Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1981, Page 10
DAGBLAÐIÐ&VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1981.
10
ítö/sk reyrhúsgögn
nýkomin
Formfegurð og gæði
cSb NýborgE
O Ármúla 23 Sími 86755
KVIKMYNDAMARKAÐURINN
VIDEO ☆ TÆKI ☆ FILMUR
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 19 (KLAPPARSTÍGSMEGIN)
SÍM115480
GARDÍNUKAPPAB
Skrautíistar
Hurðagerekti
Kverka/istar
Mákrú^&biciiti
VESTURGÖTU 21 - SÍMI21600
Húsnæði óskast —
Féiagasamtök
Félagasamtök óska eftir skrifstofuhúsnæði í Reykjavík
sem fyrst, og ekki síðar en um áramót. Má einnig vera
sæmilega rúmgóð íbúð, því að starfsemi félagsins fer
næstum eingöngu fram um sima og póstþjónustu.
Upplýsingar leggist inn á upplýsingaþjónustu DB & Vísis
merkt „H-38”.
Afsiáttarkort
Það borgar sig að ganga í KRON.
Nýir félagsmenn fá 10% afsláttarkort, sem gilda til 16.
desember.
Kortin eru afhent á skrifstofu KRON, Laugavegi 91,
kl. 9—16.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR
Eftirtaldar stöður eru lausar til umsóknar:
Stöður hjúkrunarforstjóra við heilsugæslustöðvarnar á
Daivík og Selfossi og stöður hjúkrunarfræðinga við heilsu-
gæslustöðvarnar í Árbæ í Reykjavík, Vík í Mýrdal,
Laugarási í Biskupstungum, Kirkjubæjarklaustri, Djúpa-
vogi, Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði og Heilsugæslustöð
Suðurnesja í Keflavík.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
að hjúkrun sendist heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
2. desember 1981.
HÖFN UNDIR ÍSNUM V
Kqfbáturinn leggst ofan á sérstakan lendingar
pall, og leidsla, sem liggur milli lands og palls,
er tengd lestunarkerfi hans. ~\
■\hö/n. \ chirn_i*
\ sljórrifHillur \
lU'ndini’arpullur
Cargo tanks
Gasinu dælt úr eda
i sex lestargeyma.
I t’mul kafháts JS7 m
t'i)u 44S ni. |
'Leidslur á hafshotninum
flytja gasió i vökvaformi
frá landi til lestunar. eða til
lands vidlosun.
Útlönd Útlönd Útlönd
Ollukafararnir eru hugsaðir jafnstórir stærstu olfuskipum.
RISAKAFBATAR
TILGAS-OG
OLÍUFLUTNINGA
1 Prudhoe-flóa í Alaska er að finna
auðugustu jarðgaslindir. sem menn
þekkja til í Norður-Ameríku. — En
Prudhoe-flói er norður á hjara veraldar
(um 500 mílur norðan heimskauts-
baugs) og vandinn er sá að koma þessu
gasi á orkuhungraðan markaðinn.
í kafi undir heimskautaísn-
um
Stórfyrirtækið General Dynamics
lagði nýlega fram hugmyndir til lausnar
þeim vanda, og gætu þær verið teknar
beint út úr ævintýrum Jules Verne. Þeir
hjá General Dynamics ala á vonum um
að smíða flota risavaxinna neðansjáv-
arolíuskipa. Einskonar tankkafskipa,
því að kafbát er naumast unnt að
kalla 950 þúsunda smálesta skip. Með
þessum ferlíkjum er hugmyndin að
ferja jarðgasið til hafna á austurströnd
Kanada og í Evrópu.
Ef einhverjir ætla nú við þennan lest-
ur, að þeir hjá General Dynamics hafi
lesið yfir sig af vísindareyfurum, má
benda á, að General Dynamics rekur
stærstu skipasmíðastöð Bandarikjanna
og hefur hannað og smiðað kjarnorku-
kafbáta fyrir Bandaríkjaflota og fjölda
risaolíuskipa. Tækniþekking þeirra
hefur lagt mikið af mörkum til köfun-
arþróunar og geimferðaþróunar. —
Þessir hugvitsmenn telja það bæði
tæknilega gerlegt og viðskiptalega hag-
kvæmt að framleiða risaolíuskip til
neðansjávarsiglinga í einmitt þessu
augnamiði.
Stærri en 4 knattspyrnuvellir
Hver olíukafari á samkvæmt þessum
hugmyndum að flytja 37 milljón gallon
af jarðgasi í vökvaformi, kælt niður í
mínus 260 gráður á Farenheit. En ráða-
gerðin felur í sér, að endastöðvar þess-
ara skipa verði neðansjávarhafnir, þar
sem þau lesti og losi án þess að koma
uppáyfirborðið.
General Dynamics segist geta smíðað
módel, annað fyrir 387 metra langt og
hitt 488 metra gaskafara. Jafnvel
styttra skipið yrði lengra en fjórir
knattspyrnuvellir samanlagðir og eins
stórt og hvert það risaolíuskip, sem
núsigliráhöfunum.
700 milljónir stykkifl
Og likt og kjarnorkukafbátar flot-
ans, sem athafna sig undir heimskauta-
ísnum án nokkurra erfiðleika, þá
mundu þessir gaskafarar vera útbúnir
með fullkomnustu rafeindasiglinga-
tækjum til að afstýra neðansjávar-
árekstrum eða slysaströndum. — Þessir
kafbátar yrðu ódýrari í rekstri en hefð-
bundnari olíuskip, sem útbúin eru eins
og ísbrjótar, og í kyrrðinni niðri í
djúpinu geta þeir athafnað sig allan
ársins hring óháðir veðri eða ástandi
íssins.
Hver þessara farkosta mundi kosta
700 milljónir dollara í smiði, en allur
flotinn, sem menn hafa í huga, mundi
kosta 20 milljarða dollara. Hefur
General Dynamics þegar hafið viðræð-
ur við vestur-þýskar skipasmíðastöðvar
um að steypa saman alþjóðafyrirtæki,
sem annast gæti þetta hrikalega verk-
efni.
Til mótvægis gassölu Sovét-
manna
Þessar hugmyndir og áætlanir njóta
velþóknunar bandaríska utanríkisráðu-
neytisins, því að í Washington hafa
menn áhyggjur af því, að Vestur-
Evrópa verði of háð Sovétrikjunum um
gas, þegar gasleiðslan mikla frá Síberiu
hefur verið tekin í gagnið. Gas frá
Prudhoe-flóa gæti komið til mótvægis.
1 upphaflegum áætlunum gerir
General Dynamics ráð fyrir að þessir
risakafbátar flytji Alaska-gasið til Wil-
helmshaven i ý-Þýskalandi, en eins
mætti flytja það á Bandaríkjamarkað,
því að hin fyrirhugaða 4.800 mílna gas-
leiðsla frá Prudhoe-flóa til San-
Francisco og Chicago er strönduð á
teikniborðinu vegna skorts á fjár-
magni. Þótt ein af nefndum Banda-
ríkjaþings hafi samþykkt nýja fjár-
mögnunaráætlun um lagningu leiðsl-
unnar, þá þykir allt í óvissu um, hvort
nokkurn tíma verði ráðist i hana.
(Hndursagt úr Ncwsweek.)