Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1981, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1981, Qupperneq 16
16 Fólk DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1981. Fólk Fólk Fólk QNS OGISÍLDINNIIGAMLA DAGA Sigríður Ella Magnúsdóttir, sem er Íslendingum að góðu kunn fyrir óperusöng sinn, sendi nýlega frá sér 18 laga hljómplötu. Platan nefnist Á vængjum söngsins. Hún geymir þekkt og óþekkt sönglög frá ýmsum þjóðlöndum heims. Undirleikari á plötunni er þekktur enskur píanóleik- ari. Graham Johnsson að nafni. í stuttu spjalli, sem blaðamaður átti við Sigríöi í fyrri viku kom m.a. fram að platan væri mjög fjölbreytt að efnisvali. Lögin væru t.d. sungin á 8 mismunandi tungumálum. Á fyrri hlið plötunnar væru lög eftir gömlu meistarana, Schubert, Mendelsohn og Strauss. Á seinni hlið plötunnar væru hins vegar fræg nor- ræn ástarlög eftir Grieg og Sibelius, auk laga eftir Brahms og Tchai- kovsky. Þar væri einnig að finna vísur Vatnsenda-Rósum, sem Jón Ásgeirsson hefði fært í nýstárlegan búning og lag Páls ísólfssonar við kvæði Davíðs Stefánssonar, Litla kvæðið um litlu hjónin. Sigríður sagði að efnisval plötunn- ar væri mjög sniðið fyrir smekk al- mennings. Raunar væri áætlað að platan yrði send á erlendan markaö og því hefði þótt eðlilegt að platan sýndi sem gleggasta mynd af sönglífí 1 Evrópu fyrr og nú. T.d. væri síðasta 'lagið á plötunni austurrískur „jóðl- ari”, sem hún hefði oft sungið sér og öðrum til gamans. Hvað framtíðina snertir, sagði Sig- ríður, að hún myndi halda nokkra tónleika hér heima yfir hátíöirnar, þar sem hún að sjálfsögðu myndi syngja lög af nýju plötunni sinni. Auk þess væri áætlað að hún syngi eitthvað erlendis á komandi mán- uðum. Tónleikar væru hennar lifi- brauð og þeir væru raunar orðnir hversdagslegur hlutur af hennar lífi. Þetta væri ekkert ósvipað og í síld- inni i gamla daga. Það væri sama „rútínan” sem gengi sinn gang viku eftir viku og ár eftir ár, sagði Sigríður aðlokum. -SER. rætt við Sigríði Ellu um nýja plötu, sem hún hefur sent frá sér, ogfieira RUSLAFÖTURNAR A HLEMMI — spjallað við umsjónarmann staðarins Biðstöðin á Hlemmi hefur nokkuð verið milli tanna fólks á undan- förnum vikum vegna illrar umgengni um staðinn. Blaðamaður lagði á dög- unum leið sína niður á Hlemm og spurði Gunnar Jakobsson, umsjónar- mann skálans, hverju þessi illa •umgengni sætti. „Þaðer áfengið maður, áfengið,” segir hann þungbúinn. „Það kemur hingað oft á tíðum haugdrukkinn lýður um og fyrir helgar sem spillir fyrir hinum almenna borgara. Ég greip til þeirra ráðstafana fyrir tveimur vikum að loka aðalsalnum á fimmtudagskvðldum og um helgar. Þá eru einungis forstofurnar opnar. Þeir verðir sem vinna hér sjá síðan til þess að hingað komi einungis þeir sem eiga fullt erindi. Ég vonast til að þetta leysi úr vandræðunum. Þessi ráðstöfun hefur mælzt nokkuð vel fyrir hjá fólki. A.m.k. þorir það að koma hingað inn, sem það gerði ekki áður. Þá voru hér alls lags rónar og vandræðamenn sem litu á staðinn sem heimili sitt. Þeir voru sífellt að betla af fólki og abbast upp á það. Almenningur var farinn að bíða úti viö, fremur en að verða fyrir ágangi þessara manna. En slíkt er að mestu horfið nú.” Hafði þetta slæma ástand verið frá opnun staðarins? „Já, það má segja það. En ástand- ið hefur ekki alltaf verið jafn slæmt. Það var orðið óþolandi strax í haust. Þess vegna greip ég til þessa örþrifa- ráðs að loka salnum um helgar.” En hvernig er síðan umgengni hins almenna borgara um biðstöðina? ,,Hún er náttúrlega ekki góð. Fólk virðist beinlínis ekki taka eftir því að hér standa ruslafötur á víð og dreif um salinn. Það er öllu drasli umhugs- unarlaust hent á gólfið. Og svo eru flöskur og önnur glerílát iðulega brotin hér á gólfinu. En þetta er von- andi að batna,” sagði Gunnar. -SER. Þaðgetur tæpast talizt skemmtilogt hlutskipti að þurfa að dyaffa i sfúkrahúaI yflr Jólahátíðina, sérstaklega ef um böm er að ræða. Samt sem áður undu þessir krakkar sér ágætiege vlð þá skemmtun, semþeim varveitt á dögunum — og athyglin leyndi sér ekki. DV-myndS. Gunnar Jak- obsson, um- sjónarmaður biðstöð varinnar i Hlemmi styður fætii eina af rushb fötum staðar- ins, sem elns og hinar hefur litt ver- ið notuð til þessa. DV-mynd Bjarnleifur b'til jól á Bamadeild Hringsins „Og það bar til um þessar mundir aö boð kom . . .” o.s.frv., segir í gagnmerkri bók sem gefin hefur verið út á fjölmörgu tungumálum. Þessi fleygu orð er jafnan að heyra á þeirri ágætu hátíð sem nú fer í hönd. Þau var einnig að heyra í helgileik nokkr- um sem 10 og 11 ára nemendur Álfta- mýrarskóla fluttu á dögunum fyrir börn þau er nú liggja á barnadeild Hringsins á Landspítalanum. Það var sem sagt verið að halda NamanrkMÚrÁlftamvrarskólaffytiahérhelgileiksinn. Engtwn ættiað dyljastumhvað leikþátturinn snýst lítil jól fyrir börnin, sem sum hver DV-myndS. þurfa því miður að dveljast á sjúkra- húsi yfir jólahátíðina. Ymislegt var á dagskrá þessara litlu jóla, s.s. söngur, upplestur, leikþættir og önnur tilvalin dagdvelja. Undu krakkarnir vel við þetta forskot jóla- hátíðarinnar og höfðu að sjálfsögðu gaman af. Nemendur Álftamýrarskóla eiga þakkir skildar fyrir sína hlutdeild í skemmtun krakkanna. Þau ákváöu að gleðja börnin með þessu móti upp á sitt eindæmi. Slíkt er til eftir- breytni. -SER.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.