Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1981, Síða 12
12
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1981.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 1 92., 98. og 103. tbl. Lögbirtingablaðs 1980 á hluta í
Vesturbergi 78, talinni eign Vals Magnússonar fer fram eftir kröfu Út-
vegsbanka íslands og Guðmundar Þórðársonar hdl. á eigninni sjálfri
timmtudag 3. desember 1981 kl. 14.30.
Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 79., 81. og 85. tbl. Lögbirtingablaðs 1980 á hluta i
Torfufelli 21, þingl. eign Bárðar Steingrímssonar fer fram eftir kröfu
Kristjáns Stefánssonar og Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri
fimmtudag 3. desember 1981 kl. 16.00.
Borgarfógetaembættiö i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annaö og siðasta á hluta í Kötlufelli 11, þingl. eign Ragnars G. Guðjóns-
sonar fer fram eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík, Vcðdeildar Landsbank-
ans, Guðjóns Á. Jónssonar hdl., Landsbanka íslands og Gjaldheimtunnar
í Reykjavík á eigninni sjálfri fimmtudag 3. desember 1981 kl. 15.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Möðrufelli 1, þingl. eign Franz Arasonar fer
fram eftir kröfu Landsbanka tslands, Sigurðar Sigurjónssonar hdl., Veð-
deildar Landsbankans og Guðjóns Steingrímssonar hrl. á eigninni sjálfri
fimmtudag 3. desember 1981 kl. 15.45.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 28., 30. og 32. tbl. Lögbirtingablaös 1981 á hluta í Fells-
múla 18, þingl. eign Bjarna Þorsteinssonar fer fram eftir kröfu Iðnaðar-
banka íslands hf. og Landsbanka íslands á eigninni sjálfri fimmtudag 3.
desember 1981 kl. 11.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 64., 70. og 72. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1981 á
eigninni Hvaleyrarbraut 18—24, Hafnarfirði, þingl. cign Lýsis og Mjöls
hf., fer fram eftir kröfu Innheimtu ríkissjóös og Hafnarfjarðarbæjar á
eigninni sjálfri föstudaginn 4. desember 1981 kl. 13.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfiröi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 70., 74. og 77. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1981 á
cigninni Látraströnd 32, Seltjarnarnesi, þingl. eign Marinós Marinósson-
ar, fer fram eftir kröfu Landsbanka íslands á eigninni sjálfri föstudaginn
4. desember 1981 kl. 16.00.
Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Melabraut 41, kjallari, Seltjarnarnesi, þingl.
eign lluldar Árnadóttur, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 4.
desember 1981 kl. 15.30.
Bæjarfógetinn á Seltjarnarncsi.
Bílbeltin
hafa bjargað
UMFERÐAR
RÁÐ
Prestkosningar fara fram á Akureyri nœstkomandi sunnudag, 6. desember, um tvö prestaköll.
Annars vegar er um að rœða Akureyrarprestakallsem Jón A. Baldvinsson og Þórhallur Höskulds-
son sœkja um. Hins vegar verður kosið um Glerárprestakall en um það sœkja Gylfi Jónsson og
Pálmi Matthíasson. Blaðamaður DV á Akureyri hefur rœtt við frambjóðendurna og hér birtist
fyrsta viðtalið sem er við Pálma Matthíasson.
„Ekki mín reynsla
að kirkjusókn
fari þverrandi”
— segir Pálmí Matthíasson
„Mér hefur alltaf fundist aö
„heima” væri d Akureyri jafnvel
þó ég hafi búið langtimum á
öðrum stöðum. Ræturnar eru svo
sterkar, þær toga f mann og á
Akureyri á ég flesta mina ætt-
ingja og vini”, sagði sr. Pálmi
Matthiasson annar umsækjenda
um Glerárprestakall á Akureyri i
samtali við Vi'si.
Pálmi er fæddur og uppalinn á
Akureyri sonur hjónanna Jö-
hönnu M. Pálmadóttur og Matt-
hiasar Einarssonar lögreglu-
vatnssýslu.
Pálmi sagði það ekki sina
þjóns. Pálmi lauk stiídentsprófi
frá Menntaskólanum á Akureyri
og guðfræðiprófi frá Háskóla ís-
lands 1977. Sama ár var Pálmi
vigður tii Melstaðarprestakalls i
Hiinaþingi og fór vigslar. fram i
Akureyrarkirkju. Hefur Pálmi
þjónað þvi prestakalli siðan með
aðsetri á Hvammstanga. Eigin-
kona Pálma er Unnur ólafsdóttir
og eiga þau 6 ára gamla dóttur,
Hönnu Mariu. Unnur lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um i Reykjavlkog siðan kennara-
prófi frá Kennaraháskóla Islands
1977, bæði i almennri kennslu og
handavinnukennslu. Hefur Unnur
kennt við Hvammstangaskóla og
Tónlistarskóla Vestur-Húna-
reynslu aö kirkjusókn færi þverr-
andi. Þvert á móti hefði kirkju-
sókn aukisti Melstaðarprestakalli
á undanförnum árum. Mætti
þakka það aukinni þátttöku
kirkjunnar i félagsstarfi. Jafn-
framt tækju leikmenn vaxandi
þátt i' kirkjustarfinu. Einnig
sagðist Pálmi hafa tekið upp létt-
ara messuform, þar sem leik-
menn legðu sitt af mörkum með
predikunum og söng. Þá hefði það
gefist velaðfæra messutimann til
kvöldsins. T.d. hefðu aðventu-
kvöldin notiðmikilla vinsælda og
sagöist Pálmi hafa átt margar
ánægjulegar sam verustundir
með sóknarbörnum sinum i jóla-
mánuðinum.
Pálmi sagðist leggja mikla
áherslu á æskulýðsstarf, sem
fram færi i samvinnu við skólana
og ungmennafélögin. 1 þvi sam-
hengi minntist hann á fermingar-
undirbúninginn; Sagðist Pálmi
hafa komiö á þriggja daga mót-
um i samvinnu við nágranna-
presta, til lokaundirbúnings með
börnunum fyrir ferminguna.
„Allar aðgerðir kirkjunnar til
móts við fólkiö skila sér i aukinni
kirkjusókn.Sóknarbörnin eru lika
tilbúin að leggja á sig vinnu við
safnaðarstarfiö enda gerir
presturinn ekki mikið einn og
óstuddur”, sagði Pálmi.
Pálmi sagðist hiklaust fara inn
á sömu brautir i safnaðarstarfi á
Akureyri enda væru mögu-
leikarnir meiri I stærra byggðar-
lagi. En það er engin kirkja i
Glerárhverfi. Pálmi var spurður
hvort aðstöðuleysiö i hverfinu
komi ekki til með að há verðandi
sóknarpresti?
,,Það er rétt aðstaðan er ekki
eins og best verður á kosið”,
svaraði Pálmi. „Þaö má hins
vegar með góðu móti nota skól-
ann og kirkjuna i Lögmannshlið
þar til úr rætist. Það er trú min að
dugmikið áhugafólk i Glerár-
hverfi bæti þarna um áður en
langt um liður. Legg ég þá
áherslu á að byrjað verði á
safnaðarheimili en sjálf kirkju-
byggingin verði byggð i öðrum
áfanga. Þaö hafa nefnilega marg-
ir brennt sig á þvi að hugsa stdrt
og byrja á kirkjubyggingu. 1
safnaðarheimili gefst kostur á að
koma af stað öflugu félagsstarfi
innan sóknarinnar. Þar þarf
einnig að innrétta hlýlegan sal til
kirkjulegra athafna þar til kirkj-
an verður byggð”.
— En hvað gerir Pálmi þegar
presturinn á fri?
Fritimi prestsins er ekki mikill
og þær stundir sem gefast vilja
nýtast illa”, svaraði Pálmi.
„Prestur verður að hlýða kalli
hvenær sem það kemur og þá er
ekki spurt um staö né stund.
Ég er afskaplega félagslyndur
og hef gaman af að starfa með
fólki. Frftlmi minn á Hvamms-
tanga fer þvi mikið i ýmiskonar
félagsstarfsemi t.d. við æskulýðs-
og iþróttamál. Nú, ég er af sjó-
mönnum kominn og hef gaman af
að bregða mér ,,á skak” eða þá i
lax eða silung. Ef timi gefst til
heima við með fjölskyldunni
hlustum við hjönin gjaman á
góða tónlist gluggum I bók eða þá
dundum okkur við handavinnu,
ég við smiðar og Unnur viö það
sem kvenlegra þykir.
— Hvað um prestkosningar.
Pálmi var spurður hvort hann
væri sáttur við það fyrirkomulag
sóknarbarna við að velja sér
prest?
„Prestkosningar hafa marga
galla, þvi er ekki að leyna, en ég
fæ ekki séð betri kost. Það hefur
verið bent á þá leið að sóknar-
nefndir tilnefni prest. Ég held að
það sé sist betri kostur en
kosningarnar. Einnig hefur þvi
verið hreyft að eðlilegast væri að
ráðherra veittiprestaköll, eins og
hverjar aðrar opinberar stöður.
Þá er búið að draga pólitik inn i
spilið og ég dregi efa að það veröi
til blessunar fyrir kirkjuna.
Jákvæði þátturinn við prest-
kosningarnar eru þau kynni sem
undirbilningurinn leiðir til. Viö
reynum að hitta sem flestsóknar-
börn i þeim prestaköllum sem við
sækjumst eftir meö heimsóknum
eða öðru móti.
Það er min hjartans ósk að
undirbúningur kosninganna megi
fara friösamlega fram. Það eru
ekki mennirnir einir sem skipta
máli, heldur sá boöskapur sem
kirkjan hefur að flytja. Þar má
ekki falla blettur á”, sagði Pálmi
Matthiasson.
GS/Akureyri
Pálmi Matthiasson, ásamt dóttur sinni, Hönnu Maríu. .(Ljósm. GS)