Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1982, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1982, Blaðsíða 14
Fólk Fólk Fólk Fólk Nóg aö gera viö frumsýningar hjá Vigdísi Jón Oddur og Jón Bjarn komnir á spjöld kvikmyndasögunnar DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 1982. Margt manna úr öllum áttum safnaðist saman í Háskólabíói fyrir skömmu, þegar þar var frumsýnd myndin um Jón Odd og Jón Bjarna. Hún er gerð eftir sögum Guðrúnar Helgadóttur um þá bræður, en höfundur handrits og leikstjóri er Þráinn Bertelsson. Sagt er að kollegar Guðrúnar úr sölum Alþingis hafi ekki látið sig vanta. Kannski þeir hafi viljað bera saman afrek hennar í kvikmynda- heiminum og svo i látlausri ba ttu og þrasi því sem á Alþingi sten ur stöðugt yfir. Það eru raunverulegir tvíburar, þeir Páll og Wilhelm Sævarssynir. sem leika aðalhlutverkin í myndinm og fara víst oft á kostum. Hvorugur gengur þó með alvarlega leikara- drauma í maganum aðeigin sögn. Myndin mun vera hin bezta skemmtun fyrir alla fjölskylduna. -JB. Forsetínn, V/gdís Flnnbogadóttír, mættí i frums ýninguna og srtur hór við hlið leikstjórans, Þráins Barteissonar. Ekki þykir okkur ófíklegt að það só dóttír hannar, Ástríður sem srtur vinstra megin og mauiar iakkrís upp úr poka. Ekki fylgdi sögunni hvað það ar sem vekur svo óskipta athygli Ómars Ragnarssonar i sætínu fyrir aftan, en eitthvaö hafa viðbrögð hans veríð irfieg þvi augu allra nærstaddra gesta beinast að honum, þó að Vigdís hakfi ró sinni óskiptri. InnHegar kveðjur ganga þarna ó milli Vigdisar forseta og konu sem við kunnum ekki að nafngreina, en mun vera eigktkona Óskars Gislasonar, hins gamalreynda myndatökumanns, er hjó þeim stendur. Uppótæki tvíburanna Jóns Odds og Jóns Bjama vekja hlótur og kótínu, hvort heidur er i bókunum eða komin ó filmu og liklega eruhöfundurinn og dömumar6 myndinniað rifja upp eitthvertþe'nrra. OV-myndir Bjarn/eifur. Höfundur bókanna um Jón Odd og Jón Bjarna er Guðrún Helgadóttír, alþingismaður með meiru, sem hór situr við hlið manns sins, Sverris Hólmarssonar. Það ar nóg að gera hjó forsetanum okkar, henni Vigdisi þogar hver frumsýningin rekur aðra. En ekki er ó henni að sjó að slíkt gerist leiði- gjarnt tíl lengdar. Aiia vega heilsar hún hór brosmiid og hress upp ó þó Val Gislason og Rúrik Haraldsson að tjaidahaki eftír frumsýningu Þjóð- loikhússins ó ieikritínu „Hús skóldsins ". O V-mynd Bjarnieifur. DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 1982. 15 Mannlíf Mannlíf Mannlíf . Mannlíf Myrtu eiginmanninn fyrir tveimur árum Eru núgenginí hjónaband Hún er þrjátlu og fjögurra, en hann fertugur. Þau afplána fangelsisvist fyr- ir morð á eiginmanni hennar og hafa þegar setið af sér tvö ár. Dómurinn hljóðaði upp á lifstiðarfangelsi, en það Brúðgumlnn: Reynum að fíta aðeins framó við. Brúðurin: Hjónabandið mun haida Hfinu ióst okkar. aftraði þeim ekki frá því að ganga í hjónaband fyrir skömmu. Margaret Chapman og Peter West af- plána dómana hvort í sínu fangelsinu, hún í Durham en hann dúsir innan múranna í London, 450 km vegalengd í burtu. Fyrr á árinu hafði þeim verið synjað um leyfi til giftingar, en þegar Mann- réttindadómstóllinn hafði gefið for- dæmi og veitt slíka heimild i öðru til- felli, þótti ekki stætt á að neita þeim lengur. Svo nú eru þau hjón. Athöfnin fór fram á skrifstofu borg- ardómarans í Durham, árla morguns, eða nærri klukkustund áður en venju- legur opnunartími skrifstofunnar er. Úti fyrir var strangur lögregluvörður og öllum nærliggjandi götum lokað. Brúðurin mætti uppáklædd með fagran blómvönd og með tárin I augun- um smellti hún snöggum kossi á tilvon- andi eiginmann sinn áður en athöfnin hófst. Og þegar öllu var lokið, gafst lítill tími til frekari atlota, einn stuttur kveðjukoss og síðan var hinum nýgiftu hjónum ekiö sínu í hvort fangelsiö að nýju. eru Ijósin í lagi? mÉUMFERÐAR Wráð Þegar þangað kom varð hinum lukkulega eiginmanni að orði: „Auð- vitað heföi verið gaman að halda veizlu og þeysast síðan út I buskann í brúö- kaupsferð, en það verður að biða betri tíma og engin ástæða tU að sýta það að sinni”. Margir velta eflaust fyrir sér tilgangi slíks hjónabands. „Við erum ástfang- inn og giftingin mun létta okkur dvöl- ina í fangelsinu”. Við réttarhöldin fyrir tveimur árum bar Margaret afbrigðilegar kynhvat- ir eiginmannsins fyrrverandi, sem ástæðu fyrir morðinu. Lík hans fannst fljótandi við bryggjusporð, skammt frá heimiU þeirra og var hann klæddur í brjóstahöld, blúndubuxur, sUkisokka og dýrindis náttkjól utan yfir allt sam- an. Við rannsókn kom I ljós að hjúin höfðu byrlað honum eitur og barið hraustlega, áður en þau fleygðu Ilkam- anumísjóinn. Margaret kvaö mann sinn, sem var sá þriðji I röðinni, aldrei hafa elskað sig eða viljað lifa eðlilegu kynlífi. „Allt sem hann vildi var að láta kefla sig með skrautlegum borðum og klæðast nær- fötunum minum,” sagði hún. Peter segir um þetta: „Margaret gekk í gegnum mikla kvöl i hjónabandi sínu og við eigum eftir að greiða okkar skuld við samfélagið. En þrátt fyrir það hugsum við til framtíðarinnar, þegar viö getum lifað saman sem maður og kona I eðlilegu hjónabandi”. Hin nýgiftu hjón skrifast reglulega á milli fangelsanna og fá einstöku sinn- um að heimsækja hvort annað. „Ég man þegar við hittumst í fyrsta skipti aftur eftir réttarhöldin. Við vorum eins og börn, grétum af gleði,” sagði Peter. „Hjónabandið mun halda ást okkar lifandi og við reynum að líta ekki aftur, aðeins fram á við,” segir þetta lukku- lega par, sem svo sannarlega lifir i óvenjulegu hjónabandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.