Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1982, Síða 1
ff
Steingrímur í hlutverki „yfirfrakka":
BER VOÐALEGA
MIKID A MILLI”
sagði ráðherrann ímorgun um fiskverðsákvörðun
„Það hafa verið stöðugir fundir
um helgina og þeir eru að koma til
mín á fund núna klukkan 9 en það ber
voðalega mikið á milli,” sagði
Steingrímur Hermannsson sjávarút-
vegsráðherra í morgun, en hann er nú
kominn í hlutverk „yfirfrakka” yfir-
nefndar verðlagsráðs sjávarútvegsins
við fiskverðsákvörðun.
Steingrímur lagði fram tillögur í
lok nýliðins árs um 15,5% hækkun
skiptaverðs á fiski, 13,5% nteð
fiskverðshækkun og 2%, jafnvel
2,5% lækkun á 7,5% olíugjaldi, sem
runnið hefur af óskiptu til útgerðar.
Ráðherrann sagði, þegar DV
ræddi við hann í morgun, að
fiskverðsaðilar hefðu mikið við
tillögur hans að athuga en sinn frá
hvoru sjónarhorninu. Hann kvað
ekki von á lausn í dag, en yfirnefndin
á þó að halda fund í dag klukkan 14.
-HERB.
Tillögur Steingríms:
Fela í sér um 12%
lækkun gengis
Þaö er mikill mastraskógur í höfimm landsins, enda nánast allur flotinn í höfit.
Myndin er tekin af togurum i Reykjavíkurhöfit.
DV-myndGVA.
Tillögur Steingríms Hermannsson-
ar sjávarútvegsráðherra um fiskverð
fela í sér um 12 prósent lækkun
gengis krónunnar, að mati stjórnar-
liða sem DV ræddi við 1 gær.
Þessari lækkun yrði hugsanlega
skipt þannig að einhver hluti kæmi
fram sem gengis„sig” eftir að krónan
yrði fyrst felld um nálægt 10%.
Eins og fram kemur í annarri frétt
hefur ekki náðzt samkomulag um til-
lögur Steingríms. -HH.
Sjómannaverkfallið:
Athafna-
lífaö
stöðvast
„Það er ekki vitað með vissu hvað
þetta sjómannaverkfall kemur til með
að bitna á mörgum en það er talið að
um 9000 manns vinni við fiskverkun í
landinu,” sagði Þórir Daníelsson hjá
Verkamannasambandi íslands í viðtali
við DV í morgun.
Hundruð skipa eru þegar bundin við
bryggjur um allt land og á þeim eru á
milli 4000 og 5000 félagar í Sjómanna-
sambandi íslands, Vélstjórafélaginu og
aðrir yfirmenn. Á Vestfjörðum eru allir
bátar stöðvaðir því yfirmenn á þeim
neita að róa fyrr en fiskverð liggur
fyrir.
Verkfall á báta- og togaraflotanum
hefur stöðvað athafnalíf í frystihúsun-
um um allt land. Þegar er búið að segja
upp kauptryggingu á öllum stærri
stöðunum og aðrir fylgja í kjölfarið nú
næstu daga.
-klp-
Rólegustu áramót sem
lögreglan man eftir
sjá bls. 2
DV-mynd Bjarnleifur.
Bílastöö Steindórs seld meö leyfum og öllu
ekki útkljáð hvort slíkt stenzt ffyrir lögum
Nú um áramótin var gengið frá
sölu á Bifreiðastöð Steindórs,
leigubílastöð, sem starfað hefur i
Reykjavík í áratugi.
Það eru erfingjar Steindórs heitins
Einarssonar sem stöðina selja, en
kaupendur eru samtök leigubilstjóra
sem áður störfuðu þar. Stofnuðu 34
þeirra með sér hlutafélag um kaupin,
en í þeim eru falin eignir
stöðvarinnar, bifreiðar og fleira, auk
leyfa.
Nokkur styr hefur staðið um
hvort heimilt sé að selja akstursleyfin
þar sem reglur munu segja svo fyrir
að þeim skuli skilað inn til ráðuneytis
þegar starfseminni er hætt Það sér
aftur um að úthluta þeim áfram.
Þetta mál er enn óleyst, en
ekki reyndist unnt að fá upp á hvern
hátt yrði brugðið við í því. Frami,
félag leigubílstjóra, taldi sig hafa
tryggt í ráðuneytinu að engar undan-
þágur yrðu veittar. í morgun var ekki
að heyra að um slíkt væri að ræða.
-JB.
Fyrstabam
ársins
— sjá bls. 3
Málfríöurfékk
rithöfunda-
verölaun
— sjá bls. 5
Tólfmínútna
þögnríkis-
stjórnarínnar
— Svarthöfði bls. 41
Eyöum viö
þúsundum aö
nauösynja-
lausu?
— Neytendasíða
bls. 10
Olíumölí
gröfinameö
sæmd
— sjá bls. 5
„Hértrúaallir
á jólasveina”
— sjá bls. 12
„Ekkiætlunin
aösprengja
stofnunina”
— sjá bls. 3
MÁNUDAGUR 4. JANUAR 1982.
l.TBL. —72. og 8. ARG
frfálst, úháð dagblað
)