Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1981, Qupperneq 39
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1981 ■
Sjónvarp
Veöriö
39
STARFID ER MARGT - sjónvai? íkvöld kl. 20.40:
Hvemig mjólkin úr Skjöldu
verður að fínustu jógúrt og osti
„Það eru tveir þættir fastákveðnir
í þessum flokki. Sá fyrri í kvöld um
mjólkurframleiðsluna og sá seinni
einhvern tímann eftir áramót um
stóriðju. Hugmyndir um fleiri eru
síðan til umfjöllunar hjá útvarps-
ráði”, sagði Baldur Hermannsson
um nýjan sjónvarpsmyndaflokk sem
hefur göngu sína í kvðld eftir fréttir.
Nefnist þátturinn Margt er starfið.
„Reynslan hefur kennt mér að það
borgar sig sem minnst að ákveða
fyrirfram um það hvernig byggja á
svona þætti upp,” sagði Baldur,
þegar ég spurði hann um form þátt-
anna.
,,í þættinum í kvöld verður hins
vegar fjallað um þær framfarir sem
orðið hafa í landbúnaði og mjólkur-
vinnslu. Þær eru hreint ótrúlegar.
Rætt er um það hvernig mistök
eins og þau, sem fyrir komu í sumar,
I þættinum i kvöld er mjólkursopanum fylgt úr júgrum þessara vinalegu kúa á
borð neytenda.
að Reykvikingum var seld vond
mjólk vikum saman, geta komið fyrir
og hvað hægt er að gera til að fyrir-
byggja að slíkt komi fyrir aftur. Og
til að bæta gæðin. Bændur og aðrir
framleiðendur eru sammála um að
margir flöskuhálsar séu á kerfinu og
er furða að ekki skuli hafa verið bætt
úr því fyrir löngu. En bændur og
þeir sem vinna í mjólkursamlögunum
eru mjög áhugasamir um það,” sagði
Baldur.
í þættinum í kvöld heimsækir hann
eitt stærsta kúabú landsins. Það er að
Holti í Árnessýslu. Þar búa þrír
bræður með hundrað kýr og mikla
hagræðingu í hvívetna. Sagðist Bald-
ur sjá það í hendi sér að þessi yrði
þróunin. Hagræðing og tækni
myndu aukast með árunum og búin
jafnvel stækka. Einnig verður farið í
Mjólkurbú Flóamanna og sýnt,
hvernig dropinn úr kúnum er unninn
til fullnustu.
Jæja krakkar —
þarkomaðþví
Ég og nokkrir tröllastrákar — og kannski mamma, tröll-
skessan, líka, svo og fleiri söguhetjur úr bókinni Gegnum
holt og hæðir — við munum mæta í eigin persónu og
skemmta ykkur næsta miðvikudag 9. desember, kl. 16.00 í
Glæsibæ og kl. 17.00 i Austurveri. Við munum syngja og
tralla rétt eins og við gerum á nýju plötunni sem komin er
út hjá Erni og örlygi. Við vonumst til þess að sjá ykkur
sem flest og auðvitað eru fullorðnir velkomnir líka á
skemmtunina okkar.
Kveðja
Tröllastrákarnir og fleiri persónur
sögunnar Gegnum holt og hæðir.
22.55 Kvöldtónleikar a. „Tregaslag-
ur Frímúrara” (Maurerischer
Trauermusik) eftir Wolfgang
Amadeus Mozart. Filharmóníu-
hljómsveitin í Vínarborg leikur;
Herbert von Karajan stj. (Hljóðrit-
un frá útvarpinu í Vín). b. Píanó-
konsert nr. 18 i B-dúr (K456) eftir
Wolfgang Amadeus Mozart. Radu
Lupu leikur með Sinfóniuhljóm-
sveit útvarpsins i Baden-Baden;
Kazimierz Kord stj. (Hljóðritun
frá þýska útvarpinu). c. „Leiðar-
vlsir fyrir ungt fólk til þekkingar á
hljómsveitinni” (The Young Per-
sons Guide to the Orchestra) eftir
Benjamin Britten. Sinfóníuhljóm-
sveit útvarpsins í Frankfurt leikur;
Kaspar Richter stj.
23.45 Fréttir. Dagsskrárlok.
Miðvikudagur
9. desember
18.00 Barbapabbi. Endursýndur
þáttur. Þýðandi: Ragna Ragnars.
Sögumaður: Guöni Kolbeinsson.
18.05 Jólin hans Jóka. NÝR
FLOKKUR. Fyrsti þáttur af fimm
um Jóka björn og fyrstu jólin
hans. Bandarískur teiknimynda-
flokkur. Þýöandi: Jóhanna Jó-
hannsdóttir.
18.30 Fólk aö leik. Ellefti þáttur.
Japan. Þýðandi: Ólöf Pétursdótt-
ir. Þulur: Guðni Kolbeinsson.
18.55 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Starfið er margt. NÝR
FLOKKUR. Fyrsti þáttur. Mjólk i
mál. Með þessum þætti hieypir
Sjónvarpið af stokkunum flokki
fræðslumynda um ýmsa þætti at-
vinnulífs á íslandi. I þessum þætti
greinir frá mjólkuriðnaðinum.
Litiö er við á einu stærsta kúabúi
landsins, svipast um í Mjólkurbúi
Flóamanna á Selfossi og sýnt
hvernig ýmsar mjólkurafurðir eru
fullunnar. . Umsjónarmaður:
• Baldur Hermannsson.
21.30 Dallas. Tuttugasti og fimmti
þáttur. Þýðandi: Kristmann Eiðs-
son.
22.25 Þingsjá. Þáttur i beinni út-
sendingu um störf Alþingis.
Umsjón: Ingvi Hrafn Jónsson.
23.05 Dagskrárlok.
lesarar væru fengnir.
„Höfundarnir iesa lang-oftast
sjálfir. En það er stundum að þeir
ekki vilja það eða telja sig ekki geta.
Þá fær annað hvort höfundur eða
úgefandi einhvern annan til að lesa.
Við getum til dæmis ekki fengið
leikara tii að lesa, því þetta er reiknað
sem auglýsingar og getum við því
ekki greitt leikurunum kaup sam-
kvæmt samningum. Útgefendur geta
hins vegar ráðið leikara og hefur
einn þeirra til dæmis gert það. Sumir
hafa svo fasta hirðlesara eins og til
dæmis Baldur Pálmason hjá Erni og
Örlygi og Gunnar Stefánsson hjá
Iðunni. Andrés les svo stundum ef
hann er sérstaklega beðinn um það.
Dóra Ingadóttir kynnir.
Ég les hins vegar aldrei, kynni bara,”
sagði Dóra Ingvadóttir.
Þátturinn Á bókamarkaðinum er
einmitt fyrsta merki jólanna i hugum
margra. Ég spurði Dóru hvort hún
héldi að mikið væri hlustað á þáttinn.
,, Ja, mér er sagt svo. En ég er búin
að vera með þetta það lengi að ég veit
ekki nema fólk segi mér það til að
vera kurteist”, sagði hún og hló við.
-DS.
—en ekki er víst að undan hafist
„Við ætlum að reyna að komast yf-
ir að Iesa úr öllum nýjum íslenzkum
bókum. En eftír að prentaraverkfallið
endaði berst það mikið tií okkar að
mér lízt ekki orðið á að við náum því
nema að fjölga tímunum”, sagði
Dóra lngvadóttir, kynnir hins sívin-
sæla þáttar Á bókamarkaðinum.
Hann er nú nær daglega á dagskrá
klukkan 15.10. Stjórnandi þáttarins
er Andrés Björnsson, útvarpsstjóri.
„Við sleppum alveg þýddu bók-
unum, en höfum nóg samt” sagði
Dóra. Ég spurði hana að því hvernig
Andrés Björnsson, umsjónarmaður þáttarins Á bókamarkaðnum.
A BÓKAMARKADINUM - útvaip ídag og næstu daga kl. 15.10:
Reynt að lesa úr öllum
nýjum íslenzkum bókum
Veðurspá
dagsins
Gert er ráð fyrir allhvassri norð-
austanátt, él á Vestur-, Norður- og
Austurlandi. Að mestu úrkomu-
laust sunnanlands og suðvestan-
lands. Frost frá3—9 stig.
Veðrið
hér
og þar
Kl. 6 í morgun: Akureyri snjókoma
—6, Bergen léttskýjað —11, Hel-
sinki snjókoma —4, Kaupmanna-
höfn skýjað —6, Osló alskýjað —7,
Reykjavík hálfskýjað —4, Stokk-
hólmur léttskýjað —3, Þórshöfn
snjókoma —2.
Kl. 181 gær: Aþena léttskýjað + 17,
Berlín snjókoma —1, Chicago al-
skýjað +2, Feneyjar alskýjað +5,
Frankfurt úrkoma í grennd +7,
Nuuk skýjað —3, London kola-
reykur —2, Luxemborg skúr +4,
Las Palmas skýjað + 19, Mallorka
léttskýjað +14, New York súld
+ 6, Montreal súld +6, Parts
skýjað +5, Róm skýjað +15,
Malaga skýjað + 15, Vín léttskýjað
+ 5, Winnipeg snjókoma +11.
Gengið
QENQISSKRÁNIItiQ 'Nr. 235 -
9. dasamber 1981 kl. 09,16 Feröa
Einingkl. 12.00 Kaup Sata gjaldeyrir
1 BandarOcjadoilar 8,156 8,180 8,998
1 Stariingspund 15,696 15,742 17,316
1 Kanadadollar 6,895 6,916 7,607
1 Dönskkróna 1,1200 1,1233 1,2356
1 Norsk króna 1,4197 1,4238 1,5661
1 Saansk króna 1,4789 1,4832 1,6315
1 Rnnsktmarik 1,8762 1,8818 2,0699
1 Franskur franki 1,4337 1,4379 1,5816
1 Belg.franki 0,2126 0,2132 0,2348
1 Svissn. franki 4,4678 4,4810 4,9291
1 HoOarutk florina 3,3154 3,3252 3,6577
1 V.-þýzktmark 3,6257 3,6364 4,0000
1 Itötsk llrn 0,00677 0,00679 0,00746
1 Austurr. Sch. 0,5160 0,5176 0,5693
1 Portug. Escudo 0,1262 0,1265 0,1391
1 Spánskur posati 0,0845 0,0847 0,0931
1 Japanskt yen 0,03728 0,03739 0,04112
1 irsktound 12,870 12,908 14,198
, 8DR (sérstök 9,5316 9,5596
] dráttarrétttndi)
01/09
Sknivari vtgni gwtglukránlngar 22190.