Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1982, Page 5
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 1982.
5
Losuðu Olíumöl hf. við
12-14 milljóna skuldir
—til þess að koma fyrirtækinu í gröf ina með sæmd
Síðasti skilafundur vegna
fyrirtækisins Olíumalar hf. var hald-
inn nokkru fyrir hátíðar og er nú ekki
annað eftir en að kasta rekunum yfir
það með auglýsingu i Lögbirtinga-
blaðinu um að fyrirtækið sé úr
sögunni. Fjórir helztu lánar-
drottnarnir keyptu dánarbúið og er
talið að þeir og aðrir hafi afskrifað
um 10 milljónir í vöxtum og kostnaði
en sveitarfélög leystu að auki út á-
byrgðir sínar á nærri þrjár milljónir
króna.
Olíumöl hf. var sem kunnugt er
aðallega í eigu sveitarfélaga í Reykja-
neskjördæmi og að auki nokkurra
fyrirtækja og einstaklinga,. Undir
lokin var talið að skuldir með
kostnaði næmi 26 milljónum króna
en eignir 14—16 milljónum.
Endirinn varð sá, að Útvegs-
bankinn, ríkissjóður, Norske Fina
A/S og Framkvæmdasjóður keyptu
eignirnar, til þess að bjarga Olíumöl
frá gjaldþroti og firna sig nær algeru
tapi á inneignum sinum. Um leið var
búið þannig um hnútana að þessir
lánardrottnar og aðrir felldu niður
vexti og kostnaö í kröfum sínum og
voru kröfur annarra en
kaupendanna, um 20 aðila, gerðar
upp á nafnverði. Er þessi niðurfelling
grófiega metin á um 10 milljónir.
Sveitarfélögin tóku á sig um leið
ábyrgðir, sem námu orðið með
kostnaði um 2.7 milljónum, en Út-
vegsbankinn lánaði þeim öllum á
móti til 5 ára á vildarkjörum. Sveitar-
félögin og aðrir hluthafar töpuðu
öllu hlutafé sínu, sem var að visu
ekki stór biti.
Að sögn formanns skilanefndar
Oliumalar hf., Björns Ólafssonar
verkfræðings, telja aðilar þennan
viðskilnað hafa verið stórum betri
kost en gjaldþrot, bæði frá sjónar-
miði lánardrottna og vegna
framhalds þeirrar þjónustu, sem
Olíumöl hf. veitti. Kaupendurnir
fjórir og Miðfell hf. stofnuðu síðan
nýtt fyrirtæki, Hraðbraut hf., sem
nú er að hasla sér völl á gatna- og
vegagerðarmarkaðnum.
-HERB.
Önnur blokkin f ullgerð á Eskifirði:
Meyjaskemman risin
— næst á eftir piparsveinahöllinni
’82
Með Atlantik til Tyrol
Stumm Zillertal Tyrol
Brottfarardagar:
16. jan. — 6. febr. — 20. febr.
14 dagar
hálft fæði, ferðir og fararstjórn
Verðkr. 7.265.00
Hótel Pinzger
öll herbergi með baði. Sauna og fullkomin
aðstaða á hóteli
FERÐASKRIFSTOFAN
\ múMTK
lönaöarhúsinu v/Hallveigarstíg — Símar 28388 — 28580
AUSTRIA
B
Bygging á 12 íbúða blokk að
Bleiksárhlíð 32 á Eskifirði var hafin
15. maí 1979. Hér var um að ræða
leiguíbúðir á vegum leiguibúðanefnd-
ar. Hagstæðasta tilboðið í þessar
framkvæmdir kom frá byggingar-
félaginu Hólmatindi sf., en forstjóri
þess er Sigurbjörn K. Haraldsson.
Fyrstu 6 íbúðirnar voru afhentar 1.
september sl. en næstu 5 íbúðir 15.
nóvember og hin síðasta 15.
desember sl.
Gólfflötur 6 stærri íbúðanna er
100 ferm og er nafnverð (verð sem
kaupendur greiða) kr. 500.000, og
auk þess fylgja stórar og góðar
geymslur. Gólffiötur hinna 6
íbúðanna er 50 ferm, auk þess er
sameigin í kjallara, nafnverð þeirra
er kr. 380.000. Auk þess er búið að
grófjafna lóð kringum blokkina.
Sigurbjörn sagði að áætlaður
skilatími seinni 6 íbúðanna heföi
verið 15. nóv. sl. en afhending dróst
vegna viðskipta hans við Lukkuhúsið
i Kópavogi, á innréttingum. Taldi
hann að réttara nafn á fyrirtækið
væri Ólukkuhúsið. En hann hefði á
sínum tíma gert samning við Fifu sf.
um kaup á innréttingum, fyrir alla
blokkina, og greitt þær að fullu þá.
En á smíðatímanum heföi það
fyrirtæki hætt starfsemi sinni, en
Hin nýja fbúðablokk á Eskifirði.
DV-mynd Emil Thorarensen.
nýtt fyrirtæki verið stofnað í
staðinn, þ.e. Lukkuhúsið.
Sigurbjörn var mjög sár yf-
ir viðskiptum sínum við áðurgreint
fyrirtæki. Sagðist hann hefði afhent
allar íbúðirnar mörgum mánuðum
fyrr hefðu samningar og loforð
staðizt.
Sigurbjörn var einungis 25 ára er
hann byrjaði á verkinu. Hann sagði
það ýmsum erfiðleikum háð og
margfalt erfiðara að byggja úti á
landi en á Reykjavíkursvæðinu.
Sigurbjörn vildi að lokum bæta því
við að stór þáttur í hversu vel hefði til
tekizt þrátt fyrir allt, væri sá, að
hann hefði haft alveg framúrskar-
andi byggingarstjóra allan tímann,
þ.e. Margeir Ingólfsson.
Þetta erönnurblokkináEskifirði
(Meyjaskemman), hin er
piparsveinahöllin.
-Emil, Eskifirði.
Æ&m!
Vigdfs Finnbogadóttir forseti og Málfrfður skála hér i hófinu sem haldið var i tilefni
úthlutunar Rithöfundasjóðs.
DV-mynd: GVA.
Rithöf undur á níræð-
isaldri verðlaunaður
Mátfríður Einarsdóttir hlaut styrkveitingu
Rithöfundasjóðs
Málfríður Einarsdóttir, 82 ára,
gömul, hlaut á gamlársdag
styrkveitingu úr Rithöfundasjóði Rikis-
útvarpsins, að upphæð kr. 40.000.
Úthlutað var úr sjóðnum i 26. sinn og
var Málfriður 57. styrkþeginn í sögu
sjóðsins.
Málfriður hóf ekki ferU sinn á rit-
vellinum fyrr ' en hún var komin vel á
áttræöisaldurinn, en vakti strax mikla
athygU fyrir sérstakan stíl og sérstæð
umfjöllunarefni.
Jónas Kristjánsson handritavörður
afhenti Málfriði styrkupphæðina við
formlega athöfn í Þjóðminjasafninu
semvenjahefurverið. -SSv.