Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1982, Blaðsíða 8
8
Hárgreiðslustofan
Klapparstíg
'% Rakarastofan
Klapparstíg
PANTANIR 13010
FRAMLEIÐSLUSTJÓRI
Fyrirtæki með mikil umsvif óskar eftir að ráða fram-
leiðslustjóra
Starfssvið:
Gera rekstrarplön, skipuleggja og sjá um framleiðslu
fyrirtækisins.
Starfsreynsla nauðsynleg.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist augld. DV, Síðumúla 8, fyrir 9. janúar
merkt „Framleiðslustjóri”.
Með umsóknirnar verður farið sem algjört trúnaðar-
mál.
NÁMSKEIÐ
Ný námskeið í manneldisfræði (hollt matar-
æði og heilsuvernd) hefjast 12. janúar.
Námskeiðin fjalla m.a. um eftirfarandi atriði:
* Grundvallaratriði næringarfræði
* Innkaup, vörulýsingar, vörumat og auglýsingar.
* Fæðuval, mataræði mismunandi aldursflokka:
ungbarna, skólabarna, unglinga, fullorðinna
og barnshafandi kvenna.
* Gerð matseðla, matreiðsluaðferðir, uppskriftir
(hollir, Ijúffengir, sjaldgæf ir réttir).
12VIKNA |
MEGRUNARNÁMSKEIÐ l
hefst 7. janúar. (Bandarískt megrunarnám- (
skeið sem hefur notið mikilla vinsælda og (
gefið mjög góðan árangur). |
Munið að aðeins rétt nærður einstaklingur getur /
vænst besta árangurs í námi, leik og starfi. Upplýs- |
ingar og innritun í síma 74204. /
Kristrún Jóhannsdóttir (
manneldisfræðingur 1
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 1982.
Útlönd Útlönd
4 RAUÐU HERDEILD-
ARVALKYRJUR
SLUPPU UR FANGELSI
Fjórar hryðjuverkakonur fara huldu
höfði á ftalíu í dag eftir ævintýralegan
flótta úr fangelsi. Félagar þeirra utan
múra höfðu sprengt gat á fangelsis-
vegginn og haldið fangavörðum í skefj-
um með hríðskotabyssum meðan þær
flúðu.
Ein kvennanna sem slapp úr kvenna-
fangelsinu í Rovigo var Susanna Ron-
coni, sem talin er hafa verið meðal
æðstráðenda í Rauðu herdeildunum.
Hún er grunuð um hlutdeild í ráninu og
morðinu á Aldo Moro 1978.
Þessir fjórir kvenfangar voru að æf-
ingum í fangelsisgarðinum, þegar þeir
réðust á fangavörðinn og tóku af
henni lyklana. Hlupu þeir inn í gang
sem liggur að fangelsismúrnum. Sam-
tímis var bifreið lagt við múrinn, en
hún var hlaðin sprengiefni. — Fangels-
ið er í miðbæ Rovigo og í sprenging-
unni fórst einn vegfarandi en sex
særðust.
Þegar fangarnir fjórir stukku út um
gatið eftír sprenginguna, hélt hópur
hryðjuverkamanna uppi skothrið á
varðturna fangelsisins. Flóttakonurnar
sluppu inn í bifreið sem lagt hafði verið
skammt frá.
Virginio Rognoni innanríkisráðherra
kvaddi lögreglustjóra hinna ýmsu lög-
sagnarumdæma á sinn fund í gær eftir
þennan flótta til þess að skipuleggja leit
að hryðjuverkafólkinu. Hófst leit í
gærkvöldi um allt land. Hundruð lög-
reglumanna settu upp vegatálma á
vegum sem liggja frá Rovigo. Bærinn
liggur um 80 km suðaustur frá Verona,
þar sem James Dozier, hershöfðingja,
var rænt í síðasta mánuði.
Þetta er fyrsti meiriháttar flóttinn úr
fangelsi á Ítalíu síðan 16 hryðjuverka-
menn og afbrotamenn skutu sér leið út
úr San Vittore-fangelsinu í Mílanó í
apríl 1980. Flestir þeirra náðust þá
strax aftur. Þar á meðal Corrado
Alunni, stofnandi hryðjuverkahópsins
Framlínunnar, en hann var unnustí
Rönconi.
9 dæmdir í fangelsi
Starfsmenn Lenínskipasmíðastöðv-
arinnar í Gdansk, þar sem hin óháðu
verkalýðssamtök Eining urðu til, eiga
að hefja störf að nýju i dag eftir fram-
lengingu á jólaleyfinu.
Vestrænir diplómatar í Varsjá segja í
fréttum, sem borizt hafa frá þeim, að
Póllandsstjórn hafi útvegað þær 350
milljónir dollara sem hún þurfti upp í
gjaldfallnar skuldir og greiðast áttu
1981.
Samtímis því greinir Varsjárútvarpið
frá því, að níu foringjar í Einingu hafi
verið dæmdir í fangelsi fyrir skipulagn-
ingu 10 daga verkfallsins i Katowice
stáliðjuverunum. Hlutu þeir allt frá
3 1/2 árs fangelsi upp í sjö ár.
í Gdansk áttu skipasmíðastöðvarnar
að hefja störf síðasta mánudag eftir
jólahátíðirnar. Varsjárútvarpið segir
að það hafi dregizt vegna skorts á hrá-
efnum og vegna frekari undirbúnings.
— Útvarpið segir einnig að skólar byrji
í dag að loknu jólaleyfi, en yfirvöld
hafa ekkert látið uppi um hvenær há-
skólarnir byrji aftur.
Yfirvöld kynntu síðasta laugardag
ráðagerðir um þreföldun verðs á
mörgum helztu matvörum. Þó var
það sagt opið til umræðu en ekki samt
hækkanir á rafmagni, húshitun og
heitu vatni, sem taka eiga gildi 1. febrú-
ar.
Um leið var lofað kauphækkunum
til þess að mæta auknum framfærslu-
kostnaði og vegna gengisbreytingar á
zloty. Verður það lækkað um 56,8%
gagnvart dollar.
Herflokkur lætur til skarar skriða gegn verkfallsmönnum að næturlagi, meðan út-
göngubann gildir. Myndin er tekin á fyrsta vinnudegi cftir jól.
UM 420 S0VEZKIR
NJÓSNARAR í USA?
„Sovézkum njósnurum í Bandaríkj-
unum hefur fjölgað að undanförnu,”
sagði William Webster, forstöðumaður
FBI, alrikislögreglunnar bandarísku, í
gær.
í sjónvarpsviðtali sagði hann, að
35% allra sovézkra diplómata í Banda-
ríkjunum væru þjálfuð í njósnum og
störfuðu á snærum KGB, sovézku
leyniþjónustunnar.
Webster sagði að Rússarnir væru
einkum á höttunum eftir tækniþekk-
ingu, sem lægi reyndar svo á lausu að
þeir gætu lesið leyndarmálin i blöðum
og tímaritum. — „önnur leyndarmál
fá þeir með því að bera mútur á starfs-
menn fyrirtækja,” sagði Webster.
Hann vildi ekki upplýsa nákvæm-
lega hve sovézku njósnararnir væru
margir. En um 35% allra sovézku
diplómatanna í landinu væru njósnar-
ar. — Hann hélt að um 1200 sovézkir
diplómatar væru í Bandaríkjunum.
„ Aðrir njósnarar starfa undir öðrum
dulargervum, en þeim er þó stjórnað
beint frá Moskvu,” sagði Webster.
Washington Post, stórblaðið, hefur
sakað Dmitry Yakushkin, sem verið
hefur ráðgjafi við sovézka sendiráðið í
Washington, um að stjórna aðgerðum
KGB í Bandaríkjunum. Blaðið segir að
hann sésenn á förum til Moskvu.
Ann-Margaret: Tekur eiginmanninn
fram yfir framann.
Ann-Margaret
hjúkrarsjúkum
eiginmanni
Leikkonan Ann-Margaret hefur
nú dregið sig í hlé frá kvikmynda-
störfum og er einnig hætt við að
koma fram í Las Vegas. Ástæðan er
sú að hún ætlar að helgá manni
sínum, Roger Smith, allan tíma sinn,
en hann þjáist af sama sjúkdómi og
dró Aristoteles Onassis til dauða.
Þau hjón dveljast nú á Hawaii, eigin-
manninum til heilsubótar.
Tíundahvertbam
áVesturlöndum
rangtfeðrað
Ættgengiskannanir, sem farið hafa
fram í Bandaríkjunum og Englandi á
áttunda áratugnum, sýna að tiunda
hvert barn á Vesturlöndum er rangt
feðrað.
— Raunar er svo sem ekkert nýtt
við þessa niðurstöðu og hún ætti ekki
að koma fólki á óvart, segir Kajsa
Feigenberg, læknir í Svíþjóð. —
Þetta er meira að segja eitt aðalefnið í
heimsbókmenntunum.
Kajsa hefur tekið þátt í þessum
rannsóknum og skrifað um þær í
læknatímarit. Og það hefur sem sagt
komið greinilega í ljós að 7% feðra er
ranglega kenndur krakki sem annar
hefurgetið.
Kajsa Feigenberg álítur að þessi
tala hafi haldizt nokkurn veginn
stöðug síðustu 40—50 árin,
— Á þessum árum hafa mótazt
alveg ný viðhorf til kynlífs, segir hún.
— T.d. verða kynmök utan hjóna-
bands æ sjálfsagðara fyrirbrigði. í
gamla bændasamfélaginu hefur talan
þó sennilega verið miklu lægri, en þá
var allt er viðkom siðferði í mun fast-
ari skorðum.
Rétturdýranna
dýrkeyptur
bændum
Svínunum leiðist, kjúklingarnir
þjást af hita en kýrnar búa við trekk.
Þetta eru niðurstöður félaga í
hreyfingunni Réttur dýranna, en hún
berst nú fyrir umbótum í dýrahaldi í
Bandaríkjunum og krefst ýmissa