Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1982, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 1982.
dur
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Tæknin lætur ekki aö sér hæða
— myndsegulbönd eru orðin almenningseign
Siggi flug, 7877-8083, skrifar:
Mikið er rausað um þetta ríkisút-
varp og einokun þá á útvarpsrekstri
sem það hefur hér á landi.
Það er talað um að þessi eða hinn
hafi brotið einhver úrelt lög um út-
varpsrekstur, og miklu moldviðri
þyrlað upp um allt þetta.
Ég held að enginn hafi brotið neitt
af sér nema taeknin sjálf, en í þessu
tilfelli er það hin geysiöra tækni
myndsegulspólanna, sem hér er að
verki. Þetta er nú komið út um allan
heim, og ég skal rétt til gamans geta
þess að nýlega dvaldi ég hjá dóttur
minni í Luxemborg og horfði á
ógrynni bíómynda af spólum, sem
höfðu verið annaðhvort keyptar eða
gengu manna á milli í isl. nýlendunni
og þótti engum neitt um.
Það mun vera til nokkuð sem heitir
STEF hér á íslandi, og ég held að hér
liggi hundurinn grafinn. En hver er
munurinn á því að kaupa grammó-
fónplötu i verzlun og lána hana ein-
hverjum kunningja? Ég held enginn.
Ég skal taka annað dæmi. Ég
kaupi myndspólu í verzlun með ein-
hverri kvikmynd á, sem ég síðan sýni
kunningjum mínum, en ég á tæki til
þess að sýna þessa mynd; má ég nú
þetta samkvæmt íslenzkum lögum?
Líklega ekki.
Það þýðir ekkert fyrir okkur fs-
Iendinga að streitast á móti tækninni,
því þá erum við dauðadæmdir.
Mér dettur í hug, að þegar Hegr-
inn, sællar minningar, var reistur við
höfnina, þá ætlaði allt vitlaust að
verða. Verkamenn töldu sig missa at-
vinnuna við að moka kolum úr skip-
um.
íslenzka ríkið er búið að reyna alls
konar ríkisrekstur, og skal ég nú telja
þetta upp eftir því sem ég man: Bif-
reiðaeinkasala ríkisins, Raftækja-
verzlun, síldareinkasala og viðtækja-
verzlun, svo eitthvað sé nefnt, en
sameiginlegt með þessum einkasölum
er það, að þær fóru allar á hausinn.
Er nú ekki komið nóg af sliku?
Að lokum, munið það, að tæknin
lætur ekki að sér hæða. Myndsegul-
böndin eru orðin almenningseign
hvor sem við viljum eða ekki, og að
banna lagningu strengja um ýmis
hverfi er bara til þess að láta hlæja að
okkur.
í t.d. Luxemborg er lagt fyrir
streng i öll ný hús og geta menn eftir
SPARIÐ
tugþúsundir
Endurryðvörn
á 2ja ára fresti
RYÐVORN.SF.
Smiðshöfða 1
Sími 30945
SpariÖ
þúsundir króna
með mótor- og
hjólastillingu
einu sinni á ári
BILASKOÐUN
&STILLING
S 13-100
XZ I I I AJI v
VBil
m
Hátúni 2A
geðþótta látið leggja streng inn til sín
og með því fengið sjónvarp frá mörg-
um löndum.
Úrsmiðir hafa orðið að sætta sig
við tölvuúrin, og leggja það á sig að
læra allt upp á nýtt. Gömlu úrin eru
að verða forngripir.
Tæknin heldur áfram, og ég vona
að alþingismenn geri sig ekki að at-
hlægi að fara að semja einhver vit-
laus lög sem koma engum að gagni.
Mér datt þetta (svona) í hug.
Siggi flug telur það vera út i hött að streitast á móti myndsegulbandstœKn inni; siik sjónarmið sóu úrehL
DV-mynd: Ragnar Th.
Attþú
þér draum ?
Ljúft er að láta sig dreyma
og enn Ijúfara að láta þá rætast
Peirsem spila með
HHi 82 þurfa ekki að
láta koma sér á óvart þó
jafnvel lygilegustu draumar
þeirra geti ræst.
Hvernig líst þérá
að vera með
þegarviðdrögum
út 136 milljónir
króna?
Vinningaskrá:
r
• •• •■■•■ ■■■•■•■•
■■•■■■■■ •■■■
•■■■ ■ ■■■■•■■ ■■■■
•■•■
caa iHsa ■•■■••••
■■■• • ■■■ ■■■■
• •• A
9 @
9 —
9 —
198 —
1.053 —
27.198 —
106.074 —
134.550
450 —
135.000
200.000,-
50.000,-
30.000,-
20.000,-
7.500,-
1.500-
750 -
3.000,-
1.800.000,-
450.000-
270.000,-
3.960.000,-
7.897.500,-
40.797.000,-
79.555.500,-
134.730.000-
1.350.000,-
136.080.000,-
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
hefur vinninginn