Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1981, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1981, Blaðsíða 39
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1981. Sjónvarp Veðrið 39 VÍKINGARNIR—sjónvarp í kvöld kl. 20.40: r r r SIÐASTIÞATTUR UM VIKINGANA SEGIR FRÁ FALLIHARALDS HARDRÁÐA Þáttum Magnúsar Magnúsar lýkur i kvöld með frásögn af þeirri orrustu sem varð Englendingum minnisstæð í margar aldir. Orrustunni við Stan- forðabryggjur. Þar féll Haraldur harðráði 25. september 1066. Og rás at- burða á Bretlandseyjum breyttist þá mjög. Það var Vilhjálmur hertogi frá Rúðu í Normandí sem sigurinn vann. Hann hefur af íslendingum ævinlega verið kallaður bastarður, sem þýðir óskilgetinn, en Englendingar nefna hann virðulegra nafni, Vilhjálm sigur- vegara. Eftir þessa orrustu og þá sem háð var fáum vikum síðar við Hastings er talið að veldi víkinga hafi farið dvinandi. Skömmu seinna hófust krossferðimar frægu og löndin kringum Miðjarðarhaf urðu aftur miðstöð verílunar og siglinga í Evrópu. -ihh. Jóhannes Sveinsson Kjarval, f. 1885, d. 1972. Útvarp íkvöld kl. 20.40: Komdu í kaff i með Kjarval f kvöld Mikið getur nú tæknin verið undursamleg á stundum. Hún getur t.d. geymt handa okkur raddir og orð horfinna snillinga. Til að mynda rödd meistara Kjarvals. Útvarpið á í fórum sínum gamalt viðtal við lista- manninn, sem Jónas Jónasson tók fyrir einum 17- árum. Og það sem meira er, viðtalið er á dagskránni í kvöld. „í kaffi með Kjarval” heitir • það og var áður útvarpað í þætti Jónasar ,,í vikulokin” árið 1964. Eflaust fer þar meistarinn á kostum eins og hans var vaninn og ætti enginn útvarpseigandi að láta sér happið úr hendi sleppa. Viðtalið „í kaffi með Kjarval” er á dagskránni kl. 20.40 til kl. 21.00. -MS. ★ ÍHAIVIV* FAGNAÐUR MANUDAGSKVÖLD Auöbrekku 55, Kópavogi frákl.9- 2e.m. Félagsmenn og stuðningsmenn, — mætiö uppábúin.^- SAMTÖKIN78 Þaraa siglir vikingaskúta til strandar. I fjörunni stendur kempa með brugðið sverð, albúin að berjast tii þrautar eða falla með sæmd. GJAFAVÖRUR OG DEMANTSHRINGAR frá Finnlandi fást AÐEINS HJÁ Halldóri __________Skólavörðustig 2 r fx x- J|| »| ftlj; •<' JÉÉ& 1 Æm .. jjj : - l|fjj Veðurspá dagsins Á vestanverður landinu er gert ráð fyrir breytilegri átt og léttskýj- uðu en norðaustangolu eða kalda og éljum á austanverðu landinu. Frost er allt frá 4 og upp í 16 stig. Kl. 6 i morgun Akureyri léttskýj- að—16, Bergen léttskýjað—8, Hel- sinki snjókoma—7, Kaupmanna- höfn skýjað—5, Osló alskýjað—7, Reykjavík léttskýjað—8, Stokk- hólmur snjókoma—1, Þórshöfn rigning +5. Veðrið hér ogþar Kl. 18 í gser Berlín þokumóða— 11, Feneyjar snjókoma 0, Frank- furt snjókoma—2, Las Palmas skýjað + 20, Montreal skýjað—4, New York skýjað 0, París alskýjað + 5, Róm rigning +9, Malaga al- skýjað +14, Vín þokumóða—9, Winnepeg skýjað 0. Gengið GENGISSKRÁNING NR. 244 - 22. DESEMBER 1S81 KL. 09.15. Ferða Einingkl. 12.00 Kaup Sata jgjaldeyrír 1 Bandarfkjadollar 8^211 8,235 9,058 1 Starlingspund 15,441 15,486 17,034 1 Kanadadollar 6,935 6,956 7,651 1 Dönsk króna 1,1126 1,1159 1,2274 1 Norskkróna 1,4030 1,4071 1,5478 1 Saansk króna 1,4712 1,4755 1,6230 1 Rnnsktmark 1,8695 1,8750 2,0625 1 Franskur franki 1,4302 1,4344 1,5778 1 Betg. franki 0,2152 0,2159 0,2374 1 Svtesn. franki 4,5352 4,5485 5,0033 1 HoHerutk florina 3,3029 3,3126 3,6438 1 V.-þýzkt mark 3.6164 3,6270 3,9897 1 Itötek Itra 0,00677 0,00679 0,00746 1 Austufr. Sch. 0,5163 0,5178 0,5695 1 Portug. Escudo 0,1247 0,1251 0,1376 1 Spánskur pesetí 0,0840 0,0842 0,0926 1 Japanskt yen 0,03737 0,03748 0,04122 1 Irsktound 12,912 12,950 14,245 8DR (sérstök 9,5262 9,5540 dráttarréttlndl) 01/09 Sfmsvarí vagna gangteskránlngar 22190.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.