Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1982, Síða 9
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 4. JANUAR 19S2.
9
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Matarskorturinn hrjáir Pólverja, en á Norðurlöndum og viðar hafa staðið ytir satoanir fyrir hjálpargögnum handa þcim. Þessi
mynd var tekin f bænum Leszno við útbýtingu á gjafapökkum frá V-Þjóðverjum.
Pólska stjórnin
biðlar til EBE
Herforingjastjórninni í Póllandi er
afar annt um, að hin tíu aðildarríki
Efnahagsbandalags Evrópu (EBE)
fylgi ekki fordæmi Reaganstjórnarinn-
ar um efnahagsaðgerðir gegn Póllandi.
Hefur Varsjárstjórnin kvatt sendiherra
þessara tíu á sinn fund til viðræðna.
Þessar viðræður við sendiherrana
fara fram skömmu áður en utanrikis-
ráðherrar EBE-landanna koma saman
til fundar í Brtissel í dag til þess að
ræða Póllandsmálið. — Meðal stjórna
þeirra er óeining um afstöðuna til refsi-
aðgerða Bandaríkjastjórnar gagnvart
Sovétríkjunum og Póllandi.
Washingtonstjórnin leggur fast að
stjórnum EBE-Iandanna að styðja
refsiaðgerðirnar. Sumir bandamanna
hennar, eins og t.d. Bonnstjórnin í V-
Þýzkalandi, telja að Reagan Banda-
ríkjaforseti hafi verið helzt til fljót-
ráður. Holland, Danmörk og Grikk-
land eru einnig andvíg fljótfærni í mál-
inu.
Olíuvinnsla
íraks i molum
Olíumálaráðherra íraks lét eftir sér
hafa að hráolíuútflutningur íraks væri
ekki nema fimmtungur þess sem var
fyrir stríðið við íran.
Útflutningurinn nemur núna um 600
þúsund olíufötum á dag en var um
þrjár milljónir á dag áður en Persaflóa-
stríðið hófst fyrir 15 mánuðum.
Abdel-Mouiicim Samarrai, olíu-
málaráðherra íraks, segir að striðstjón
á olíumannvirkjum íraks sé geipilegt.
Sérstaklega við aðalútskipunarhafn-
irnar við Persflóann. Spjöll hafa orðið
á olíugeymum, olíuhreinsistöðvum og
olíuborstöðum.
NÝ RÍKISSTJÓRN
í EGYPTALANDI
Nýr ráðherralisti hefur verið lagður Sadats. — Fjórir háskólaprófessorar
fram af Fuad Mohieddin, hinum nýja eru skipaðir yfir ráðuneyti fjármála,
forsætisráðherra Egyptalands, sem efnahagsmála, iðnaðar og áætlunar-
Mubarak forseti (arftaki Sadats) fól að. gerðar.
hreinsa til I spillingu embættismanna- Nýir ráðherrar taka við Iandbúnaö-
stéttarinnar og rétta af efnahag armálum, lögreglumálum, feröamálum
landsins. og trúmálum en aðrir ráðherrar eru
þeir sömu og voru í stjórninni er
Meðal hinna nýju ráðherra er Ibra- Mubarak forseti vék frá á dögunum.
him, fyrrum seðlabankastjóri, sem Þar á meðal utanríkisráðherrann og
fyrir nfu árum var fjármálaráðherra varnarmálaráðherrann.
Baháíar ofsóttir í íran
Fimm leiðtogar Bahál-safnaöarins í ins, sem týnt hafa tölunni í ofsóknum
íran hafa verið teknir af lifi og þriggja klerkaveldisins. Fyrirrennarar þeirra
annarra hefur verið saknað svo lengi að höfðu verið handteknir í ágúst 1980 og
þeir eru taldir af. ekkert hefur til þeirra spurzt síðan. Þeir
Allir átta voru handteknir fyrir rúm- eru fyrir löngu taldir af.
um tveim vikum. Engin réttarhöld voru
haldin yfir þeim, engar kærur birtar og í Bahái-söfnuðinum í íran eru um
aðstandendum þeirra var ekki einu 400 þúsund manns. Er það stærsti
sinni tilkynnt um dauða þeirra. minnihlutatrúflokkurinn i iran þar sem
Mennirnir höföu verið kjörnir í stað yfirgnæfandi þorri manna er
annarra fyrri leiðtoga Bahái-safnaðar- múhameðstrúar.
breytinga, sem geta orðið bændum
þar i landi æði dýrkeyptar.
Talsmenn hreyfingarinnar
fullyrða þó að þær margborgi sig
fyrir bændur þar sem ánægð og
heilbrigð dýr gefi af sér meiri afurðir.
Meðal þeirra grundvallarréttinda,
sem þeir krefjast dýrunum til handa
er frelsi og rými til að standa upp,
leggjast niður, snúa sér og teygja úr
sér ásamt rétti til likamlegrar
umhirðu.
Tekinaf lífi
vegna morðs
Lögreglan á Korsíku tilkynnti
nýlega, að glæpamaður, sem fluttur
var á sjúkrahús vegna skotsára, hefði
verið myrtur i rúmi sínu þar.
Gerðist það þannig að tveir
grímuklæddir menn ruddust inn á
sjúkrastofuna og skutu manninn,
Joseph Paccioni, af dauðafæri.
Minnir aðferð þessi mjög á starfs-
hætti Mafíunnar enda var Pacciuoni
þekktur fyrir ýmiss konar glæpa-
starfsemi á Korsíku.
Faye Dunaway: Lftið fyrir húsverkin.
Subban
Faye Dunaway
Faye Dunaway, kvikmynda-
leikkona, er samkvæmt nýjustu
fréttum allt annað en húsleg I sér.
Hún leigöi lúxusvillu f Beverly Hills f
hálfst ár og yfirgaf húsið f svo
slæmu ástandi að eigandinn hefur
krafizt 350.000 króna f skaðabætur
til hreingerninga á húsinu.
Láttu verðbólguna ekkl rýra
tryggingavemdina
- tryggðu hjá traustu tryggingaíélagi.
Anlrin
tryggingavernd
íverðbalgu
Frá 1. janúar 1982 verða tryggingaíjárhœðir
allra eignatrygginga, slysa- og sjúkratrygginga hjá
Samvinnutryggingum verðtryggðar skv. vísitölu og
hœkka því á 3ja mánaða fresti.
Samvinnutryggingar haía með
þessu tekið upp verðtryggingu á
tryggingaíjárhœðum í flestum
greinum trygginga.
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ÁRMtJLA
I.VJ
"X
ÍMl 81411
NHUMLA3ÆDALLT
Biautryöjendnr í bœttumtiYggingum
AUGLÝSINGASTOFA KRISTÍNAR HF. 62.68