Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1981, Síða 33
/ •>
DAGBLAÐIÐ& VlSIR. ÞRIÐJUDAGUR I. DESEMBER 1981.
33
MARGS KONAR VANDAMÁL
OG SAGA AF AFREKSMANNI
Lífið gengur sinn vanagang hér í
Noregi eftir vel heppnaða heimsókn
forseta okkar. Hér gerist margt
undarlegt eftir sem áður, enda tölu-
verð spenna í þjóðfélaginu og átök.
Síðasta staup
klukkan ellefu?
Kannski við byrjum á áfengis-
vandamálunum. Verdens Gang segir
að um 200 þúsund Norðmenn drekki
helminginn af því sem drukkið er
árlega af sterkum vínum, en árs-
neyslan er hvorki meira né minna en
25 milljönir lítra af hreinu alkóhóli.
Blaðið telur að 1 milljónNörðmanna
drekki of mikið, þar af eru um 100
Unglingavandamál
í velferðarríkjum nútímans virðist
allt verða að vandamálum. Það er
óskaplegt vandamál að sækja skóla,
enn verra vandamál að þurfa að
vinna með skólanum. Inn á milli
blöskrar mér allt vandamálavælið í
ungu fólki hér en slíkt virðist fylgja
háþróuðum velferðarríkjum. Margir
unglingar gefast upp við að brjóta sér
leið til mennta, eða frama, og fara á
sósíalinn, sem er ekki nærri eins gjaf-
mildur hér og í Danmörku og Sví-
þjóð. Undanfarið hefur þó bólað á
framtakssemi hjá þessu unga fólki —
nýverið hertóku allmargir unglingar
hús eitt hér í Osló og neituðu að
(Ljósm. sj.)
Haust í Osló
þúsund á skrá sem alkóhólistar og
yfir 200 þúsund sem hafa mikla þörf
fyrir aðstoð. Um 400 þúsund hafa
ekki nægilega góð tök á umgengni
sinniviðBakkus.
Hið opinbera hefur þvi í auglýsing-
um hvatt fólk til að endurskoða
áfengisneyslu sína og byrja þá endur-
skoðun með því að hætta að drekka
eftir 11 á laugardagskvöldum. Þetta
hefur að sjálfsögðu gefið blöðunum
gott tækifæri til að virða fyrir sér
vandamálin frá ótal hliðum. Almenn-
ingi finnst þessi tillaga yfirleitt fjar-
stæðukennd en almennt er samt
vandinn viðurkenndur. Ég hef aldrei
séð minnst á hina rómuðu þurrkví í
Bandarikjunum í áfengismála-
umræðu hér og tel að SÁÁ geti gefið
Norðmönnum vink í þessu vaxandi
vandamáli þeirra.
yfirgefa það. Viðkomandi unglingar
vilja hafa einhvern samastað annan
en rándýrar búlur, og láir þeim það
enginn. Borgaryfirvöld hafa tekið á
málinu með silkihönskum, enda vita
borgarfulltrúar innst inni að ungling-
armr hafa mikið til síns máls og að
þjóðfélag hinna grónu þjóðfélags-
þegna hentar illa fyrir mikinn fjölda
unglinga i dag. Sjúkdómseinkennin
eru hin sömu hér og í nálægum
löndum — orðið nær útilokað fyrir
ungt fólk að kaupa húsnæði, leigu-
markaðurinn ótryggur og leiguverð
íbúða uppsprengt.
Þessi framtakssemi unglinganna i
Osló hefur nú smitáð út frá sér, það
sama hefur nú gerst í Þrándheimi,
Haugasundi og víðar að ungt fólk
hefur sest að í ónotuðu húsnæði í
eigu bæjaryfirvalda. Of snemmt er
að spá hvort hér sé hafin ný upp-
reisnarbylgja ungs fólks en eitthvað
er í bígerð.
Útvarp — vfdeó
Allmikil umræða er hér um það
hvort einkaleyfi norska ríkisút-
varpsins / sjónvarps geti staðist
óbreytt öllu lengur. Hægri
flokkurinn lofaði einhverri slökun í
málinu, og nú hefur umsóknum um
takmarkaðan útvarpsrekstur —
Nærradio — rignt yfir menntamála-
ráðuneytið og er gert ráð fyrir að
einhverjar ákvarðanir um málið verði
teknar fyrir áramótin. Meðal þeirra
sem hafa áhuga á þessu máli eru
íslendingar búsettir hér í Osló og ná-
grenni. íslendingar í Svíþjóð eða
nánara sagt í Stokkhólmi, Gautaborg
og Málmey hafa sent út 30—45
mínútna dagskrá í viku hverri að
undanförnu. Þessi tegund útvarps-
rekstrar er enn á tilraunastigi í
Svíþjóð en allt bendir til að þetta út-
varpsform festist í sessi.
Margir ætla að græða á vídeóinu
hér sem annars staðar og slást stórir
sem smáir innflytjendur um
markaðinn. Fyrirtæki sem heitir
Esselte Video keypti af bandarísku
fyrirtæki einkarétt fyrir Skandinavíu
á sýningum nokkurra bandarískra
stórmynda á borð við „Grease”,
Guðföðurinn og „Haisommer”.
Nú hafa þessar sömu myndir flætt
inn á norska markaðinn frá fyrirtæki
í Englandi, og er víst mi kið dómstóla-
mál í uppsiglingu. Innflutnings-
fyrirtækin reyna nú að sameinast í
stærri samsteypur til að eiga hægara
með að berja hvert á öðru .
Noregsbréf
Sigurjón Jóhannsson
Alexander Kielland
Nánast í hverri viku frá því að hið
mikla óhapp gerðist með Alexander
Kielland borpallinn hefur þetta mál
verið til umræðu í norskum blöðum.
Ríkisstjórnin vill ekki standa að baki
frekari tilraunum til að koma
pallinum á réttan kjöl en aðstand-
endur hinna látnu vilja einskis láta
ófreistað til að ná út líkunum. Málið
fer nú fyrir norska stórþingið og er
eins víst að þar sé meirihluti fyrir því
að enn skuli gerð tilraun til að koma
pallinum á réttan kjöl. Vilji ríkis-
stjórnarinnar er sá að draga pallinn
út á rúmsjó aftur og sökkva honum
þar, þar sem vot gröf sé betri
valkostur en hættulegar aðgerðir við
að reyna að snúa pallinum. Talið er
útilokað að froskmenn geti náð út
líkunum, þar sem pallurinn liggur nú,
réttutanvið olíubæinn Stavanger.
Heimsókn
íkyrrþey
Ég sá í blöðum fyrir nokkru að
hér hefði leikið Kammersveit Reykja-
víkur. Ég hef ekki hitt nokkurn
íslending enn sem hafði spurnir af
komu hljómsveitarinnar. Það mætti
reyna að koma boðum um slikar
heimsóknir gegnum sendiráðið, sem
aftur gæti látið íslendingafélagið
hér vita. Hljómsveitin fékk ágæta
dóma og gagnrýnandi Aftenpostens
taldi hana mun betri en kammer-
hljómsveit Oslóarborgar.
Afreksmaður?
Og svo rakst ég á klausu í norsku
blaði fyrir nokkrum vikum, að
íslendingur nokkur hefði verið fang-
elsaður í smábæ ekki langt frá Osló.
Eitthvað kunni hann illa við sig í fang-
elsinu og gerði hann sér litið fyrir og
braut upp hurð fangaklefans með
dyrakörmum og tilheyrandi og
labbaði sig síðan út í fríska loftið.
Það var að skilja af klausunni að
fangaverðirnir hafi orðið svo hisia
að þeir hafi hætt við eftirför, en í
þess stað notað atburðinn til að
benda viðkomandi yfirvöldum á að
fangelsið væri ekki mannhelt, eða
réttara sagt ekki byggt til að hýsa
víkinga.
SOlDYRKENDUR
, ,. Dömur og herrar!
Brun at s°' Morgun-, dag- og kvöldtímar. • ... ___ ,
umjol. Losnið við vöðvastreitu og fáið brúnan lit f BEL-Ö-SOL sóibekknum. 1
Af
hverju sími
ekkí? Só/baðsstofan Ströndin 21116
Nýtt aðsetur: Háaleitisbraut 11,3. hæð.
Nýtt símanúmer: (91) 83711.
Pósthólf: 5196,125 Reykjavík.
Samband ísl. sveitarfélaga
Lánasjóður sveitarf élaga
Bjargráðasjóður