Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1982, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1982, Blaðsíða 4
4 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 1982. Marc Leland aðstoðarfjármálaráðherra Bandaríkjanna. DV-myndirGVA. „Þaö er kraftaverk hvað ykkur hefur tekizt að búa vel í svo langri sambúð viö óða- ’verðbólgu. En ég held ekki að nokkru landi sé ráðleggjandi að leika þann leik cftir ykkur.” SOVÉTMENN EIGA SINN SNARA ÞÁTT í ATBURÐUNUM í PÓLLANDI ÞÓn EKKI HAFIKOMK) TILINNRÁSAR — segir Marc Leland, aðstoðarf jármálaráðherra Bandaríkjanna, sem verið hefur á ferð um V-Evrópu til að kynna sér undirtektir Nató-ríkjanna við efnahagslegum refsiaðgerðum gegn Sovétríkjunum Nú um áramótin gisti ísland aðstoðarfjármálaráðherra Banda- rikjanna, Marc Leland. Hann er lög- fræðingur að mennt en tók sæti í nýskipaðri stjórn Reagans forseta í janúar sl. Marc Leland hefur verið á ferð um V-Evrópu til að kynna sér afstöðu Natoríkjanna til efnahagslegra refsiaðgerða gegn Sovétríkjunum vegna ástandsins í Póllandi. í stuttri viðdvöl sinni hér notaði hann einnig tækifærið til viðræðna við íslenzka bankastjóra og ráðherra um efnahags- mál. — Ykkar efnahagskerfi er raunar alveg einstakt í heiminum, sagði Marc Leland á blaðamannafundi sem hann boðaði í bandaríska sendiráðinu á nýársdag. — Það er kraftaverk hvað ykkur hefur tekist að búa vel í svo langri sambúð við óðaverðbólgu. En ég held ekki að nokkru landi sé ráðleggjandi að leika þann leik eftir ykkur. Marc Leland sagðist bjartsýnn á að aðgerðir Reaganstjórnarinnar innanlands yrðu til að leiða Bandaríkin út úr efnahagslegri lægð undanfarandi ára. — Staðreyndirnar tala sínu máli sagði hann. — Okkur hefur tekist að koma verðbólgunni niður i 7—9% og staða dollarans út á við hefur styrkst. Marc Leland lét m.a. í ljós það álit sitt að lykillinn að efnahagslegri velmegun allra landa væri hinn frjálsi markaður og erlend fjárfesting væri hverju landi að vissu marki nauðsynlegur vaxtarbroddur. — Ef við tökum Bandaríkin sem dæmi hér voru þau byggð upp með erlendri fjárfestingu. En auðvitað er skiljanlegt að lítið land eins og ísland vilji fara varlega i sakirnar. Hvað refsiaðgerðir gegn Sovét- ríkjunum snertir kvaðst Marc Leland tiltölulega ánægður með undirtektir bandamanna lands síns. „ Við getum a.m.k. fengið þá til að hugsa sig tvisvar um" — Það leikur enginn vafi á því að Sovétríkin eiga sinn snara þátt í at- burðunum í Póllandi, þótt ekki hafi komið til beinnar innrásar. Og víst eru allir sammála um að þeim hefur alltof lengi liðist að virða alþjóðasamninga að vettugi og beita önnur lönd hróplega kúgun. Tökum bara sem dæmi innrásirnar í Ungverjaland og Tékkóslovakíu á sínum tíma. Hins veg- ar var brugðist harðar við innrás þeirra í Afganistan. Aðgerðir okkar gátu að vísu ekki stöðvað Sovétmenn en bendir hik þeirra nú við innrás í Pólland einmitt ekki til þess að þær hafi haft sín áhrif? Og það er í sjálfu sér mikill árangur. — Það blandast engum hugur um að nú er harðra aðgerða þörf og að Bandaríkin geta ekki staðið ein að þeim Hins vegar þarf engan að undra þótt stjórnir vestrænna ríkja vilji fara að öllu með gát og að taka þarf tillit til ýmissa sjónarmiða. — Ég vil auðvitað taka það fram að við Bandaríkjamenn viljum að þess sé vandlega gætt að refsiaðgerðirnar komi ekki niður á þeim sem síst skyldi, eða pólskum almenningi. En það er heldur ekki hægt að lá okkur það að við séum lítt ginkeyptir fyrir því að aðstoð okkar verði til þess að efla pólska herinn. -JÞ. 71ÍSLENDINGUR LÉZT AF SLYSFÖRUM Á SÍDASTA ÁRI —flest dauðsföll í fyrra í maímánuði, 13 AUs Iézt 71 íslendingur af slysförum á síðasta ári. Er það mun færra en verið hefur undanfarin ár. Þannig fórust 83 árið þar á undan, 86 árið 1979, 79 árið 1978 og 87 árið 1977. Alls fórust 17 íslendingar í sjóslysum eða drukknuðu. 27 fórust í umferðarslysum, 5 í flugslysum og 22 aðrir létust af öðrum orsökum. Það sem gerir það að verkum að tala látinna í slysum á síðasta ári er mun lægri en árið 1980 er veruleg fækkun dauðsfalla á hafi úti. Alls var 37 íslenzkum sjómönnum bjargað af strönduðum skipum með flug- línutækjum á síðasta ári. Áberandi flest dauðsföllin á síðasta ári voru í maímánuði en þá létust 13. Enginn mánuður á síðasta ári, né á árinu 1980 var án dauðsfalla af slysförum. Þá vekur það athygli, að fjórir íslendingar Iétust af völdum skot- og líkamsárása erlendis á síðasta ári, en enginn árið þar á undan. -SSv. Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Tólf mínútna þögn ríkisstjórnarinnar Þá höfum við heyrt boðskap erki- biskupa um þessi áramót og var hann i daufara lagi. Dr. Gunnar Thorodd- sen, forsætisráðherra, notaði aðeins átta mínútur af tíma sínum í sjón- varpi á gamlárskvöld, og er hann þó stjórnmálamaður, sem hefur ekkert málgagn svo vitað sé, og talar aðeins einu sinni á ári í fjölmiðla úr sæti sínu í forsætisráðuneytinu. Þessar átta mínútur segja sina sögu, og voru þeim mun meira áberandi þar sem sjónvarpið vílaði ekki fyrir sér að sjónvarpa tólf mínútna þögn að ræðu forsætisráðherra lokinni. Þessi þögn var talandi á sinn hátt og má segja að hún hafi með vissum hætti æpt á stuðningsmenn dr. Gunnars og ríkis- stjórnarinnar. Um miðnættið kom svo Andrés Björnsson, útvarpsstjóri, og flutti sitt fallega mál með þrautþjálfaðri rödd útvarpsmannsins. Andrés hefur átt við nokkrar starfsraunir að búa upp á síðkastið, fjöidalögbrot video- manna, almenna kröfu um annað út- varp og byggingu stórrar útvarpshall- ar utan um ekki neitt, nema ef vera skyldi nokkurn hóp af vinstra fólki, sem heldur að það sé fætt til að ann- ast fjölmiðlun. Andrés Björnsson er Ijúfur maður og drengur góður, en á illa heima í þeirri úlfahjörð, sem hvarvetna sest um fjölmiðla nú á dögum, en í þvi efni er ísland ekkert einsdæmi. Maður, sem hlustaðí á ræðu hans við áramótin lýsti því yfir að þar hefði verið um að ræða kveöjuorð og getur það svo sem vcrið. Er þá Andrés Björnsson fyrr á ferli en undirsátar hans sumir, sem sitja sem fastast komnir á eftirlauna- aldur, vegna þess að þeir eru að bíða eftir þvi að einhver kommissarinn frá allaböllum verði menntamálaráð- Dr. Gunnar Thoroddsen. herra, svo hægt verði að ráða ,,hæft” fóik í stöður þeirra. Um út- varpsstjórastarfiö, þegar það losnar, munu margir sækja, enda telja vel- flestir framagosar hægan vanda að stjórna rikisútvarpi. Ráðning nýs manns i það embætti mun flýta fyrir því, að hér komi tvær eða fleiri út- varpsstöövar, enda er alveg Ijóst að nýr útvarpsstjóri verður einskonar Andrés Björnsson. vinstri menningarviti. Um nýársræðu Vigdisar Finnboga- dóttur er ekki við hæfi að fara mörgum orðum. Forsetinn situr á friðarstóli, en sýnu merkilegri voru ferðir forsetans til grannþjóða okkar á liðnu ári en ræðuhöld almennt. Þá er heldur ekki ástæða til að gleyma nafnbótum og titlatogi, en þau verða gjarnan örlög háttstandandi persóna Vigdis Finnbogadóttlr. að leggjast I krossaflangs hverju svo sem heitið var á skírlífisdögum kosn- ingabaráttunnar. En forsetanum fylgja auðvitað góðar óskir hvað sem hann tekur sér fyrir hendur, nema á þcirri stundu sem hann þarf að stíga niður á hinn almenna stjórnmálavett- vang og standa að stjórnarmyndun. Margt fólk hefur orðið atvinnu- laust um þessi áramót. Fiskiskipa- flotinn er stopp og verður ekki enn séð hverjir og hvenær landfestar verða leystar. Allt er í óvissu, jafnvel það mikilli, að forsætisráðherra, sem er frægur ræðumaður, þrýtur örindið að átta mínútum liðnum. Hann á sinar afsakanir. Dr. Gunnar Thor- oddsen hefur kosið sér hlutvcrk sátta- semjarans og mun sjálfur ekki hafa miklar skoðanir á þeim vandamálum, sem nú herja á landsfólkiö. Og hafi hann einhverjar skoðanir t.d. á sjó- mannadeilunni, aðrar en þær að hér eigi fólk að vera ánægt með það sem það hefur, þá leyfist honum ekki að tala til þjóðar sinnar á áramótum. Færi hann að segja eitthvaö meira en almenna hluti, mundu ráðherrar Alþýðubandalagsins einkum rísa upp, enda lita þeir svo á, að forsætis- ráöherra hafi leikið of mikið glans- númer á fyrri áramótum þegar hann fékk að leysa málin á heppilegum tíma. Svarthöfði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.