílabrotajárn sem til fellur, eins
og áður sagði. Hafa þeir farið í
gegnum innflutningsskýrslur um bif-
reiðar. Samkvæmt útreikningum sem
gerðir hafa verið út frá þeim forsend-
um, er álitið að um 30.000 tonn af
bílabrotajárni verði fyrir hendi á
næstu sex árum. Á núgildandi verð-
lagi mun það vera að verðmæti 21
milljón króna í hr^efni. komið að
bræðslupotti í verkimiðjunni, sam-
kvæmt útreikningum forsvarsmanna
Stálfélagjins. -JSS.
Bústaöakirkja 10 ára
ENGINN P0STUR B0RIST
Dagmar Gunnlaugsdóttír, formaður
Kvenfólags Bústaðasóknar, afhenti
sóra Ólafi Skúlasyni dómprófasti
var troófull þatta kvöld og þurftu
margir fri að hvarfa.
-KMU/D&V-mynd: S.
Gífurleg snjóþyngsli hafa háð
öllum samgöngum á Austfjörðum
síðustu daga. Einna verst er ástandið
á Fáskrúðsfirði, Eskifirði og Nes-
kaupstað og hefur Oddsskarð verið
lokað í um vikutíma.
Að sögn heimamanna hefur póst-
útburður mjög goldið þessa og höfðu
dagblöð eða annar póstur ekki borist
í fimm daga til þessara staða, uns
varðskip var fengið til þess í gær.
veggskjöld númer eitt af fimm
hundruð, sem gerðir hafa verið i til-
efni tiu éra afmæiis Bústaðakirkju, á
há tiðasamkomu vegna afmœlisins
sl. sunnudagsk völd. Bústaðakirkja
Uppbygging
miðbæjar-
Sandkorn
Sandkorn
Sandkorn
Eftt glwwnna umrnddu I Broadway.
Glösin brotnuðu í
tugavís
í Broadway
Skemmtistaðurinn Broa-
dway í Mjóddinni sló í gegn á
einu kvöldi. Strax fyrsta
kvöldið sem opnað var munu
hafa verið um 1000 gestir og
þegar fjölmennast var á laug-
ardag mun tala gestanna hafa
farið vel á fjórtánda
hundraðið. Er það mál
manna að staðurinn sé einkar
glæsilegur, mikið í hann lagt
og umfram allt gaman að
skemmta sér þar. Einn er þó
galli á gjöf Njarðar en það eru
barborðin, sem munu vera úr
óþarflega hörðu efni —
nefnilega marmara. Mörland-
inn er óvanur slikum flott-
heitum og skellir glösum
sínum af sama krafti og áður
á borðið. Enda var brothljóð
það algengasta sem heyrðist á
milli laga.
Rekkjubann
á Akureyri
Varla hefur það fariö
framhjá nokkrum að akur-
eyrskar konur hyggja á sér-
framboö. S Degi er sagt frá
því að framboðið hafi orðið
ónefndum húsverði i
opinberri byggingu yrkisefni:
Sé ég fyrir tíma ,,tristan’\
tækifæri úr greipum rann.
Kjósirðu ekki kvennalistann,
konur setja á rekkjubann.
Það ætti ekki að þurfa að
taka það fram að tækju
konurnar áðurnefnt bann upp
er næsta víst að bæjarstjórnin
á Akureyri yrði býsna
einkynja — kvenkyns
auðvitað.
Sambandið hraust-
lega „mjólkaó"
Blaðamenn og útgefendur
hafa löngum eldaö grátt silf-
ur saman og deilur aðilanna
hafa oft verið bæði
hatrammar og illvígar. Hins
vegar hefur alvaran sjaldan
Jóhann H. Jónsson, framkvœmda-
■góH Tfmans.
verið meiri en svo að ekki hafi
mátt læða einum og einum
brandara að.
í samningaviðræðum f
fyrra voru menn aö ræða um
hinn nýja framkvæmdastjóra
Tímans, Jóhann H. Jónsson,
mjólkurfræðing. Datt þá upp
úr einum viðstöddum að ekki
sakaði að hafa faglærðan
mann i mjólkun Sambands-
ins.
Deilt um efri
litið þá hæð löngunaraugum,
enda búið við mikil þrengsli
um langan tíma.
Nú hefur hins vegar verið
ákveðið að hefja byggingu
ráðhúss á Akranesi og munu
bæjarskrifstofurnar fá inni í
því húsi. Finnst mörgum það
hart að bærinn skuli ekki vilja
láta efri hæðina umdeildu eft-
ir, þar sem ljóst þykir að
starfsemin mun ekki verða
þar nema til skamms tíma.
Kriatteifur Jónaaon bankaatförf.
hæð bókasafnsins Neitaói að skipta
Nokkrar deilur munu nú
vera komnar upp á Akranesi
varðandi húsnæði bók-
hlöðunnar þar í bæ. Bóka-
safnið er um það bil að
sprengja núverandi húsnæöi
utan af sér og rennir hýru
auga til efri hæðar hússins.
Akranessbær hefur hins vegar
ávísun eigin
bankastjóra
Það kom heldur á Kristleif
Jónsson, bankastjóra
Samvinnubankans, á
dögunum. Hann fór með
ávísun frá Sparisjóöi Reykja-
víkur og nágrennis í
aðalbanka síns eigin banka,
og bað gjaldkera að skipta
henni. Gjáldkerinn, ung
stúlka, sem nýlega hafði hafið
störf hjá Samvinnubankan-
um, þekkti ekki bankastjór-
ann. Hún bað stjóra þvi um
skilríki og gaukaði því að
honum að hann gæti nú bara
labbað sér í Reykjavíkurspari-
sjóðinn og skipt ávísuninni
þar.
Nálægir gjaldkerar reyndu
að gefa þeim nýja bendingar,
en ekki var annað að sjá en
bankastjórinn skemmti sér
vel. Gjaldkerinn var einmitt
að gera það sem fyrir hann er
lagt. Það breytti því þó ekki
að hana setti dreyrrauða þeg-
ar bendingar hinna gjaldker-
anna komust loks til skila.
Sædýrasafnið
af stað á ný?
Sædýrasafnið hefur ekki
verið starfrækt allt þetta ár og
er ástæðan fyrst og fremst
fjárskortur. Nú mun jafnvel
vera í bígerð að vekja safnið
til lífs á ný og I áætlun sem
lögð hefur verið fram er gert
ráö fyrir að fjármagnsþörf
safnsins á næsta ári verði
um 800.000 kr. Þar er gert
ráð fyrir að hlutur ríkisins
verði fast að hclmingur. Ekki
fækkará jötunni.
ins á Akur-
eyri að
hefjast
Akureyrarbær hefur sagt upp leigu-
samningum að Hafnarstræti 103, en
leigutakar eru verslunin Drífa, skó-
verslun M. H. Lyngdal og hannyrða-
verslunin Hrund. Verslunareigend-
urnir fá góðan fyrirvara, því þeir þurfa
ekki að vera búnir að rýma húsnæðið
fyrr en 1. mars 1983.
Þessar aðgerðir bæjarins eru vegna
fyrirhugaðrar uppbyggingar í miðbæ
Akureyrar, samkvæmt nýgerðu deili-
skipulagi. Þar er m.a. gert ráð fyrir því
að umrætt hús við Hafnarstræti 103
hverfi, og einnig húsið við Hafnar-
stræti 105, sem er enn hrörlegra orðið,
en þar er rakarastofa til húsa. Síðan er
ætlað að byggja verslunar og skrif-
stofuhús á lóðinni Hafnarstræti 103 og
hluta af lóðinni nr. 105. Við þetta
opnast betur upp í „Skátagilið”, en þar
er hugmyndin að útbúa útivistarsvæði,
tengt miðbænum. í samræmi við það
hafa verið hugmyndir um að í nýju
byggingunni verði veitingarekstur.
Lóðin Hafnarstræti 105 og það
hrófatildur sem á henni stendur er í
eigu O. C. Thorarensen, lyfsala. Sagði
Helgi M. Bergs bæjarstjóri í samtali við
Vísi, að leitað yrði eftir kaupum á lóð-
inni með einhverju móti. Hann gat þess
einnig aðspurður, að tækjust ekki
samningar, þá hefði bærinn heimild til
að gera eigendum skylt að fjarlægja
húsið, ef það teldist ónothæft og spill-
andi fyrir umhverfi sitt. Einnig væri
hægt að taka lóðina eignarnámi.
-GS/Akureyri.