Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1982, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 1982.
Spurningin
Hvaða ósk er þór efst f
huga á nýbyrjuðu ári?
Magnús Halldórsson, afgreiðslumað-
ur: Fyrst og fremst þaö að eiga fram-
undan gott ár og að þaö verði friðsælla
en þetta sem nú er liðið.
Hálfdán Jónsson, afgreiðslumaður: Að
geta þætt upp og lagfært það sem af-
laga fór á síðasta ári.
Elías Hansen, járniðnaðarmaður: Eg á
mér þá ósk að þetta ár verði gott og
farsælt fyrir mig og mína og svo alla
landsmenn.
Egill Ferdinandsson, afgreiðslumaður:
Mér er efst i huga að allt blessist hjá
landi okkar og þjóö.
Guðný Halldórsdóttir, dúklagninga-
maður: Ég vildi óska að ég gæti hætt
að reykja, eins og eflaust er flestu reyk-
ingafólki efst í huga. Mig langar mikiö
til að standa við það um þessi áramót.
Jóna Þórðardóttir, húsmóðir: Að fá
sem mestan og bestan snjó sem fyrst, til
að komast á skíði.
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lese
Símamálin:
„Daglegt brauð að
fá samband við alla
mögulega aðra en
maður hríngir F
Hörður H. Guðmundsson hringdi:
Ég er einn fjölmargra óánægðra
simnotenda í Reykjavík. í dag reyndi
ég t.d. þrívegis að ná sambandi við
Húsasmiðjuna í Reykjavík en fékk
alltaf samband við Knattspyrnudeild
tslands.
Það er orðið daglegt brauð að fá
samband við alla mögulega aðra'en
maður hringir i, þegar maður þá nær
sóniá annað borð. Þetta var illþolan-
legt fyrir skrefatalninguna, en er orð-
ið óþolandi eftir að hún er komin á.
Ætli þeim hjá símanum hefði ekki
verið nær að huga að bættri þjónustu
áður en þeir eyddu of fjár í að koma
á skrefatalningunni, sér til tekju-
aukningar og öllum öðrum til ama.
Einkafyrirtæki kæmist aldrei upp
með svona þjónustu.
STÓREFAST UM
RÉTTMÆTISÍMA-
REIKNINGA SINNA
—telur rekstur símans óviðunandi
Ámi Guðmannsson hringdi:
Ég lenti í því að þurfa að tilkynna
dauðsfall núna á 2. í jólum. Meðal
annars þurfti ég að ná sambandi við
tvö númer í Keflavík, sem byrjar því
á 92, en tvívegis fékk ég samband við
konu i vesturbæ Reykjavíkur.
Samtals tók það mig um það bil
hátt á aðra klukkustund að ná sam-
bandi við númerin tvö í Keflavík. í
öðru þeirra hringdi og hringdi, en
enginn virtist vera heima. í hinu til-
vikinu fékk ég ekkert nema brak og
bresti og konuna í Reykjavík, þar til
þaulsetan varð mér árangursrík.
Auk alls annars, kom síðan í Ijós,
að í því númeri, sem ég alltaf hringdi
í, en aldrei var svarað, hafði fólkið
verið heima allan tímann — og sím-
inn hafði ekki hringt í eitt einasta
sinn.
Þessi vandræði með símann eru
orðin svo algeng fyrirbæri að ég
þekki varla nokkurn mann sem ekki
hefur sömu sögu að segja. Að ég
minnist nú ekki á ef maður þarf að
hringja út fyrir Reykjavíkursvæðið.
Það gengur jafn treglega og síðan má
maður búast við að sambandið slitni
minnst tvisvar í miðju samtali.
Það er gortað af að nú sé hægt að
hringja beint til útlanda og svo er
ekki einu sinni hægt að fá mannsæm-
andi símasamband innanbæjar i
Reykjavik, eða við nágrenni borgar-
innar. Fyrir skömmu ætlaði ég að
hringja til Grindavíkur og fékk auð-
vitað samband við Snæfellsnes.
Ég stórefast um réttmæti minna
símreikninga og tel rekstur símans
ekki vera viðunandi. Hvernig væri að
maður fengi einhverja þjónustu.
Það eina sem virðist vera i lagi hjá
þessari stofnun er innheimtan og
skrefatalningin.
Svar símstjórans í Reykjavík, Hafsteins
Þorsteinssonar:
ALAGIÐ GIFURLEGT
—veldur truf lunum á símsamböndum
—stendur til bóta á næsta ári
„Undanfarið hefur verið kvartað
undan truflunum á símasamböndum,
m.a. hve illa gengur að fá són,” sagði
simstjóri Reykjavíkur, Hafsteinn
Þorsteinsson.
„Um það bil 20% símnotenda geta
komizt að samtímis, en eftir það fer
að koma fram bið eftir sóniog ýmsar
aðrar truflanir. Álagið er svona mik-
ið á linurnar, sem fyrir eru, þvi við
höfum ekki getað stækkað. Seint á
þessu ári (1982) gerum við okkur hins
vegar vonir um að geta bætt við ein-
um 1000 númerum. Vonandi færist
þetta þá í viðunandi horf.
Við reynum eftir fremsta megni að
grisja, þannig að ekki séu of mörg at-
vinnufyrirtæki á svipuðum númer-
um. Til dæmis er óskaplega mikið
álag á sima KSÍ á mánudögum, vegna
getraunanna, að ógleymdum sima
stjórnarráðsins og okkar eigin síma
(26000) alla vikuna. Síðan er áber-
andi hve mikið álag hefur verið á sim-
stöðvarnar núna um hátíðirnar.
Rétt er að geta þess, að talning á
símtali kemur fram, þegar viðkom-
andi svarar, þannig að ef hringt er til
Keflavikur, svæðisnúmer 92, og svar-
að er í Reykjavik, þá stimplast
Reykjavíkursímtal.
Ég hvet fólk til þess að kvarta við
05 eða beint við yfirmenn símstöðv-
arinnar, ef það verður fyrir truflun-
um á símsamböndum, þvi við getum
ekki lagfært bilanir sem okkur er
ekki kunnugt um. Um leið og og bil-
un eða truflun hefur verið tilkynnt er
viðkomandi númer að sjálfsögðu at-
hugað sérstaklega,” sagði símstjóri
Reykjavíkur að lokum.
—FG.
Grfurktgt álag á sum simanúmer, svo
sem sima stjórnarráOsins, getur
truflað simsambönd svipaðra
númera, þegar mest gengur á.
„Það er orðið daglegt brauð að fá samband við alla mögulega aðra en maður
hringir i, " segir reiður simnotandi.
Hljómsveitin Friðryk.
Hamingjuóskir til
hljómsveitarinnar
Fríðryks
— „prýðisgóð hljómplata”, skrifar aðdáandi
Maggi skrifar:
Mig langar til þess að þakka DV
fyrir góða kynningu á hljómsveitinni
Friðryk (DV. 9. des. sl.). Kom
árvekni ykkar mér nokkuð á óvart,
því þessari plötu hafði þá litið sem
ekkert verið hampað.
Sjálfur brá ég mér inn í hljómplötu-
verzlun, mest fyrir orð vinkonu
minnar, til þess að hlusta á þessa
„meiriháttar” plötu, eins og hún
orðaði það. Útkoman varð sú að
platan hefur verið á fóninum siðan.
Hún reyndist hafa að geyma verk
okkar færustu hljómlistarmanna á
þessu sviði og er árangurinn eftir því;
prýðisgóð hljómplata.
Ég vil óska Friðryksmeðlimum til
hamingju með þessa plötu og einnig
með kaffidrykkjuna. Vonandi fáum
við að heyra meira frá þessari hljóm-
sveit i framtíðinni.