Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1981, Side 16
16
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1981.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á hluta i Stífluseli 4, þingl. eign Lúðvíks Hraundal fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavík, Veðdeildar Landsbankans
og Björns Ólafs Hallgrímssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudag 11.
desember 1981 kl. 15.30.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 46., 50. og 53. tbl. Lögbirtingablaðs 1981 á hluta í Selja-
braut 74, þingl. eign Róberts J. Jack fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar
í Reykjavik og Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri föstudag 11.
desember kl. 13.45.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á hluta í Gaukshólum 2, þingl. eign Ragnars Péturssonar
fer fram eftir kröfu Búnaðarbanka Íslands, Lífeyrissjóðs fél.
framreiðslumanna, Gjaldheimtunnar í Reykjavik og Veðdeildar Lands-
bankans á eigninni sjálfri föstudag 11. desember 1981 kl. 15.15.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 92., 98. og 103. tbl. Lögbirtingablaðs 1980 á hluta í
Asparfelli 10, þingl. eign Disu Pálsdóttur, fer fram eftir kröfu Guðjóns Á.
Jónssonar hdl. og Gjaldheimtunnar i Reykjavík á eigninni sjálfri föstudag
11. desember 1981 kl. 15.45.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 96., 97. og 100. tbl. Lögbirtingablaðs 1980 á hluta í
Gyðufelli 12, þingl. eign Auðar Kristófersdóttur fer fram eftir kröfu Þor-
steins Eggertssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudag 11. desember 1981 kl.
11.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á hluta í Gyðufelli 16, talinni eign Gústafs Gústafssonar
fer. fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbankans og Gjaldheimtunnar í
Reykjavik á eigninni sjálfri föstudag 11. desembcr 1981 kl. 14.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
Að kröfu innheimtu ríkissjóðs, innheimtu Hafnarfjarðar, Gjaldheimt-
unnar í Reykjavík, bæjarfógctans í Kópavogi, sýslumannsins í Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu, sýslumannsins í Snæfellsness- og Hnappadalssýslu,
ýmissa lögmanna og stofnana, fer fram nauðungaruppboð á lausafé við
áhaldahús Hafnarfjarðar v/Flatahraun i Hafnarfirði, miðvikudaginn 16.
desember 1981, og hefst það kl. 14.00 e.h.
Krafist er sölu á:
I. BIKRKIÐAR: C—36, C—168, G—231, C—496, C—684. C—847.G—1243, G—1463, G—
1502, G—1606, G—1626, G-1747, G-1749, C-1751, G-1787, G-2131, G-2655, G—
2680, G—2729, G-3087, G-3149, G-3213, C-3313, G-3704, G-3741, G-3823, G—
3862, G—4706, G-4791, G-5036, C-5255, G-5300, G-5387, G-5553, G-6053, G—
6657, G—7332, C-7417, G-7654, G-8054, G-8225, G-8878, G-9002, G-9062, G—
960I,G-9604,G-10806,G—10861, G-l 1133,G-l 1163, G-11522, G-l 1524, G-l 1529.
G—12177, G—12221, G—12223, G—12470, G—12585, G—12762, G—12*40, G—12982, G—
12987; C—13052, G—13290, G—13327, G—13900, G—13936, G—13995, G—14055, G—
14168, G—14512, G—14669, G—14686, G—14748, G—14780, G—15009, G—15204, G—
15792, G—15906, G—15937, G—16016, C—16252, G—16267, G—16276, G—16293, G—
16498, G—16553, G—16659, G—16772, R-18000, R—18718, R—27033. R—37350, R—
39464, R—44654, R-53587, R-55479, R-55595, R-56603, R-62389, R-63050, R—
63073, R—66804, R-67755, R—71766, Ö-3346, M-1262, M-2913, K-165, Hornct
númerslaus.
il. ADRIR KAUSAFJÁRMUNlR: Litsjónvarpstæki, hljómtæki, útvarpsmagnari,
Skidoo-snjósieði, loftpressa, flygill, þvottavélar, sófasett, sófaborö, borð-
stofuborð, ísskápar, Saxon Ijósritunarvél, 4 gúmmímottur, 120 stk. hvítir
fiskkassar, fræsivél, borvél, rennibekkir, hefill V. Röwenger, kæliborð,
peningakassi, bókahillur, ruggustóll ásamt skemli, borðstofusett, skápa-
samstæða.
Uppboðsskilmálar liggja frammi á skrifstofu embættisins.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði,
Garðakaupstað og á Seltjarnarnesi,
sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
í setustofu og borðstofu. Húsgögnin frá Viði meö áklæði frá Álafossi á gólftcppi og við gluggatjöld frá Álafossi.
Víðir og Álafoss með markaðsátak
&
æ
TÖSKUHÚSIO
Laugavegi 73i/
Sími15755 /
Tvö íslensk fyrirtæki, Trésmiðjan
Viðir hf. og Álafoss hf., kynna um
þessar mundir nýja framleiðslu sem
þau hafa látið hanna til þess að stórefla
samkeppnisstöðu sína í sölu húsgagna,
áklæða, gluggatjalda, gólfteppa,
værðarvoða og veggteppa.
Víðir hefur tekið þátt í undanfarandi
markaðsátaki í húsgagnaiðnaðinum og
fékk Álafoss í lið með sér. Finnskur
húsgagnaarkiteakt, Athi Taskinen pró-
fessor, hefur hannað nýju framleiðsl-
una með aðstoð konu sinnar, Rita
Taskinen, og textílhönnuðar Álafoss,
Guðrúnar Gunnarsdóttur. Nær fram-
leiðslan til setustofu, borðstofu, hjóna-
herbergis, og barna- og unglingaher-
bergja og er hægt að fá allan búnað í
stíl. Húsgögnin eru léttari en almennt
hefur þekkst frá íslenskum framleið-
endum, og yfir öllu er finleiki og lát-
leysi.
Það var samdóma álit þeirra, sem
blaðið hafði tal af þegar fyrirtækin
kynntu fyrst þessa nýju framleiðslu, að
hún væri sérlega vönduð og skemmtileg
á alla lund og mætti vænta mikils af
henni á markaði bæði hér og erlendis.
Viðræður um útflutning hafa staðið
um skeið og hafa stórir kaupendur er-
lendis sýnt mikinn áhuga.
-HERB.
VIUA FESTA SÖGU
DALVÍKUR A FILMU
Rafn Arnbjörnsson varpaði
nýverið fram þeirri spurningu í
Bæjarstjórn Dalvíkur, hvort rétt
væri að fá einhvern til að festa á
filmu ýmsa atburði og daglegt líf I
bænum, til eignar fyrir bæjarfélagið.
Hilmar Danielsson tók undir þetta
og mælti með því að keypt yrðu tæki
til kvikmyndatöku, sem jafnframt
gætu þjónað fréttamanni sjónvarps.
Krisján Ólafsson tók þetta mál
upp á bæjarráðsfundi skömmu síðar.
Talaði Kristján þar um að rétt væri
að auglýsa eftir manni til að sjá um
slíkar myndatökur. Rætt var fram
og aftur um þessi mál á fundinum,
m.a. um tengsl við ríkisfjölmiðlana,
videobyltinguna o. fl. Niðurstaðan
varð sú, að fela stjórn Héraðsskjala-
safnsins að gera tillögu að fyrir-
komulagi við heimildasöfnun á
Dalvík.
„Hugmynd mín er að komið verði
upp aðstöðu til að afia heimilda af
mannlífi á Dalvik og í Svarfaðardal,
jafnóðum og hlutirnir gerast,” sagði
Kristján í samtali við DV. ,,Þó okkur
þyki þetta ekki merkilegir atburðir
þegar þeir eru að eiga sér stað, þá
verður samfelld saga byggðarinnar á
kvikmynd óneitanleg heimild er timar
liða. Það eru til nokkrir gamlir kvik-
myndafilmubútar frá Dalvík. Einna
merkilegust er kvikmynd sem tekin
var af Þjóðverjum, þegar
jarðskjálftinn 1934 gekk yfir. Var
ekki vitað um tilvist hennar, þar til
Islenzka kvikmyndasafnið eignaðist
eintak af henni fyrir tilviljun ekki alls
fyrir löngu. Frummyndin er geymd í
Austur-Þýzkalandi og sagði Kristján
vonir til að Dalvíkingar fengju eintak
af myndinni innan skamms.
-GS/Akureyri.
NORSK
GÆOAVARA
AKARN H.F.,
Strandgötu 45, Hafnarfiröi,
sími 51103