Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1981, Page 8
8
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1981.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Fjöldi þingmanna einstakra flokka eftir
úrslitin í kosningunum í gær
(innan sviga töpuð eða unnin þingsæti):
Jafnaðarmannaflokkkur 59(—9)
Ihaldsflokkur 26( + 4)
Vinstri 21(—1)
Sósíalíski þjóðarfl. 20( + 9)
Framfaraflokkur 16(—4)
Miðflokkur 15(+ 9)
Róttækir vinstri 9(—l)
Vinstri sósíal. 5(—l)
Kristil. þjóðarfl. 4(— 1)
Þingkosningamar í Danmörku:
Anker Jörgensen segir af sér í dag
STJÓRNARMYNDUN TOR-
VELD EFTIR ÚRSUTIN
Goodyear snjóhjólbarðar eru
hannaðir til þess að gefa
hámarks grip og rásfestu
í snjóþyngslum og hálku
vetrarins
Þú ert öruggur á Goodyear
Gunnlaugur A. Jónsson frá Lundi:
„Við skulum soTa á þessu og við
skulum sofa vel og lengi,” sagði
Erhard Jacobsen, formaður danska
Miðflokksins, þegar úrslitin í þing-
kosningunum voru ljós í Danmörku
upp úr miðnættinu.
Erhard Jacobscn: Gruflar yfir flókinni
stöðu í refskák danskra stjórnmála.
GOODWYEAR
GEFUR e'RETTA GRIPIÐ
VETRAR
Flokkur hans hafði óvænt bætt við
sig 9 þingsætum. Verður hann að
teljast sigurvegari kosninganna ásamt
Sósíalíska þjóðarflokknum, sem einnig
vann 9 þingsæti.
Staðan á danska stjórnmálasviðinu
er hins vegar svo flókin eftir úrslidn í
gærkvöldi, að mjög ótrúlegt er talið, að
takist myndun nýrrar ríkisstjórnar fyrir
jól. — Er ekki talið fráleitt, að boða
verði fljótlega aftur til nýrra
kosninga.
Eins og búizt hafði verið við, tapaði
'Jafnaðarmannaflokkur Anker Jörgen-
sens miklu fylgi. Missti hann alls 9
þingsæti. Það flækir stöðuna, að
stærstu borgaraflokkarnir (íhalds-
flokkurinn og Vinstri, sem er í raun
hægri flokkur, þrátl fyrir nafnið) áttu
ekki þeirri velgengni að fagna, sem
skoðanakannanir höfðu bent til. —
íhaldsflokkurinn vann 4 þingsæti.
Vinstri tapaði I.
Það er því engan veginn víst,
að borgaraleg stjórn taki við i Dan-
mörku. +
„Það er ákaflega erfitt að sjá,
hvernig hægt er að mynda meirihluta-
stjórn út frá þessari samsetningu
þingsins,” sagði Anker Jörgensen for-
sætisráðherra. — Hann lýsti því yfir
strax fyrir miðnætti í gærkvöldi, að
hann mundi'í dag ganga á fund drottn-
Anker Jörgensen, forsætisráðherra:
Hann segir af sér i dag.
ingar og biðjast lausnar fyrir rikis-
stjórnina.-- Formenn hinna flokkanna
virðast honum sammála um þetta.
Mogens Glistrup, formaður Fram-
faraflokksins, sem tapaði 4 þing-
sætum, sagðist treysta Erhard Jacob-
sen bezt til þess að mynda meirihluta
borgaralegu flokkanna sex. — Líkur á
slíkri stjórn eru þó harla litlar, þar sem
Henning Cristophersen, formaður
Vinstri, hefur hafnað öllu samstarfi við
'Framfaraflokkinn.
Alls buðu 13 flokkar frani til
kosninganna og fengu 9 þeirra menn
kjörna á þing. — Réttarsambandið
þurrkaðist alveg út af þingi, þegar það
tapaði öllum fimm þingsætum sinum.
FULLKOMIN
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
Tölvustýrd jafnvægisstilling
ÁMÓTI
BARNEIGNUM
Stjórn S-Kóreu hefur ákveðið að húsnæði og gangist annað hjónanna
leggja aukaskatt á þá sem eiga þrjú undir ófrjósemisaðgerð fær fjöl-
börn eða fleiri til að setja hömlur á skyldan bæði skatta- og húsaleigufrá-
óæskilega fólksfjölgun. Hjón með drátt.
aðeins eitt barn eru látin ganga fyfir um
HEKIAHF
Laugavegi 170-172 Sími 21240
RÆNDA VÉUN
TIL ÍRANS
Líbýska farþegavélin, sem rænt var
yfir Ítalíu á mánudag, lenti á alþjóða-
flugvelli Teheran í morgun snemma.
Um borð í henni voru 35 farþegar, auk
áhafnar.
Yfirvöldí íran urðu við beiðni
líbýska sendiráðsins í Teheran og
leyfðu lendingu vélarinnar, sem kom
frá Beirút í nótt. Standa nú yfir
samningaviðræður við ræningjana.
Ræningjarnir hafa komið við í
AþenuogRóm, auk Beirút. Þeirsegjast
hafa rænt vélinni til þess að beina
athygli heims að máli trúarleiðtoga
Shiite-múslima í Líbanon. Þeir halda
því fram, að hann sé á valdi Gaddafi
leiðtoga í Líbýu. Moussa Sadr, imam
þeirra Shiite-manna, hvarf í heimsókn í
Libýu 1978.