Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1982, Page 3
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 1982.
3
Sigurður Björnsson um Sölustof nun lagmetis:
Ekki ætlunin að sprengja stofnunina”
99
—en þar er ágreiningur og óánægja sem verður að uppræta
„Það er ekki aetlun mín að sprengja
stofnunina en þar er verulegur á-
greiningur og óánægja með stefnu og
framkvæmdastjórn og nokkuð rót-
tækar tillögur mínar til úrbóta fengu
ekki þann hljómgrunn sem ég sóttist
eftir. Þess vegna sagði ég af mér for-
mennsku svo að hinir fengju tækifæri
til þess að ráða fram úr þessum vanda-
málum að sinum hætti,” sagði
Sigurður Björnsson, forstjóri íslenzkra
matvæla hf., sem sagði af sér for-
mennsku í Sölustofnun lagmetis fyrir
skemmstu.
Sigurður var fyrst skipaður af
ráðherra í formannssætið í nóvember
1980 en síðan kosinn stjórnarformaður
í vor eftir að Sölustofnuninni var
breytt í samtök framleiðenda. Hann
kvað það sitt sjónarmið og fleiri að
Sölustofnun yrði að komast af því
tilraunastigi, sem hún hefði staðið á frá
upphafi. Veruleg óánægja væri með
stöðu stofnunarinnar og enda þótt
aðrir stjórnarmenn hefðu ekki verið
tilbúnir til þess að samþykkja sínar
tillögur væri þar einungis um að ræða
áherzlumun. Þeir hefðu ekki viljað
ganga eins hart fram.
„Þá var einnig uppi ákveðinn á-
greiningur milli mín og framkvæmda-
stjórans,” sagði Sigurður Björnsson,
,,svo að öllu samanlögðu taldi ég það
heppilegast fyrir þessa stofnun, að ég
segði af mér sem stjórnarmaður og for-
maður. Hinir geta þá ótruflaðir leyst
málin með sínu lagi. Ég vona að þeim
takist það, þótt ég sé því miður ekki
viss um að það verði alveg átakalaust
eða sársaukalaust.”
-HERB.
Heimir Hannesson f ramkvæmdastjóri Sölustof nunar lagmetis
„Ekki ágreiningur um
grundvallaratriðr
„en Sigurður sjálf um sér samkvæmur með af sögninni”
„Ég get ekki sagt að það hafi verið
uppi nein alvarleg ágreiningsefni milli
Sigurðar Björnssonar og annarra
stjórnarmanna í stofnuninni eða milli
okkar, en í svona fyrirtæki greinir
menn vitanlega oft á um leiðir. Hér
hefur ekki verið deilt um nein grund-
vallaratriði, en ég tel að Sigurður hafi
verið sjálfum sér samkvæmur með af-
sögninni þar sem skoðanir hans og hug-
myndir fengu ekki fylgi,” sagði Heimir
Hannesson, framkvæmdastjóri Sölu-
stofnunar lagmetis, um brotthvarf
Sigurðar Björnssonar úr stjórn og for-
mennsku.
Heimir kvaðst meta mikils áhuga
Sigurðar á Sölustofnuninni og lag-
metisiðnaðinum og að sá blæbrigða-
munur sem komið hefði fram ætti ekki
að koma í veg fyrir áframhaldandi
samvinnu framleiðendanna sem mynda
Sölustofnun lagmetis.
-HERB.
íReykjavík: Myndarstúlka kom
íheiminn á nýársdag
Hún var ekki búin að vera lengi hér í mannheimum þessi myndarlega stúlka er Ijósmyndari blaðsins festi hana ú fdmu. Svaf
hún veert enda veitir ekki af að búa sig vel undir hina hörðu llfsbarúttu þegar út I heim er komið. Varla þarf hún þó að hafa
óhyggjur af sllkufyrst um sinn. Eftirþvi sem bezt er vitað er stúlkubarnið ú mcðfylgjandi myndfyrsta barn úrsins l Reykjavlk
og kom I heiminn um kl. 12.30 ú nýúrsdag. Foreldrarnir eru þau Vigdís Valsdóttir og Bjarni Ásgeirsson. Stúlkan var 14
merkur og 53 cm við fœðingu. -SSv/D V-mynd G VA.
OKKAR ÁRLEGA
uctrim'ttertln
HÓFST í MORGUN
tiiktoria
yrtiuymciý 12
^KEIMWODD KASSETTUTÆKI
KX-70: Sjálfvirkur lagaleitari. Innstill-
ing fyrir síendurtekna spilun á sömu
kassettuhliðinni eða sama laginu. Sér-
stakur upptökurofi fyrir hljóðnema sem
gerir mögulegt að syngja eða tala ofaní
upptökur. Tveir DC mótorar og Amor-
phous Alloy tónhaus, upplýstur tveggja
lita upptökumælir og innbyggt DOLBY
kerfi. Stilling fyrir Normal METAL og
CrOo . Tón- og suðhlutfall betra en
68dB, tíðnisvörun 20-18kHz, gang-
hraðafrávik minna en 0,04% (WRMS),
rafeindastýrðir snertirofar. Afborgun-
arskilmálar: Útb. 1500 kr. Afg. á 4 mán.
Staðgreiðsluverð 4.422,—
með Iggaleitara, dolby og síspilun
AKRANES Bjarg SAUÐÁRKRÓKUR Radio og sjónv. þjónustan SEYÐISFJÖRÐUR Versl. Stál
BORGARNES Kaupf. Borgf. B. AKUREYRI KEA EGILSSTAÐIR Versl. Skógar
iSAFJÖRÐUR Póllinn SIGLUFJÖRÐUR Versl. ögn HELLA Versl. Mosfell
BOLUNGARVÍK Einar Guðf. HÚSAVÍK Bókav. Þórðar Stef. SELFOSS Radio og Sjónv. stofan
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI85884