Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR9. DESEMBER 1981.
9
Útlönd Útlönd Útlönd . Útlönd
Kaare Willoch, forsætísráðherra íiStórþinginu, en hægri flokkur hans missti
einn þingmann til Verkamannaflokksins.
Aukakosning-
ar í Noregi
Aukakosningar fóru fram í tveim
kjördæmum í Noregi í fyrradag vegna
ruglings sem varð með ógildu atkvæðin
í kosningunum fyrir ári.
Var fylgzt með talningu atkvæða í
Troms og Buskerud af mikilli athygli í
fyrrinótt, því að þingmeirihluti ríkis-
stjórnarinnar var aðeins þrír þing-
menn.
Verkamannaflokkurinn vann einn
þingmann af Hægriflokknum í Busker-
ud, en Kristilegi þjóðarflokkurinn,
sem er í stjórnarsamstarfi með Hægri-
flokknum og Miðflokknum, hélt sínum
manni í Troms.
Kosningaþátttaka var mjög dræm og
þótti það koma Verkamannaflokknum
til góða, sem jók fylgi sitt um 2,9% frá
því í desember í fyrra. — Á því þótti
bera í atkvæðasmöluninni að miðju-
flokka menn legðu atkvæði sín á lóð
eins frambjóðanda, þótt ekki væri
flokksbróðir, til þess að tryggja honum
gengi. Og svo sömuleiðis á vinstri
vængnum.
-JEG.
5 íboði til
stöðu Waldheims
Fimm nýir frambjóðendur hafa hellt
sér út í kosningaslaginn um stöðu fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna.
Öryggisráðið setti framboðsfrest, sem
rennur út í dag.
Kurt Waldheim og Salim Ahmed
Salim, utanríkisráðherra Tanzaníu,
hafa báðir dregið sig í hlé úr kosning-
unni og eru hættir við. Kína og Banda-
ríkin höfðu með neitunarvaldi hindrað,
í margendurteknum atkvæðagreiðslum
Öryggisráðsins, að annar hvor þeirra
hlyti meðmæli ráðsins.
Nöfn hinna nýju frambjóðenda voru
gerð kunn í gærkvöldi. Þeir eru: Carlos
Oritz de Rozas, sendiherra Argentínu i
London. Sadruddin Aga Khan, fyrrum
forstöðumaður flóttamannahjálpar
Sameinuðu þjóðanna. Javier Perez de
Cuellar frá Perú, en hann er aðstoðar-
framkvæmdastjóri S.Þ., Shridath
Ramphal, embættismaður samveldis-
ins. Jorge Illueca, utanrikisráðherra
Panama.
Ekkert þessara nafna kemur á óvart.
Mennirnir hafa allir verið orðaðir við
hugsanlegt framboð. — Hugsanlegt
þykir að einn eða tveir bætist í fram-
boðið í dag.
Enginn þessara manna þykir öruggur
um að hljóta 9 atkvæði í Öryggisráð-
inu, eins og til þarf. Líklegastir þykja
samt Aga Khan prins og Perez de
Cuellar.
Allsherjarþingið ætlar að velja fram-
kvæmdastjóra, áður en jólafríið hefst
næsta þriðjudag.
SLEPPTU FARÞEGUM
3JA VÉLA Á KÚBU
Farþegar þriggja flugvéla frá
Venezúela sluppu úr gíslingu í gær í
Havana á Kúbu. Fögnuðu þeir frelsinu
í einum af næturklúbbum Havana í
gærkvöldi.
Flugræningjarnir tólf gáfu sig á vald
lögreglunni á Kúbu við komuna í gær.
Enn er ókunnugt um þjóðerni þeirra.
Þeir höfðu rænt vélunum þrem á
mánudag, þegar þær voru í innanlands-
flugi í Venezúela. Farþegar voru 250
talsins. Mörgum var sleppt á þessari 16
þúsund km flugleið, þegar ræningj-
arnir höfðu viðkomu í Kólómbía,
Antilópueyjum, Honduras, Guatemala
og Panama til þess að taka eldsneyti.
Alls voru 150 farþegar eftir á valdi
ræningjanna þegar þeir komu til Kúbu.
Farþegarnir munu fara aftur til Vene-
zúela í dag. Báru þeir flestir ræningjun-
um vel söguna. Töldu þeir að ræningj-
arnir væru landar þeirra.
Á Ieiðinni höfðu sumir ræningjanna
dregið upp armborða sem þeir smeygðu
á handleggi sér. Báru þessir borðcr
áletrunina: „E1 Salvador mun sigra”.
AIWA
er á réttu línunni
AIWA hljómtækin eru ekki aðeins góð, útlitið er líka í sérflokki.
Opið á laugardögum • Skoðið I gluggana • Sendum í póstkröfu.
Altt til híjómfíutnings fyrir:
heimifíð — bUinn
og
diskótekið
D I -
KdOTÖ
ÁRMÚLA 38 (SELMÚLA MEGIN) - 105 REYKJAVfK
SlMAR: 31133-83177 - PÓSTHÓLF 1366.
Jakob Jónsson:
P1S
FRÁ SÓLARUPPRÁS TIL
SÓLARLAGS
Bók, sem þú lest í einni lotu!
Þessi bók sameinar á sérstæðan hátt
skemmtun og aivöru. Sá lesandi er
vandfundinn, sem ekki les hana í einni
lotu, ýmist hugsi og veltandi vöngum,
eóa með bros á vör, — jafnvel kunna
sumir að hlæja dátt yfir hinum stór-
fyndnu sögum af samferðamönnum
séra Jakobs. Stutt lýsing hans á atburði
eða smámynd af persónu gefur oft betri
hugmynd um lífsferil en langar lýsingar.
Jón Auðuns: TIL HÆRRI HEIMA
Fögur bók og heillandi.
Bókin hefur að geyma 42 hugvekjur, úr-
val úr sunnudagshugvekjum séra Jóns,
sem birtust í Morgunblaðinu. Það voru
ekki allir sammála honum í túlkun hans
á sannindum kristindómsins, en flestir
voru sammála um snilld hans í fram-
setningu sjónarmiöa sinna, ritleikni
hans og fagurt mál.
Þaö er mannbætandi að lesa þessar
fögru hugvekjur og hugleiða í ró efni
þeirra og niðurstöður höfundarins.
SKUGGSJA BÓKABÚO OLIVBRS STEINS SE
SKUGGSJÁ
BÓKABÚO OUVERS STEINS SE