Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1981, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1981, Blaðsíða 12
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1981. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Neyt JOLA- MATUR Varla kalkúnar og endur á jólaborðið „Furðulegur tími f er í hönd” — segir Hrafn Bachman í Kjötmiðstöðinni „Þessi tími fyrur jólin núna verður liklega sá alfurðulegasti síðan ég byrjaði að verzla. Það kemur til með að vanta svo margar vörutegundir inn í,” sagði Hrafn Backmann, kaupmaður í Kjötmiðstöðinni, er blaðamaður DV hafði samband við hann. „Vegna ráðstöfunar yfirvalda hafa margir framleiðendur dregið saman seglin. Afleiðingin af fóðurbætis- skattinum er að koma í ljós gagnvart neytendum. Það hefur tekið tvö árað keyra eðlilegar birgðir niður í ekki neitt og nú stefnir í vöruskort. Svína- kjöt verður til dæmis af skornum skammti fyrir jól. Þetta er eðlileg af- leiðing, þegar yfirvöld ráðsk- ast og ákveða hvað fólk á að borða,” sagði Hrafn. Fyrir utan takmarkaðar birgðir af svínakjöti, gat kaupmaðurinn þess aö endur og kalkúnar væru næstum ófáanlegur varningur og minna væri af hreindýrakjöti en verið hefði und- anfarin ár. „Síðan gæti ég trúað að nauta- kjötsskortur verði fyrirsjáanlegur á næstu vikum. En eftir stendur auð- vitað lambakjötið, bæði léttreykt og svo hangikjötið. Ekki má heldur gleyma hænsnum, framboð af hænsa- kjöti verður eðlilegt. Þú spyrð svo um rjúpuna. Aðalveiðitími rjúpunn- ar var í fyrra frá 5.—12. desember, svo að enn er ekki öll nótt úti með framboð á rjúpu. í fyrra var rjúpan seld á 29—30 krónur stykkið, og hækkun á einstaka kjötvörum hefur verið á árinu 50—65%, svo að alla- vega hækkar rjúpan töluvert í verði, en sjálfsagt fer endanlegt verð eftir framboði,” sagði kaupmaðurinn í Kjötmiðstöðinni. -ÞG Svara leitað hjáþremur verzlunarmönnum Verður einhver vöruskorturfyrir jólin og ef útlit erfyrirskort, þá á hvaða vörutegundum? Við leituðum til þriggja verzlunar- manna til að kanna málið, og fara svör forráðamanna viðkom- andi verzlana hér á eftir. En áður en litið er á svör þeirra, skal þess getið, að einungis virðist kreppt að varðandi einstakar kjöt- vörur. Svo og eggin sem neytendur hafa áþreifanlega orðið varir við að eru skömmtuð. Þessi árlegi eggjaskortur í desember er orðinn staðreynd og viðskiptamenn geta aðeins keypt einn pakka í hverri verzlunarferð. Ekki örlaráskorti á öðrum vörutegundum en eggjum og einstaka kjötvöru. -ÞG. Bókhaldið skeffilega leiðinlegt Ensparar mikla peninga Þ.I. skrifar: Hér sendi ég inn októberseðilinn eftir stutta byrjun og langt hlé, þ.e. ég sendi inn einn seðil fyrir nokkrum mánuðum en lét þai \i<*> sitja, þvi að mér þótti (og þvl irj þetta skelfilega leiðinlegt. En svona bókhald borgar sig, það sé ég bezt á þessum mánuði. Það hvetur mann óneitanlega til að halda áfram. Segja má að þessi mánuður hafi verið nokkuð dýr í matarkaupum (915 krónur á mann). Þá er þarna matur sem fór beint í frystikistuna, s.s. nautakjöt, kindaskrokkar og slátur. Sé það dregið frá verður matarkostnaðurinn 422 krónur á mann, sem mér finnst ekkert sér- stakt. Liðurinn annað hljóðar upp á7673,25. Þess má geta að mér hefur reynzt eftir að fá eiginmanninn í lið með mér. Útgjöldin hjá honum eru ekki beint heimilinu viðkomandi nema þá helzt greiðslur af lánum og þess háttar varöandi ibúðarkaup. Liður- inn annað ætti þannig að vera mun hærri. Handþvotta- kremgegn hvers konar blettum Pálheiður Einarsdóttir hringdi með enn eitt ráð til að ná úr kúlu- pennableki. (Áður hefur verið bent á skyr og mjólk). Hún sagðist nudda blettinn vel upp úr hand- þvottakremi frá Frigg og ef kostur- væri, láta það standa i nokkra stund. Síðan væri flikin þvegin á venjulegan hátt. Pálheiður sagðist hafa notað þetta krem í mörg ár til þess að ná hvers konar blettum úr fatnaði. T.d. fitublettum, olíublett- um og tjörublettum, sem menn fá i föt sín af götunni. Ef um viðkvæmt efni er að ræða, getur þetta reyndar verið ögn tvíeggjað því nudda þarf blettinn vel. Við þökkum Pálheiði ráðið og komum þvi hér með á framfæri. DS „Sala á hangikjöti til útlanda óbreytt” — segir Bjöm Ingi í Kjötfoúð Suðurvers „Það er alveg borðleggiandi að framboð á svínakjöti verður litið, en neyzla svínakjöts hefur aukizt mikið á kostnað lambakjötsins,” sagði Björn I'ngi Björnsson, kaupmaður í Kjötbúð Suðurvers, er hann var inntureftir vöruskorti fyrir jólin. „Minna er um rjúpu en i fyrra og þar hefur veðráttan átt stærstan þátt, Það eina sem kemur greinilega til með að vanta er svínakjöt, já, og hreindýrakjöt höfum við ekki fengið, sagði Guðjón Guðjónsson, verzlun- arstjóri i SS Glæsibæ er blm. DV leit- aði svara hjá honum. Framboð af kalkúnum er lítið sem ekkert, og takmarkað af öndum, en gæsir ættu að verða nægar að sögn en auðvitað getur enn rætzt úr. Verð á rjúpunni — ja, er ekki talað um sextíu krónur stykkið? Björn Ingi tók í sama streng og aðrir, sem við ræddum við, að lítið sem ekkert framboð væri á kalkún- um og öndum, en varðandi framboð nautakjöts taldi hann að meira nautakjöt yrði til á næstunni í kjöl- verzlunarstjórans. Þá tók hann í sama streng og hinir að auðvitað væri nóg af lambakjötinu svo og hænsnum. En Guðjón kvað sölu á hangikjöti hafa dottið töluvert niður. Rjúpur eru til í SS Glæsibæ en end- anlegt verð þeirra liggur ekki fyrir, en Guðjón taldi líklegt verð fimmtíu krónur. -ÞG far verðhækkunar á búvörum. En hvað um jólahangikjötið? Er liklegt að dragi úr sölu þess nú fyrir þessi jól? „Það kemur í Ijós á næstu dögum hvort fólkið breytir aldagamalli hefð og sleppir því að neyta jólahangi- kjötsins. En sala á hangikjöti til vina og vandamanna erlendis er sú sama og verið hefur undanfarin ár,” sagði Björn Ingi, kaupmaður í Kjötbúð Suðurvers, og gaukaði einu laufa- brauði að okkur við brottför sem for- skoti á jólasæluna. -ÞG „Gæsir ættu að verða nægar til” — segir Guðjón Guðjónsson verzlunarstjóri í SS Glæsibæ *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.